
Sign up to save your podcasts
Or


Full lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur
Hrun siðmenningar í World of Warcraft, nafnleysi á netinu, menntaskólar í Covid19, Trump og stóra gríman hans Biden, Netflix fjarstýringar uppí rössum, raunveruleikinn vs. skáldskapur, Brian Cox, Ríkisútvarpið svívirt, vaxandi kynslóðir vestur-íslendinga ofl ofl ofl. Útvarp 101 ber ábyrgð á öllu sem er sagt hér.
www.patreon.com/skodanabraedur
Sigurjón Sighvatsson, skilgreiningin á því að vera legend í leiknum, er genginn í bræðralagið. Hann hefur framleitt fleiri en 50 kvikmyndir og starfað í Hollywood í 35 ár. Meðal verka hans eru; Twin Peaks, Bevery Hills 90210, Killer Elite, Wild At Heart og Brothers.
Hér setur hann m.a virðingu á nafn Robert DeNiro og svívirðingu á nafn Harvey Weinstein, segir sögur af Jason Statham, David Lynch og Madonnu, greinir frá hugleiðsluaðferðum sínum ásamt því að ræða bókmenntir, tónlist og ástandið á vinnumarkaðinum. Og þetta er engin virðing eða svívirðing á nöfn úr þægilegri fjarlægð netverjans eins og við flest þekkjum, heldur þekkir Sigurjón þetta fólk beinlínis. Innsýn!
Útvarp 101 ber ábyrgð á þessum óskunda öllum.
Celebrity trainer Gummi Emil er karlmaður vikunnar. Líkamsrækt, orkudrykkir, samfélagsmiðlar, sjálfsfróun, concerta, no fap og Jordan Peterson. Allt þetta rætt í bland við annað. www.patreon.com/skodanabraedur
Stóru spurningar lífsins... og dauðans. Víri er kominn á kreik, þ.e. sú krýnda. Lætur til sín taka og veldur hörmungum eins og tónlist um samstöðu á viðsjárverðum tímum. En! Gas í þætti dagsins, allt frá framhaldi um Herra Hnetusmjör og rappleikinn til Sigríðar Andersen, flóttamannaveislunnar og yfirvegaðs uppgjörs við nasismann í Þýskalandi.
Farið á Patreon strax! Útvarp 101. Nýr bræðralagsþáttur í hverri viku.
Ópera.. púra ofbeldi í ýmsum skilningi, fyrst og fremst jákvæðum. Bjarni Frímann Bjarnason er tónlistarstjóri Íslensku óperunnar en látið ekki blekkjast. Hann er alþýðlegur, ungur og að sögn sérfróðra tónlistarsnillingur. Það eðli brýst fram þegar hann stendur og stjórnar, en það braust líka fram þegar Bjarni var í áttunda bekk, varð ástfanginn af stelpu í 10. bekk, bauð henni á deit, var hafnað og brást við með því að… a) fara að væla og skammast sín eða b) mæta fullur í skólann, vera rekinn tímabundið og klára 9. og 10. bekk síðan saman á einu vori og útskrifast tveimur árum of snemma og byrja í rauninni í LHÍ svona 15 ára? Veljið svarið og hlustið á þáttinn til að heyra hvort er rétt!
Farið á Patreon og fáið miklu miklu meira efni. Allt þetta, í boði Útvarps 101.
Andlát: Íslenskt rapp, segir Davíð Roach, gagnrýnandi Ríkisútvarpsins. Skoðanabræður fagna slíkri dáð, að lýsa yfir dauða einhvers sem auðvitað gefur sig út fyrir að vera sprelllifandi. Pistill sem vakti athygli ögn tekinn og skoðaður nánar, og komist að niðurstöðu um brotalamir í röksemdafærslu, sem eru þó auðvitað óhjákvæmilegar, enda röksemdafærslur á endanum ekki annað en bara tilfinningar.
Annað rætt: Dýrafjörður sem ný skeggparadís, dauði sósíalismans, ágæti fóstureyðinga og margt annað skelfilegt.
Allur þátturinn á Patreon, þar sem áskrift að vikulegum aukaþáttum fæst fyrir fimm Bandaríkjadali. Útvarp 101 biður að heilsa.
Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd inná www.patreon.com/skodanabraedur og eigðu von á því að vinna epíska vinninga.
From the publisher's feed

139 Listeners

214 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

91 Listeners

17 Listeners

18 Listeners

67 Listeners

30 Listeners

28 Listeners

21 Listeners

17 Listeners

14 Listeners

25 Listeners

12 Listeners