Skoðanabræður

Skoðanabræður

By Bergþór MássonEducationSelf-Improvement
Download on the App Store

Skoðanabræður episodes

  • #61 Skoðanir Högna Egilssonar

    Það eru hálfgerð helgispjöll að fara um þennan þátt mörgum orðum enda orð ekki nema ómerkileg tilraun til þess að flækja veruleikann með merkingu. Veruleikinn er nefnilega til sjálfstætt og orðalaust, eins og í músík. Þar er veruleikinn þó saga og tónlistin er saga, sem er ofin úr efni goðsagna, stórsagna, mýta þeirra sem erfðaefni mannsins trúir á í blindni. Og ekki furða að maðurinn trúi, þessar sögur eru Sannleikurinn, ef hann er einhvers staðar til.

    Allt ofangreint kemur efnislega fram í þættinum, svona ef einhver hingaðkominn í textanum kynni að velta vöngum yfir því hvaða vegferð höfundur væri á. Listamaðurinn á bak við hugsunina er Högni Egilsson, stundum kenndur við Hjaltalín, einnig meðlimur um tíma í Gus Gus, nú tónskáld og alvarlega mikill almennur kóngur. Hann mætir til Skoðanabræðra að kvöldlagi, tekur við embætti karlmanns vikunnar og leggur línurnar fyrir þeim, svo ekki sé sagt að hann skilgreini heiminn upp á nýtt. Hann talar allavega, ræðir listina, lífið, útlönd, geðhvörf, Kanye West, íslenska tungu, rapp, og þar fram eftir götum, eins og taka mætti til orða ef eitthvað mætti ráða af undangenginni runu hvað kæmi næst á eftir rappi.

    Og þegar gengið er út úr hljóðveri eftir þáttinn er verulega tekið að rökkva enda komið vel fram á júlí, dimmblár hálfhringur, sagði skáldið, en áréttaði: Innan hans, nándir hausts.

    Farið í Patreon-appið og þar á www.patreon.com/skodanabraedur og komið um borð í veisluna. Fullt af þáttum þar sem eru ekki á hlaðvarpsveitum. Veislan, hún er sköpuð innan vébanda Útvarps 101.

    1 hr 53 min
  • #60 Eftirsóttustu skeggsveinarnir á Íslandi

    Eftirsóttustu piparsveinar landsins teknir fyrir af sérstöku tilefni enda skeggjaður maður á meðal þeirra. Þetta er hans yfirlýsing. Bræðralag! Njótið þáttarins þið sem eigið það skilið. www.patreon.com/skodanabraedur. Þessir eru eftir: Ein­ar Ágúst Víðis­son , Björn Ingi Hrafns­son, Magnús Sig­ur­björns­son, Högni Eg­ils­son, Hall­dór Karls­son, Snorri Más­son, Pét­ur „Jesús“ Örn Guðmunds­son, Helgi Jean Claessen og Sölvi Tryggva­son.

    1 hr 4 min
  • #59 Skoðanir Kristínar Tómasdóttur

    Að vinna við að láta fólk hætta saman… hljómar skynsamlega. Gæti verið á vegum borgaryfirvalda, þú mætir á vettvang og birtir pörum opinberan úrskurð þess efnis að þeirra ástarsambandi sé þar með lokið. Fróður maður lagði eitt sinn til að embætti á borð við þetta yrði stofnað í Reykjavík en það var við dræmar undirtektir pólitíkurinnar. Þetta er enda ekki endilega rétta leiðin til þess að koma því til leiðar í samfélaginu að aðeins séu viðhafðar réttlætanlegar ástir eða að fólk sé aðeins í heilbrigðum samböndum. Það er ekki hlutverk neins að láta fólk hætta saman, þó að þörfin geti virst skerandi í sumum tilvikum, heldur þarf fólk að fatta það sjálft. En hvernig fattar sá eitthvað, sem fattar augljóslega ekki neitt? Með aristótelískri samtalsrunu við Kristínu Tómasdóttur hjónabandsráðgjafa auðvitað, sem er nefnd til sögunnar hér í þessum kynningartexta að undangengnu alllöngu máli um ofangreint vandamál. Það er þó ekki að ófyrirsynju sem gerð er viðhlítandi grein fyrir vandamálinu enda er það risavaxið, en Kristín hefur sérstaka sögu af því að segja. Hún valdi sér starfsvettvang vegna þess að hún vildi starfa við að segja fólki að hætta saman, en komst fljótlega að raun um að önnur eins iðja væri fjarri því hluti af starfslýsingunni. Nema síður væri.. hún er í því að láta fólk halda áfram að vera saman, augljóslega.

    Innsýn í þetta og margt fleira, eins og ástæðurnar fyrir því að sambandið þitt er ekki góð hugmynd, í þessum vel þrungna þætti af Skoðanabræðrum. Til dæmis: Hvernig finnur rúmlega tvítug manneskja lífsförunaut? Og já! Patreon. Fáðu þér appið og fáðu aðgang að endalaust af Skoðanabræðrum. Djúsinn er á vegum Útvarps 101.

    1 hr 29 min
  • #58 Skoðanir Geoffrey Huntingdon-Williams

    Kosningar á næsta leiti… til embættis næturborgarstjóra, bitch! Afsakið munnsöfnuðinn og dæmið hann ómarktækan, en þið takið ekki af manninum embættið. Það er að vísu ekki til enn sem komið er en hvað um það. Spurningin er þessi: Hvað er að reka konunglegasta stað landsins, er það í grunninn að þrífa ælu og túrblóð í brotnu glasi ofan í klósetti eða er það að starfa daglega að þeirri göfugu hugsjón að gera Reykjavík að betri borg og Ísland að betra samfélagi og lífið að meiri veislu. Svarið, og hér ætti að standa hlustaðu á þáttinn til þess að komast að því hvað gerist, en það gerir það ekki, þannig að það stendur, svarið er að þetta eru tvær ár sem renna að sama ósi. En til þess að skilja hvernig, hlustaðu á þáttinn!

    „Ég nenni ekki að tala um neina fokking rýrnun“ er dæmi um quote í Geoff í þættinum, sem, ef þér vituð ekki enn, rekstrarstjóri Priksins.

    Skoðanabræður. Farðu inn á www.patreon.com/skodanabraedur til að fá þættina áður en þeir koma opinberlega og til að fá tvo sérstaka gasþætti í hverjum mánuði.

    1 hr 45 min
  • #56 Skoðanir Benedikts Andrasonar

    www.patreon.com/skodanabraedur

    Talandi um leikinn, hér er máttarstólpi. Karlmaður vikunnar er Benedikt Andrason, Benni Andra semsagt. Jafnvígur á þónokkra veruleika og hliðarveruleika, graff, tattú, dópshit og á þeim nótum, laxveiðar. Nokkrar ár sem renna að sama ósi, eins og maðurinn sagði. Hér, veitt innsýn inn í þessa leiki og við sögu koma dauða- og lífsreynslur sem eiga sér jafnt stað á vettvangi íslenskra laxveiðisvæða sem í lestarskemmum að næturlagi í Berlín. Maðurinn á alltaf í hættu að týna lífi, þannig að það er um að gera að kveikja á þættinum áður en svo fer

    Viðtalið hefst á mínútu 22.30. Samhengislaust quote: „Jakob Frímann, þegar hann var í borgarstjórn, þá fór hann í hardcore stríð gegn veggjakroti.“ 

    1 hr 58 min
  • #55 Skoðanir Andreu Rafnar

    Það er ekki óskiljanlegt að sá sem gerir tilraun til þess að byrja að æfa fótbolta of seint og lendir í trámatísku áfalli og allsherjarhöfnun verði varanlega fráhverfur íþróttahreyfingunni til lengri tíma í kjölfarið og leggi sig jafnvel í líma við að kasta rýrð á hana og beiti í því skyni fyrir sér sínu persónulega hlaðvarpi. Skoðanabræður opna sig um þetta, en það er ekki aðalmálið. Andrea Röfn Jónasdóttir, bloggari, módel og svei mér þá áhrifavaldur, er karlmaður vikunnar og fer yfir aðalmálin með bræðrum: Áhrifavaldaleikinn, skoðanaleikinn, bloggleikinn, tískuleikinn og svo auðvitað barnaleikinn. Loks einnig fótboltaleikinn, sem Andrea er lofuð inn í. Innsýnin sem fæst þaðan er verðmæt og setur ofangreint tráma í mildara samhengi, en getur síst talist fullkomið mótefni. Það finnst aldrei. Djúsinn, á vegum Útvarps 101, og grundvöllurinn á www.patreon.com/skodanabraedur.

    1 hr 29 min
  • #54 Stóra smáhýsamálið, kitla

    Stökkvið um borð í bræðralagið til að gangast á hönd hinum eina og sanna djús. Hér er átt við www.patreon.com/skodanabraedur, þar sem aðgangur fæst að tvívikulegum alvöru Skoðanabræðraþáttum, víðsfjarri ráðamönnum þjóðarinnar og þeirra formlegheitahjali. Sannleikur, eins og þar heitir.

    1 hr 13 min
  • #53 Skoðanir Guðna Th. forseta Íslands

    „Ég hvet öll ungmenni til þess að fylgja eigin sannfæringu. Ekki láta einhverja áhrifavalda segja þér hvað þú átt að hugsa, hvað þú átt að kaupa, hvað þú átt að gera. Vertu þú sjálf, vertu þú sjálfur. Ekki láta plata þig,“ segir Guðni Th. Jóhannesson forseti. Það fékkst ekki meiri svívirðing á nöfn áhrifavalda, sama hvað var reynt. Sjálfur er Guðni á Fésbók eins og hann kallar hana. Hann segist ekki telja „læk“-in, en er meðvitaður um að þau gætu verið fleiri. „Ég kann ágætlega við Fésbók. Ég hef reyndar farið þar líka þá braut að birta vikupistla sem mér skilst að brjóti öll lögmál um lengdir. Í einhverjum samfélagsmiðlafræðum eiga statusar að vera stuttir og hnitmiðaðir og frekar oft heldur en sjaldan en ég kann ágætlega við að hafa þá meginreglu að birta pistla vikulega þar sem ég fer yfir mín embættisstörf í liðinni viku. Ég veit að ég gæti fengið fleiri læk ef ég stytti pistlana og hefði þá fleiri,“ sagði Guðni. Þetta er bara brot af þeirri veislu sem fer fram í samtali við karlmann vikunnar, ýtið á play og hefjið aðildina. Og styrkið! Á www.patreon.com/skodanabraedur. 

    1 hr 4 min
  • #52 Skoðanir Helga Seljan & Aðalsteins Kjartanssonar
    www.patreon.com/skodanabraedur
    Skoðanabræðraskjölin.. bjóðið velkomna ástsælustu blaðamenn þjóðarinnar, eins og maðurinn sagði, Kveiksmenn. Aðalsteinn Kjartansson og Helgi Seljan ganga fúsir inn í gasherbergið á Hverfisgötu og leysa frá skjóðunni. Að því marki sem þeir mega hafa skoðanir, hvað finnst þeim um kvótakerfið? Ekkert sérstakt, eins og kemur fram, og hverjum er ekki sama um kvótakerfið! Fólk veit ekki muninn á botnfiski og uppsjávarfiski, þó að það reyndar læri það hér. Þátturinn er þó ekki um þetta heldur um mútur, spillingu, svik, veislu, blaðamennsku, fjölmiðla, pólitík og þar fram eftir götum. Í öllu falli.. squadið í samhengi, The Four Horsemen of the Apocalypse segir á engilsaxnesku þar sem heitir í íslenskum bókum verurnar fjórar. Frekar óáhrifarík íslensk þýðing sem geldir vísunina nánast alfarið, en það er önnur saga.
    1 hr 39 min

About Skoðanabræður

From the publisher's feed

www.patreon.com/skodanabraedur

More shows like Skoðanabræður

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners