
Sign up to save your podcasts
Or


www.patreon.com/skodanabraedur
Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Saltverk, Stjörnugrís, World Class og Silkisvefn.
Skoðanabræður klassík. Óttalausi leiðtoginn og spekingurinn Hjörvar Hafliðason mætti í þáttinn október 2021. Tímalaus epík. Njótið vel kæra bræðralag.
www.patreon.com/skodanabraedur
Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís, Saltverk & World Class.
Lífsreglurnar fjórar er bókin sem gæti frelsað þig kæri hlustandi. Við Aron Kristinn Jónasson söngvari með meiru höfum báðir lesið hana milljón sinnum og getum með mikilli staðfestu sagt: Þetta er bókin.
Í þessum þætti förum við í gegnum bókina og reglurnar fjórar sem hún leggur til þess að þú lifir eftir. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.
Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís og Saltverk.
Joan Didion skrifaði skýrt og fallega. Hún kjarnaði 60s í Kaliforníu og tjúnaði sig inn í hjarta Ameríku á sínum 70 ára rithöfundaferli. Hérna er farið yfir hennar vision, pælingar og áhrif. Hún byrjaði mikið af þessu sem við þekkjum vel í dag og hefur m.a inflúensað Lana Del Rey sérstaklega. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.
Styrktaraðilar þáttarins: Myntkaup, Stjörnugrís & Saltverk.
Magnús Jóhann er tónlistarmaður sem hefur byggt upp sérstakt vörumerki úr sjálfum sér. Hann nördast í sinni eigin experimental instrumental tónlist á sama tíma og hann aðstoðar poppara landsins við smellagerð. Með því að blanda þessu saman hefur hann unnið sér inn frelsi til þess að skapa, sigra og vera hann sjálfur. Þessi þáttur fjallar um hans vision. Guð blessi ykkur kæra bræðralag.
www.patreon.com/skodanabraedur
Lukka Pálsdóttir er frumkvöðull og heilsufrömuður. Hún er búin að vera að pæla í þessu í áratugi. Hérna förum við í gegnum hennar vitsmunalegu þróun, hvernig hugmyndir hafa komið, næringafræði, vísindi, grænmeti og kjöt.
Ef þig langar til þess að fræða þig um hvernig maður eigi að borða og halda heilsu þá er þessi þáttur fyrir þig.
Haraldur Erlendsson geðlæknir og visionary snillingur mætir í þáttinn. Við tölum um hvað það er að vera geðveikur, afhverju fólk er hrætt við Guð, Carl Jung & Sigmund Freud, sameiginlega þætti norrænar, grískrar og indverskrar goðafræði, ADHD & elvanse, geðrof, hugvíkkandi efni og framtíð þeirra.
Guð er snillingur!
www.patreon.com/skodanabraedur
Þessi þáttur er með skýran ásetning: Að fá þig, kæri hlustandi, til þess að gleypa appelsínugulu pilluna og uppgötva undursemdina sem Bitcoin er.
Þetta er fyrir the tourist and the purist. Þú þarft ekki að vita neitt um peninga eða Bitcoin til þess að njóta. Gakktu inn með opinn huga og þú munt sannarlega fá að vita fullt um peninga og Bitcoin.
Eiríkur Magnússon, einnig þekktur sem Ishmael á X, er einn helsti talsmaður austurrískrar hagfræði og Bitcoin á Íslandi. Hann starfar sem forritari í Kaupmannahöfn.
Þátturinn er strúktúreraður þannig að fyrst tölum við um hvað peningar eru, síðan er það Bitcoin, og síðan er það austurríska hagfræðin.
Bækur sem eru nefndar:
The Bitcoin Standard - Saifedean Ammous.
Principles of Economics - Saifedean Ammous.
Man, Economy, and State with Power and Market - Murray Rothbard.
Jack Mallers í podcastinu hans Rick Rubin (Tetragrammaton).
Guð blessi ykkur kæra bræðralag.
Í byrjun árs 2024 hafði Gunnar Jörgen samband við mig og spurði hvort ég hefði áhuga á því að umturna lífi mínu. Ég svaraði játandi - og þá hófst svakaleg svaðilför.
Til að byrja með hlustuðum við á bókina Change Your Paradigm, Change Your Life eftir Bob Proctor 30 mín á dag 60 daga í röð og töluðum saman í símann á hverju kvöldi um bókina.
Síðan tókum við 110 daga hugleiðsluprógrammið Awakening The Heart Vol. 1. Ein hugleiðsla á dag og alltaf símtal á kvöldin. Eftir það lásum við 30mín í bókinni The Incredible Reality of You 90 daga í röð og héldum áfram að tala í símann á hverjum degi. Síðan tók Awakening The Heart Vol. 2 við. Við kláruðum það núna í desember.
Öll þessi prógröm hafa sannarlega breytt lífum okkar beggja og í þessum þætti greinum við frá þessum breytingum.
Finnið Gunnar Jörgen á TikTok: @gunnar.heartfeltservices
Bók desembermánaðar er hin eina sanna Ilíonskviða. Hómer skrifaði þessa epík fyrir 2800 árum. Gjörsamlega undursamlegt! Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir okkur í dag?
Vendum kvæði okkar í kross í janúar, bók mánaðarins er:
Play It As It Lays eftir Joan Didion
Þingmaðurinn Snorri mætir aftur inn ferskur á kanti. Þema þáttarins er vitsmunalegt og andlegt frelsi - hvernig öðlast maður slíkt? Þar að auki er hið stóra ár 2024 gert upp. Menn ársins tilkynntir.
Guð blessi ykkur kæra bræðralag. Eina sem við vitum er að við vitum ekki neitt. Gleðilegt nýtt ár. Megi 2025 færa ykkur miklar blessanir.
From the publisher's feed

139 Listeners

214 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

90 Listeners

17 Listeners

17 Listeners

68 Listeners

30 Listeners

28 Listeners

21 Listeners

20 Listeners

14 Listeners

25 Listeners

10 Listeners