
Sign up to save your podcasts
Or


Má kalla kvennalandsliðið í knattspyrnu litlar mýs? Það virðist Bergþóri finnast! Umdeilt mál... En gjöfult þegar kemur að lækunum. Talandi um læk, þ.e. nafnorðið „lækur“. Hvernig beygist það í eignarfalli? Læks? Lækjar? Ef þú velur fyrri myndina, þarftu að segja af þér, því það er rangt. Skóggangssök, eins og vitað er, guðlast af verstu sort, fannst alla vega á sínum tíma öllum nema Halldóri Kiljan Laxness.
Síðast en ekki síst: íslenskt rapp! Framtíð tungumálsins, samanber sigurvegara Rímnaflæðis þetta árið, sem fjallað er sérstaklega um hér. Linkur hér: https://www.ruv.is/ungruv/spila/rimnaflaedi-2020/31317/9al62j?fbclid=IwAR3mhuF36tGATr6W6WuprYpG8EEElv0N-aNGSuaUrWQKNMgaewTXsEDRHUg
Útvarp 101, farið á Patreon: https://www.patreon.com/skodanabraedur
Sigga Ólafsdóttir hefur í gegnum árin starfað á tónlistarhátíðum, í félagsmiðstöðvum, íþróttafélögum og nú á Stuðlum.
Umræðuefni eru meðal annars: eiturlyfjaneysla unglinga, lögleiðing fíkniefna, Telegram, Secret Solstice, Sónar, Wow Air, KR, stemningin á Stuðlum og Retro Stefson.
www.patreon.com/skodanabraedur
Þáttur um allt það helsta og aldrei þessu vant: Dagskrá! Spurningakeppni þar sem Bergþór veður eld og brennistein og niðurlægir sjálfan sig auðvitað. Farðu á Patreon! Útvarp 101.
Sigmar Vilhjálmsson athafnamaður er á þessum síðustu og verstu tímum orðinn einn allra mikilvægasti áhrifavaldur á íslenskum samfélagsmiðlum, með fleiri en 20.000 dygga fylgjendur á Instagram.
„Þetta er ótrúlega sérstakt atriði… Háaldraður maðurinn.“
Skoðanir? Alla vega þetta: „Ég og Gísli Marteinn erum sammála um fátt.“ Borgarmálin, business og orkupakki 3! Þetta er allt saman gullfallegt. Farið inn á www.patreon.com/skodanabraedur... við gerum þetta fyrir ykkur! Útvarp 101.
Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur - nýir þættir alla þriðjudaga.
Í þættinum er meðal annars talað um: atvinnuleysisbætur, toxic jákvæðni, markþjálfun, sjálfshjálp, síðan er það símtal til Flóna um ilmvatnið hans, FLONI 3 og Simma Vill, sundleysi og vöðvabólga, krabbamein, Wolkswagen & nasismi & brasilíska herstjórnin, þrælahald í Bandaríkjunum, Ari Eldjárn, Facebook á Íslandi, Grammy verðlaun, Stan herir, Family Guy, ofl ofl ofl
Það er þak, en ekki gólf, í húsi lífsins... Karlmaður vikunnar er rithöfundur og pistlahöfundur, Halldór Armand. Epískt spjall um það sem skiptir máli... fyrri hluti: pólitík, þunglyndið og samantekin ráð um að almenningur eigi ekki að hafa gaman. Seinni hluti: bókmenntir og ómældar þjáningar rithöfundarins, ekki kannski Halldórs, en svona, almennt þess sem skrifar.
Útvarp 101. www.patreon.com/skodanabraedur
Sýnishorn dagsins... að lesa Harry Potter og síðan spyr hún þig hvort hún þig hvort þú viljir byrja með henni? Þá þarf að forgangsraða. Annars hvaðeina rætt; Johnny Depp, Angela Merkel, jólin, íslensk kvikmyndagerð og Bergur á fjöllum, verðlaun fyrir bestu afsökunarbeiðnina og svo mætti lengi halda áfram.
www.patreon.com/skodanabraedur
Handbremsa, stopp, beygja til vinstri. Þetta er ekki heillaskref. Raunar stórhættulegt og ætti að banna með umferðarlögum. En þetta eru örlög ófárra skeggjaðra einstaklinga sem einn daginn í sakleysi sínu sjá glitta í ljósið, eins og það heitir. Þeir ákveða að gá betur að því en sjá auðvitað ekki þá að það eru þeirra mestu mistök hingað til, því ljósið gleypir þá og þeim er þaðan af skapað að bera þungan kross um allan aldur. Vandinn er nefnilega sá að sá sem hefur séð ljósið ratar ekki aftur inn í myrkrið. En í myrkrinu líður manni best. Þetta er greinilega ekki spurning um það.
Hér er rætt um Twitter, Rómaveldi, bandaríska pólitík, hryðjuverkastarfsemi og lesin upp alvöru tölvupóstsamskipti við Noam Chomsky. Það er sem sagt verið að skrifa söguna.
Farið á Patreon! www.patreon.com/skodanabraedur. Útvarp 101.
Fyrir ykkur! Það er fyrir ykkur sem við gerum þetta. Gleðilegt bræðralag. Bergþór er á Langjökli, Snorri er í Skegg City, og það er bókstaflega allt að gerast. Nýir tímar fara í hönd, en í millitíðinni eru þeim málum gerð skil sem tilefni er til: kvikmyndaframleiðsla, alvöru vinnur, Spotify heimsyfirráð, af-radíkalísering, dagur íslenskrar tungu, Jónas Hallgríms, alkohólismi, Octavian cancelled, ofbeldismenn, ratfuck í Bandaríkjunum, að lifa í sátt við liberals, Kamala Harris girlboss, podcöst og hljóðbækur, Rosalía, Embla finnur sjálfa sig ofl ofl
From the publisher's feed

139 Listeners

214 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

91 Listeners

17 Listeners

18 Listeners

67 Listeners

30 Listeners

28 Listeners

21 Listeners

17 Listeners

14 Listeners

25 Listeners

12 Listeners