
Sign up to save your podcasts
Or


Karlmaður vikunnar er Jökull Sólberg, ráðgjafi og sérfræðingur í hinu og þessu.
Hér tölum við um radíkalíseringu hans sem sósíalista, tímann á stafrænni auglýsingastofu í London, sprotafyrirtæki, QuizUp, rafflæði, samband hans við Hreiðar Má fyrrverandi bankastjóra, hvernig hagfræði í HÍ er fullkomlega úrelt og allskonar annað.
Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur
Fleiri Norðurlandaþættir koma á Patreon – sá fyrsti er frír í heild sinni. Googla: Patreon Skoðanabræður og fáðu aðgang að endalaust að efni fyrir 634 krónur.
Noregur!
Kæra bræðralag: Vorgjöf Skoðanabræðra er þessi sérstaki þáttur um Noreg, þar sem heyrast skoðanir fjögurra álitsgjafa á þessu sérstaka landi, sem er auðvitað upprunastaður okkar Íslendinga, a.m.k. að svo miklu leyti sem aðrir staðir eru það ekki.
Menning, efnahagur, pólitík í Noregi - og hreinræktaður ömurleiki tilverunnar í mynd elliheimilismáltíða sem samanstanda af bæði kjötbollum og fiski – þessu eru hér öllu gerð fullkomin skil í samtali við fjóra sannkallaða Noregskonunga.
Hlustið bara á þetta frá A til Å (síðasti stafur norska stafrófsins). Og ef þið villist um í hverfinu hérna, eru tímasetningar einstakra viðtala eftirfarandi:
9. Már Jónsson sagnfræðingur
36. Brynjar Barkarson popptónlistarmaður
51. Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður
1:22. Þóra Tómasdóttir blaðamaður
Styddu frjálsa fjölmiðlun á www.patreon.com/skodanabraedur
Kolfinna Nikulásdóttir er sviðshöfundur FKA Kylfan. Hér tölum við um beefið við Emmsjé Gauta, Reykjavíkiurdætur, meðalmennsku í íslensku listalífi, kvenhatur og hnignun karlkynsins, hvað má og hvað má ekki, MeToo hreyfinguna, Woody Allen, gagnrýnendur og áhorfendur, lélega íslenska sjónvarpsþætti ofl ofl ofl
Það er áfengi, það er djamm, það eru óheflaðar umræður. Við erum stödd í partíi í miðbæ Reykjavíkur með mjög góðar upptökugræjur – í titli þáttarins eru svívirt nöfn þeirra sem sannarlega hafa mikla aðkomu að umræðunum, en eru ekki endilega eins vel til þess fallin að hala inn smellum og nöfnin sem urðu fyrir valinu. Til dæmis sitja Hákon Jóhannesson og Ísak Hinriksson inni í hljóðveri lungann úr þættinum og systkinin Sigurbjartur Sturla og Rafnhildur Rósa Atlabörn leggja þannig sömuleiðis ófá orð í belg.
FARÐU INN Á PATREON! Skoðanabræður.
Nýr þáttur. Ég var að klippa hann og gat ekki hætt að hlæja, þannig að ég skil hann bara eftir hér. Fyrsta símaat í Skoðanabræðrum og fyrsti söngur frá viðmælanda. Quote: „Ég er að keyra frá Kjalarnesi og ég hlýt að mega spyrja þig um eitt,“ segir Hákon á leiðinni í Vesturbæjarlaugina. Hákon Jóhannesson leikari, nánar tiltekið.
Góðan daginn góðan daginn veislan heldur áfram... hlustaðu í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur - hér er talað um: Instagram Vikunnar vs. Stjörnulífið, hvers vegna Snorri kýs að skrifa fréttir og beita sjálfan sig ofbeldi, hvað það er ömurlegt að spila, hvort það megi uppnefna Dómsmálaráðherra, deyfing, áfengi & gras & lögleiðing, Björgúlfur Thor vs. Robbi Wessman, míkróbrewery, Erpur & Stefán Pálsson, Bjarni Ben & Katrín Jak sem áhrifavaldar, hvort áfengi eigi að vera í búðum, ÁTVR og Thule, suicide boming og hryðjuverk ofl ofl ofl
Karlmaður vikunnar hefur skoðanir á karlmönnum - skoðanir sem flestir ættu að heyra. Hér er ekki verið að tala um skoðanir í þeirri skilgreiningu að þær séu lægsta form þekkingar, heldur erum við að tala um að hér sé verið að facta hluti - íslensk föct eins og þau gerast best.
Hér er talað um: þróun femínismans, aktívisma, stjórnmál, réttlætiskennd, Miðflokksógnina miklu og Sigmund Davíð, hvernig umræðan færist hægt og rólega til hægri, misskilninginn um að strákar séu sérstaklega illa staddir í skólakerfinu, þunglyndi og kvíði stelpna í skólakerfinu, Moggabloggið, Holland, jafnréttisfræði ofl ofl ofl ofl!
Gjörið svo vel, brot af því versta. Vikulegir þriðjudagsþættir á Patreon, þar sem gasleiðslurnar eru raunverulega ræstar. Kostar um 800kr að fá aðgang að þessu!
„Sigurvegarinn er aldrei spurður hvort hann hafi verið að segja satt,“ sagði Hitler og það voru orð í tíma töluð. Allir hafa nokkuð til síns máls, eins og Guðmundur Björn Þorbjörnsson bendir á í þættinum.
Guðmundur! Menntaður prestur, en starfar ekki sem slíkur, heldur hljómar hann frekar eins og áhangandi nýrrar og sanngjarnari póstkristinnar hugmyndafræði, ekki ósvipaðrar póstfemínisma þeim sem Skoðanabræður hafa talað fyrir. En það kemur málinu ekki við, þó að það sé töluvert talað um þetta í þættinum. Yfirveguð umræða um trúárbrögð! Guðmundur er blaðamaður á RÚV, þó að hann hafi átt bestu ár sín sem blaðamaður á Bæjarins besta á Ísafirði. Síðan þá hefur líf hans einkennst af ritgerðarskrifum og öðrum alvarlegu einkennum sem fylgja þeim sjúkdómi sem doktorsnám er. Hér segir hann sína sögu og útskýrir fyrir Bergþóri og Snorra hvað það er í raun og veru lúseralegt að vera antí-sportisti.
Farðu á Patreon! Skoðanabræður hjá Útvarpi 101.
Þriðji og síðasti Drake þáttur Skoðanabræðra og sá epískasti hingað til. Farið yfir hinn skeggjaða stóra kanadíska frá 2016 til nútímans. Vonbrigði í kjölfar Views, grasreykingar og áfengisdrykkja Snorra og Bergþórs á Drake tónleikum í London 2017, More Life slappleikinn, beefið við Kanye og Pusha T, góðu versin, góðu lögin, lélegu plöturnar, sigrarnir stóru 2018, Euphoria og Top Boy 2019, viðbjóðurinn af lagi sem Toosie Slide er, Dark Lane Demo Tapes, DJ Khaled, Lil Durk, Certified Lover Boy og svo er barnagirnd mannsins sem búið er að framleiða þrjá heila þætti um rædd í lokin.
Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur
From the publisher's feed

139 Listeners

214 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

91 Listeners

17 Listeners

18 Listeners

67 Listeners

30 Listeners

28 Listeners

21 Listeners

17 Listeners

14 Listeners

25 Listeners

12 Listeners