Skoðanabræður

Skoðanabræður

By Bergþór MássonEducationSelf-Improvement
Download on the App Store

Skoðanabræður episodes

  • #70 Skoðanir Gunnhildar Fríðu Hallgrímsdóttur og Óskar Elfarsdóttur (nýju stjórnarskrárinnar)

    Stærstu mál samtímans... Skoðanabræður gera þeim að sjálfsögðu skil. En það má heita umdeilt hver þau eru nákvæmlega... klámið, grasið og skeggið eða þá „róttækar“ stjórnmálalegar breytingar, sem mætti svo sem vera gæsalappalaus lýsing á þeirri ráðstöfun að setja þjóð nýja stjórnarskrá. Sú hugsjón er helsta ætlunarverk karlmanna vikunnar, Gunnhildar Örnu Hallgrímsdóttur og Óskar Elfarsdóttur, sem eru að vesenast í ríkjandi ástandi með því að dæla út vel heppnuðum áróðri á samfélagsmiðlum og svo sem á götum bæjarins sömuleiðis, en áróðurinn  lýtur allur að því að vekja fólk til vitundar um nýju stjórnarskrána, sem var skrifuð árið 2011, kosin árið 2012 og svo hunsuð alla tíð síðan. 

    Þetta plagg á að vera fært um að breyta samfélaginu mjög til batnaðar, aðeins ef vilji ráðamanna stæði til að færa það í nyt. Það gerir hann ekki, heldur er þetta vandræðabarn hálfgert, því að fólkið vill þetta, en stjórnmálamennirnir ekki. Eða alla vega vinstrisquad.. Skoðanirnar eru að sjálfsögðu skiptar. Fræðist! 

    Skoðanabræður eru á Útvarpi 101 og þeir þiggja styrki og áskriftir á Patreon, þeim ágæta vettvangi.

    1 hr 15 min
  • #69 Þegar Instagram myndir tanka, kvaðir listamanna og heitar þýskar gellur

    „We were in the jungle, there were too many of us, we had access to too much money, too much equipment, and little by little we went insane“

    Innihald orkudrykkja, að hætta drekka vegna þunglyndis, Jónas Hallgrímsson, Jón Gnarr, heitar þýskur gellur, að mæta í skóla og sigra, uppistandarar og rapparar í Covid, lögfræðingar, ofbeldi og hnífastungur í miðbænum, undirheimar, mafíósar, Samherji, epískar heimildarmyndir, ofgnótt peninga, vont samfélag, kvaðir listamanna ofl ofl!

    1 hr 9 min
  • #68 Skoðanir Frímanns Gunnarssonar

    Hashtag.

    Fremsti fjölmiðlamaður landsins sest á rökstóla með Skoðanabræðrum, sannkallaður karlmaður vikunnar. Frímann Gunnarsson hefur yfirgripsmikla þekkingu á öllu sem viðkemur list, menningu og æðri menntun og Skoðanabræðrum var sannast sagt farið að líða eins og þá væri farið að skorta þá vídd í þáttinn, að undangengnum viðtölum við „anarchists“ eins og Sölva Tryggvason eða „rappara“ á borð við Flóna eða Joey Christ.

    Frímann Gunnarsson er með þætti í sjónvarpinu ásamt því sem hann er að gefa út barnabók, Lárus og þankatröllin, og hann er hér beðinn að gera grein fyrir helstu sjónarmiðum.

    Framan af viðskotaillur en með tímanum þýður sem hinn viðkunnanlegasti maður. Setjið endilega virðingu á nafnið á www.patreon.com/skodanabraedur. Þetta er Útvarp 101, sem Frímann kannaðist vissulega ekki við.

    1 hr 34 min
  • #67 Skoðanir Sölva Tryggva

    Þrír karlmenn, allir PhD: Podcast having dudes. Sölvi Tryggva steig inn í leikinn og sigraði, það verður að segjast. En hvert er markmiðið með þessu hjá honum? Svarið er inni í þættinum! Vísbending: Í grunninn það sem hvetur alla PhD til dáða yfirleitt. Gasið! Það er markmið í sjálfu sér. Svo eru líka markmið eins og að fá Björgólf Thor í þáttinn og þar keppast Skoðanabræður við Sölva um hinn feita bita. Sjáum hver ber sigurorð af hverjum..

    Sölvi segir frá því þegar hann var rekinn af Stöð 2 í árslok 2008. Hann segir að það hafi verið þá sem hann missti sakleysi sitt sem fjölmiðlamaður og telur ljóst að uppsögnin hafi tengst því að hann hafi byrjað að „pönkast“ í lífeyrissjóðum. Góð veisla, fjölmiðlasaga sögð í fjölmiðlum.

    Þá segir Sölvi frá því þegar honum varð það á að láta Kára Stefánsson bíða. Það gerir maður víst ekki og Sölvi leið fyrir það. 

    Og að öðru leyti segir Sölvi frá því sem menn segja ekki frá í öðrum hlaðvörpum en Skoðanabræður þora á meðan aðrir þegja! Instagram, kvennamál og skegg hins íslenska karlmanns. Þetta eru verðug umræðuefni enda snerta þau okkur öll. Farið á www.patreon.com/skodanabraedur - veislan er á vegum Útvarps 101.

    2 hr 30 min
  • #66 HEITT og KALT á djamminu 1990: 19 atriði

    Besti bræðralagsþáttur allra tíma, segir Bergþór. Stóru orðin... þau eru auðvitað síst til þess að spara þau. 90 mínútur af veislu, umgjörð hverrar er listi frá árinu 1990 yfir hluti sem eru annars vegar inn og hins vegar out á vettvangi skemmtanalífs. Segir sig sjálft að umdeild atriði eins og kynlíf, hugleiðsla og hip hop verða kveikjur að hágæðagasi fyrir hlustendur. Hvað þá jakkaföt, stjórnmálamenn og lögreglan? Hér á hlaðvarpsveitum fáið þið 40 mínútur, en á Patreon eru 90 mínútur. www.patreon.com/skodanabraedur. Þægilegasta app í heimi.

    1 hr 29 min
  • #65 Skoðanir Joey Christ og Lóu Bjarkar

    Eins og Lóa orðar það vel: Fara í Skoðanabræður og eyðileggja mannorð sitt. Í þeirri feigðarför hennar eru Skoðanabræður ekki meira en auðmjúkir verkefnastjórar, þeir taka á móti henni og skapa umgjörð fyrir hana til þess að veitast með skipulegum hætti að eigin orðspori. Hvernig fer maður að því? Með orðum! Orð.. lengi hef ég haft á þeim illan bifur, sagði skáldið, og fleiri mættu tileinka sér, þeirra á meðal, Skoðanabræður.

    Jóhann er meðreiðarsveinn og hefur fyrir sitt leyti einnig upp viðleitni til áþekkra fyrirætlana og Lóa sjálf lýsir. Að tala í útvarp yfirleitt er enda auðvitað bara birtingarmynd dauðans. Þetta fólk er sem betur fer vant. Það var með Tala saman hér á árum áður á Útvarpi 101, framleiddi þar gæðagas á ljósvakanum dagsdaglega um hríð, og færir nú út kvíarnar úr hljóði í mynd. Þáttur á Stöð 2 í kvöld, er það sem ég á við. (Hver er ég-ið í textanum (hefur sögumaðurinn þegnrétt í lýsingu á hlaðvarpsþætti (uss, dreptu þig))). 

    PC-ismi, stéttaskipting, Free The Nipple, rasismi, raunhæf markmið í lífinu og eintómur sannleikur opinberaður í hvívetna, svo sem er Skoðanabræðra von og vísa og ekki síður viðmælenda þeirra, þar sem er valinn maður í hverju rúmi. Farið á www.patreon.com/skodanabraedur og leggið þessari tilberastarfsemi lið. Útvarp 101, vettvangur fólksins.

    2 hr 19 min
  • #64 Skoðanir Egils Ástráðssonar

    Egill Ástráðsson. Sterkt norrænt einnefni eins og bræðralagið vill hafa það. Hann er hinn sterki norræni maður (íslenskur með alskegg) og hefur lengi átt erindi inn í gasklefa Skoðanabræðra þó að hann hafi af ýmsum sökum ekki ratað þangað fyrr en nú. Hann er umboðsmaður, atvinnumaður í veseni og meðal stofnenda Útvarps 101, 101 Studios og 101 Sambandsins og hver veit hvers meira. Allt auðvitað bendlað við hálfbannsett póstnúmer, sem nú hefur þó fengið uppreist æru, eins og Egill segir: „Þetta lattelepjandi 101, mér finnst það alveg búið.“ Orðræðugreining! Meðal sérsviða Skoðanabræðra. Að þessu sinni með fulltingi þessa góða „sæmilega hamingjusama hvíta karlmanns í hamingjusömu parsambandi.“ Og bíðið þar til farið er að ræða um FreeTheNipple.

    Skellið ykkur á www.patreon.com/skodanabraedur og djúsinn, hann er að öðru leyti á vegum Útvarps 101.


    1 hr 34 min
  • #62 Skoðanir Steineyjar Skúladóttur
    www.patreon.com/skodanabraedur
    Snorri drakk fimm bjóra í stúdíóinu. Fyrirgefið það innilega.
    Hvaða eiturlyf hefur Steiney Skúladóttir tekið? Hvenær tók hún þau? Hvers vegna? 
    Stórum spurningum er svarað - ásamt ítarlegum umræðum um sálfræðinga, forréttindi, femínisma, RÚV, dagskrárgerð ofl ofl.
    2 hr 34 min

About Skoðanabræður

From the publisher's feed

www.patreon.com/skodanabraedur

More shows like Skoðanabræður

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners