Skoðanabræður

Skoðanabræður

By Bergþór MássonEducationSelf-Improvement
Download on the App Store

Skoðanabræður episodes

  • #139 Skoðanir Ágústs Elí Ásgeirssonar

    Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur


    Ágúst Elí kvikmyndagerðarmaður og teiknimyndaking gerði flestöll góðu tónlistarmyndbönd rapparanna í góðærinu góða 2016/17/18 - hér segir hann frá því hvernig var að vinna með röppurum höllum undir plöntuna grænu í miðjum xanax faraldri, hvernig teiknimyndir virka og eru gerðar - einnig tölum við um; myndasögur, íslenska gagnrýni á whack dóti, B.O.B.U JóaPé og Króla, 12:00 og Verzló (förum vel yfir það), sósíalisma og framtíð Íslands.

    1 hr 46 min
  • #138 Við hörmum að Ofurdeildin hafi ekki orðið að veruleika

    Það er synd og skömm að ekki hafi orðið af Ofurdeildinni, einhverju merkasta framtaki síðari tíma, að mati Skoðanabræðra. Þetta kemur fram í nýjum Bræðralagsþætti, þar sem markið var sett hátt: Að mynda sér skoðun á einhverju gefnu fyrirbæri án þess að hafa nokkra minnstu forsendu til þess. En okkur skilst að ef af þessu hefði orðið, hefði verið úti um fótboltann. Þarna var dauðafæri illa nýtt.

    Önnur umræðuefni: Rétt og röng stjörnuspá, sturlaðar hugmyndir um einkavæðingu, viðbjóðslegir brundstólar fyrir Playstation 5 úr Eymundsson og aumingjaskapur FIFA-spilarana. Og margt fleira!

    Patreon, fyrir djúsinn. Googla Skoðanabræður Patreon.

    1 hr
  • #137 Skoðanir GDRN

    Söng- og leikkonan GDRN ræðir með okkur OnlyFans, áhrifavalda, Instagram, leiklistina, tilgangsleysi skoðana, Pál Óskar, tónleikahald, tónlistarbransann, að meika það erlendis og allskonar annað

    Styddu frjálsa fjölmiðlun inná www.patreon.com/skodanabraedur

    1 hr 20 min
  • #136 Skoðanir Joey Christ á grasi (4/20 Special)
    „Ég held að þeir sem eru að borga í bræðralagið séu í miklu meira mæli einhverjir nerds sem eru ekki í alvöru að smoke-a hann.“ Jóhann Kristófer Stefánsson um ykkur, lúserarnir ykkar. Eru menn að fagna deginum? Eða viljið þið bara weed eftir djammið þegar þið eruð að fara heim með stelpu sem þið eruð að sofa hjá í fyrsta skipti og hún reykir augljóslega ekki það oft en er samt bara eitthvað mm jájá þú mátt alveg reykja?
    Hvert sem svarið er, er þessi þáttur óður til plöntunnar ógurlegu, eiturnautnarinnar maríjúana. Í boði í heild sinni á Patreon – alhliða umræða um kannabis á 4.20., eða 20.4. eins og maður segir hér á landi, þar sem allt sökkar.
    1 hr 9 min
  • #135 Skoðanir Herra Hnetusmjörs

    Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur

    Herra Hnetusmjör talar um aðgerðir stjórnvalda, mótmæli á Reykjanesbrautinni, landamæralokanir, hlaðvörp, stöðu íslensks rapps og íslenskrar tungu, Framsóknarflokkinn, sinn eigin stjórnmálaflokk og forsetaframboð, eftirlaunin 2044, fasteignabrask, árshátíðaspjallið, Hamraborg sem kvenmannsnafn og síðan eru hinar og þessar stofnanir svívirtar svo sem: RÚV, Rás 1, Rás 2, ÍSTÓN og FÍH

    1 hr 22 min
  • #134 Á að gera venjulegt klám jafn ólöglegt og barnaklám?

    Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur

    Það sem er m.a talað um: Prins Filipus rest in pussy, DMX rest in power, fólk trúir því sem það vill trúa, grasreykingar um páskana, á að gera klám ólöglegt?, algoriþminn sem þurrkar út Joe Biden og Trump, klámvörubúðirnar íslensku sem raka inn milljónum og framtíðar bræðralagsþættir.

    1 hr 2 min
  • #133 Skoðanir Þórðar Inga Jónssonar (Lord Pusswhip)

    Þórður Ingi Jónsson hinn eini sanni íslenski Underground King einnig þekktur sem Lord Pusswhip fer yfir allt þetta helsta með Skoðanabræðrum: NFT's, alþjóðlega myndlistarmarkaðinn, Berlín, TikTok radíkalísering, stuðningur olíufyrirtækja við avant-garde listamenn, Reykjavík, Vesturbærinn, LA, Píratar og Vinstri Grænir, Bangerboy, íslenskt rapp, léleg íslensk popptónlist,  og allskonar fleira.


    Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur

    1 hr 36 min
  • #132 Skoðanir Danmerkur

    Hlustaðu í fullri lengd á www.patreon.com/skodanabraedur


    Danmörk - þriðji þáttur í Norðurlandaseríu Skoðanabræðra. Draumaríki unga fólksins, veisla, hvort sem þú vilt reykja sígarettur og drekka bjór eða vera í CBS og myrða vændiskonur.  Nokkrir sérfræðingar varpa ljósi á land og þjóð.  

    Sindri Jensson kaupmaður fór til Kaupmannahafnar fjórum sinnum á ári áður en faraldurinn skall á og stýrði þar fataverslun á árum áður.  

    Kári Eldjárn Þorsteinsson er staddur í Danmörku núna og fílar lífið sem kennari: Golf á morgnana og kennsla eftir hádegi. Komið við í Christianiu þegar það á við.  

    Ísabella Lena var á djamminu í Kaupmannahöfn þegar hún var 19 ára. Það er alvöru stöff.  

    Már Jónsson sagnfræðingur fjallar um sögu Danmerkur sem lítils nýlenduveldis og auðvitað tengsl hennar við það gráa lúsuga Ísland.

    2 hr 31 min
  • #131 Skoðanir Magnúsar Leifssonar

    Magnús Leifsson leikstjóri er karlmaður vikunnar. 

    Hér er talað um: Stofuhita með Bergi Ebba á Stöð 2, tónlistarmyndbönd, Úlf Úlf, árangursríka nísku Emmsjé Gauta, auglýsingabransann og fljótfærnina þar, hvernig maður býr til kvikmynd, hvernig maður býr til stuttmynd, söfnunaráráttu, innblástur héðan og þaðan, íslenska kvikmyndagerð, þróun rapptónlistar, graffiti menningu, Steindann Okkar seríur 2 og 3, Hreinan Skjöld, samtök ungs fólk gegn veggjakroti og allskonar annað.


    Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur

    1 hr 40 min
  • #130 Skoðanir Svíþjóðar

    Þáttur tvö í Norðurlandaseríu Skoðanabræðra. Í heild sinni aðgengilegur á PATREON - gúglið Patreon Skoðanabræður og borgið svona 500kr á mánuði fyrir endalausan aðgang að endalausri veislu.

    Svíþjóð – fyrirmyndarríkið, ólíkt Noregi, sem allir hata. Í Svíþjóð er gott að búa og það getur eiginlega enginn útskýrt af hverju. Hér gera samt fjórir mismunandi sérfræðingar tilraun til þess.

    Feðgarnir Jakob Birgisson grínisti og Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur segja frá dvöl sinni í Svíþjóð og rekja sögu þjóðar í stuttu, hnitmiðuðu og ögn bældu máli.

    Emma Ástvaldsdóttir viðskiptafræðingur segir frá sænsku samfélagi eins og hún hefur kynnst því í Stokkhólmi frá því á unglingsárum, en þar hefur hún verið með annan fótinn.

    Andrea Röfn Jónasdóttir bloggari kveður Svíþjóð eftir þriggja ára dvöl og eitt stykki barnsburð – og það gerir hún með trega, enda frábært land sem má segja ýmislegt um.

    1 hr 24 min

About Skoðanabræður

From the publisher's feed

www.patreon.com/skodanabraedur

More shows like Skoðanabræður

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners