Skoðanabræður

Skoðanabræður

By Bergþór MássonEducationSelf-Improvement
Download on the App Store

Skoðanabræður episodes

  • #111 Skoðanir Jóns Péturs Þorsteinssonar

    Jón Pétur um viðtal Skoðanabræðra við Sóllilju Baltasarsdóttur: „Ekki skrýtið að þið séuð orðnir níhilistar með blæti fyrir þjóðernisíhaldi, þið hafið enga trú á náunganum og eðlilega komist þið að sömu niðurstöðu og Hobbes að það sé þörf á sterkum leiðtoga. Þið getið kannski rætt þessar pælingar við Sigmund Davíð þegar hann mætir loksins í þáttinn ykkar.“

    Í stað þess að fá Sigmund Davíð (við gerum það síðar) fengum við Jón Pétur sjálfan! Þar með beygjum við aftur inn á beinu brautina og höldum áfram okkar vegferð okkar í nafni hins margumtalaða pólitíska rétttrúnaðar. Farið á Patreon, þar sem þið finnið mjög marga þætti sem ekki eru á hlaðvarpsveitum.

    2 hr 5 min
  • #110 Séríslenskt stéttaofbeldi með Sturla Atlas

    Hlustaðu á þennan þátt í fullri lengd inn á www.patreon.com/skodanabraedur - 45 mínútna spjall með Sturla Atlas

    Leikarinn og tónlistarmaðurinn Sigurbjartur Sturla Atlason púllar upp í settið um miðjan þátt og fer yfir þetta helst með okkur; 8 Mile og Gunnar Smári, jákvæðni og gleði, Katrín Jakobsdóttir, Frosti Logason & Bitcoin, afstöðuleysi í bankasölu, stéttaskipting í skólum og á Íslandi, Svíþjóð versta land í heimi, menningarelíta og alþýðumúsík, menningarnám í leikhúsinu, pólitísk list, róttækni í listum, misheppnaðir leikarar, Atli123, Rússland fyrir byltingu, incest, Macron og konan hans, klám, kynlífsatriði í bíómyndum, Tesla & Elon Musk, Bólivía, tyrkneskt rapp í Þýsklandi og danskt rapp.

    1 hr 15 min
  • #109 Skoðanir Tómasar Steindórssonar

    Góðan daginn. Tommi Steindórs… Tómas Steindórsson (born 24 April 1991) is an Icelandic entertainer, social media celebrity and basketball player, segir í alfræðiritinu Wikipedia. Hver skrifar þetta? Greinilega ekki hann sjálfur, ef marka má frásögn hans hér í Skoðanabræðum. Stóra spurningin: Hvernig er Tommi í náðinni hjá bæði vegan vinstrinu og mjög vonda hægrinu? Hann er Joe Biden Íslands, mættur til að sameina. Hlustaðu á þáttinn og heyrðu hvernig Tommi borðaði Metro, hrossakjöt og 12 litlar kókosbollur á einum og sama deginum.

    Patreon! Googlaðu Skoðanabræður á Patreon og gakktu í ljósið.

    2 hr 40 min
  • #107 Nýtt 9/11 og viðtal við rapparann Birni

    Hlustaðu á þetta spjall við vinsælasta karlmann vikunnar fyrr og síðar í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur


    Önnur umræðuefni eru; Stöð 2 í lokaðri dagskrá, failaðir fjölmiðlar, rapparinn Birnir snýr aftur í Skoðanabræður og talar um listamannalaunin sín og nýja lagið sitt og Páls Óskars, uppþot í USA, Trump Media, Sleepy Joe, helsta áhugamál íslenskra Viðreisnartölvunarfræðinga; gera lítið úr málfari annara ofl ofl ofl ofl

    1 hr
  • #106 Skoðanir Sóllilju Baltasarsdóttur
    patreon.com/skodanabraedur
    Samfélagsmiðlar, áhrifavaldar, útlitsdýrkun, Nike, H&M, þrælahald, hraðtíska, veganismi, kjötát, hestamennska, skíðamennska, eldamennska, náttúra, miðborgin, myndlist, kvikmyndagerð og hlaðvarpsgerð. You name it - hér eru málin rædd..
    2 hr 3 min
  • #105 Að hata stjörnuspá er að hata konur

    Já.. nýtt ár! Hver hefði haldið. Fámennt áramótapartí er eins og eilíft fyrirpartí, það hefur komið fram, en það sem hefur ekki komið fram er að af örfáum konum á vettvangi héldu tvær uppi metnaðarfullri stjörnuspá fyrir veislugesti. Hvað á þunglyndum karlmanni að finnast um það og hvort finnst honum betra, það, eða kennisetningar nýfrjálshyggjunnar? Margt fleira rætt, svo sem, og vísast að hlusta á allan þáttinn inni á Patreon til að njóta hans til hlítar.

    56 min
  • #104 Skoðanir Benedikts Erlingssonar

    Karlmaður vikunnar! Benedikt Erlingsson... leikari og kvikmyndaleikstjóri, þekktur fyrir Fóstbræður, hin og þessi leikrit, kvikmyndirnar Hross í oss & Kona fer í stríð. Hér rekur hann sögu Íslands og setur mikla virðingu á nöfn þrælanna Karls og Vífils, leggur til lausnir við loftslagsvánni, hvetur ríkisstjórnina til þess að selja kynlíf, rassskellir Ríkisútvarpið, kallar Auði, GDRN og Herra Hnetusmjör Fjölnismenn og opnar sig loks um þá hræðilegu upplifun að lenda í ærskýringu.

    1 hr 31 min
  • #103 Blóðugasti bardagi íslenskrar nútímasögu

    Verðugt umfjöllunarefni: Guttó-slagurinn. Bergþór Másson gerir honum mögnuð skil í þessu stutta broti, sem má nálgast í fullri klukkustundarlengd á Patreon, en þar er sannarlega fjallað um endalaust margt annað: Umræðuefni eru Bjarni Ben, Ásmundarsalur, 2020, skeggjaðir menn leiknir grátt af Covid, Gúttóslagurinn mikli, kommúnismi, kapítalismi, Siglufjörður, Ólafur Thors, sérsveitin, hvítliðar, sjálfstæðismenn, Viðreisnarmenn, ömurlegir pistlar, auglýsingar til barna, heilaþvottur barna, Valdís, jóladagatöl og margt margt fleira.

    1 hr 2 min
  • #102 Skoðanir Arons Kristins Jónassonar

    Jólasveinar, einn og átta.. Ég er auðvitað ekki að kalla Aron Kristin Jónasson einn af þeim! En það mætti ýmislegt um manninn segja. Til að spara tíma (klukkan er 16.52 á aðfangadag þegar þetta er skrifað) segi ég bara: Hann er Geitin Sjálf, þó að mannanafnanefnd þverskallist við að taka nafnið gilt. Rappari, listamaður, viðskiptasiðfræðingur, sem hér tjáir sig um allt á milli himins og jarðar. Athugið þó að þær skoðanir sem hér koma fram hafa, eins og maðurinn tiltekur sérstaklega af ótta við Æstan Múg Góða Fólksins, ekki lengri líftíma en sem nemur nákvæmlega þessum þætti.

    Farið á www.patreon.com/skodanabraedur.

    1 hr 44 min
  • #101 Úr meginstraumsbarnaklámi til Only Fans

    Það bar til um þessar mundir að þáttur datt inn frá Skoðanabræðrum í jólagjöf fyrir alla aumingjana sem þó eru ekki að styðja þá á Patreon. Þetta er í fullri lengd, sem sé í tilefni þjáningarhátíðarinnar. Og klárlega einskiptisaðgerð. Fáið ykkur áskrift en fleytið ykkur um sinn áfram með þessum brauðmolum. Af Patreon: enn og aftur komnir inn í eyrun og umræðuefni eru: King Tommi Steindórs, LungA, Seyðisfjörður, barnaklám, OnlyFans, Þórbergur Þórðarson, seinni heimsstyrjöldin, CIA, Indónesía, Jake Paul & Logan Paul, Black Lives Matter. Þetta er góður þáttur!

    50 min

About Skoðanabræður

From the publisher's feed

www.patreon.com/skodanabraedur

More shows like Skoðanabræður

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners