Sögur af landi

Sögur af landi

By RÚV
Download on the App Store

Sögur af landi episodes

  • Heimsóknir í Minjasafnið á Austurlandi og Hallormsstaðaskóla
    Það má segja að sjálfbærni sé rauður þráður í gegnum efni þáttarins. Við heimsækjum Safnahúsið á Egilsstöðum og forvitnumst um sýninguna Sjálfbær eining sem er ein af fastasýningum Minjasafns Austurlands. Það er Elsa Guðný Björgvinsdóttir safnstjóri Minjasafnsins sem segir frá. Því næst höldum við í heimsókn í Hallormsstaðaskóla og ræðum þar við Bryndísi Fionu Ford skólameistara og Dagrúnu Drótt Valgarðsdóttir, en Dagrún er ein af nemendum skólans og hefur í gegnum nám sitt þróað ýmsar drykkjarvörur og vinnur núna að því að nýta köngla úr skóginum til að gerja drykkina. Öll viðtölin í þættinum voru tekin þegar umsjónarmaður Sagna af landi fór í ferðalag um Austurland í janúar 2023.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Djúpivogur, Breiðdalsvík og Stöðvarfjörður
    Í janúar 2023 fór umsjónarmaður Sagna af landi í ferðalag um nokkra firði Austurlands. Við hefjum ferðalagið á Djúpavogi þar sem við lítum í kaffi til þeirra Willam Óðins Lefever og Grétu Mjallar Samúelsdóttur, sem reka þar fyrirtæki sem býr til sterkar sósur. Því næst er ferðinni heitið á Breiðdalsvík þar sem við hittum hjónin Helgu Hrönn Melsteð og Ingólf Finnsson, sem reka bifreiðaverkstæði og ferðaþjónustu auk þess að sinna sjúkraflutningum. Já það eru margir hattar á þeim hjónum. Að lokum förum við til Stöðvarfjarðar og fræðumst um Sköpunarmiðstöðina, listamiðstöð sem byggðist upp í gamla frystihúsinu niðri við höfnina og laðar núna að skapandi fólk úr öllum áttum og öllum heimshornum. Við ræðum við Unu Sigurðardóttur og Lukasz Stencel.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Borðeyri við vestanverðan Hrútafjörð
    Borðeyri er eitt fámennasta þorp landsins en þar búa um 10 íbúar. Í þættinum er flakkað um þetta litla þorp sem er eins og gluggi inn í liðna tíð. Við ræðum meðal annars við sagnfræðinginn Vilhelm Vilhelmsson sem hefur kynnt sér náið sögu Borðeyrar, ræðum einnig við Kristínu Árnadóttur íbúa á Borðeyri um elsta hús plássins, svokallað Riis-hús. Sláum svo á þráðinn til tónlistarkonunnar Ásbjargar Jónsdóttur en fjölskylda hennar hefur undanfarið unnið að endurbótum á einu hússanna á staðnum. Að lokum flökkum við um gistiheimilið Tangahús í fylgd með gestgjafanum Ingibjörgu Rósu Auðunsdóttur.
    Þátturinn var fyrst á dagskrá 18. nóvember 2022.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Sjóslys á Halamiðum
    Við rifjum upp sjóslysið þegar Krossnes SH-308 frá Grundarfirði fórst á Halamiðum en þann 23. febrúar 2022 voru þrjátíu ár síðan togarinn fórst. Níu menn komust lífs af en þrír fórust í slysinu. Hafsteinn Garðarsson var skipstjóri á Krossnesi þegar skipið fórst. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir settist niður með Hafsteini, sem starfar nú sem hafnarstjóri í Grundarfirði, sem rifjaði upp þessa örlagaríku ferð. Þátturinn var áður á dagskrá 22. apríl 2022.
    Efni í þáttinn vann Elsa María Guðlaugs Drífudóttir. Halla Ólafsdóttir setti saman.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Söguskilti um Jón lærða, framtíðin í Reykhólahreppi og Edinborgarhúsið
    Við verðum að mestu á Vestfjörðum í þætti dagsins. Heyrum af framtíðarsýn ungmenna í Reykhólahreppi, það eru þau Kristján Steinn Guðmundsson fulltrúi í ungmennaráðinu og Jóhanna Ösp Einarsdóttir tómstundafulltrúi sem segja frá. Við fræðumst líka um starfsemi Edinborgarhússins á Ísafirði þegar Ingi Björn Guðnason leiðir okkur um húsið. En við byrjum hins vegar á Austurlandi. Þar fræðumst við um verkefni sem Rótarýklúbbur Héraðsbúa hefur staðið að, sem er að setja upp söguskilti nærri búsetustöðum Jóns lærða á Austurlandi, til minningar um sögu hans og verk. Það er Stefán Þórarinsson fyrrverandi læknir á Egilsstöðum sem segir frá.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Ágúst Ólafsson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Hvernig útsýnisskífa verður til
    Þáttur dagsins er helgaður útsýnisskífum, eða hringsjám eins og þær eru líka kallaðar, og gerð þeirra. Í byrjun september fóru nokkrir félagar í Ferðafélagi Borgarfjarðarhéraðs í leiðangur upp á topp Hafnarfjalls. Tilgangurinn var að gera mælingar og skyssur fyrir útsýnisskífu sem stendur til að koma fyrir efst á fjallinu. Með í leiðangrinum var Jakob Hálfdanarson og aðstoðarmaður hans en Jakob hefur komið að gerð ótal útsýnisskífa sem finna má um allt land. Í þættinum er rætt við Jakob um þá vinnu sem liggur að baki einni útsýnisskífu. Einnig segir Jakob frá áratugalöngum ferli sínum hjá Vegagerðinni.
    Þátturinn var frumfluttur 25. nóvember 2022.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Skjaldborgarbíó og heimsókn í Fljótsdal
    Við verðum á Vestfjörðum og Austurlandi í þætti dagsins. Ágúst Ólafsson brá sér á Patreksfjörð og forvitnaðist þar um Skjaldborgarhúsið, þar sem rekið er kvikmyndahús og er Lionsklúbburinn á staðnum helsti bakhjarlinn. Það er Davíð Rúnar Gunnarsson sem segir frá húsinu. Því næst er ferðinni heitið í Fljótsdalinn þar sem við fáum að kynnast rekstri ólíkra fyrirtækja. Rúnar Snær Reynisson heimsækir fyrirtækið Skógarafurðir og forvitnast um starfsemi þess hjá Bjarka M. Jónssyni. Að lokum skoðum við starfsemi Holts og heiða, sem framleiðir ýmiss konar matvöru. Það er Bergrún Arna Þorsteinsdóttir sem segir frá.
    Efni í þáttinn unnu Ágúst Ólafsson, Rúnar Snær Reynisson og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Hólmfríður Vala á ferð yfir Grænlandsjökul
    Við sláumst í för með Hólmfríði Völu Svavarsdóttur í átta manna leiðangur yfir Grænlandsjökul sem tók 31 dag. Við heyrum ferðasöguna og heyrum brot úr dagbókarfærslum Hólmfríðar Völu á jöklinum en hún tók upp á símann sinn það sem á daga hennar dreif. Þátturinn var fyrst á dagskrá 3. júní 2022.
    Tónlistin í þættinum er með grænlensku hljómsveitinni Nanook og tæknimaður þáttarins var Lydía Grétarsdóttir.
    Efni í þáttinn vann Halla Ólafsdóttir og Hólmfríður Vala Svavarsdóttir.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    50 min
  • Á slóðum Moniku á Merkigili
    Þáttur dagsins er helgaður alþýðuhetjunni Moniku Helgadóttur og heimaslóðum hennar, Merkigili í Austurdal í Skagafirði. Sögu Moniku þekkja margir. Bóndinn, ekkjan, íslenska sveitakonan sem bjó ásamt átta börnum sínum, sjö dætrum og einum syni, á afskekktum bæ í innsveitum Skagafjarðar, í Austurdal, þar sem Austari-Jökulsá rennur straumþung niður. Hrikaleg gljúfur og gil einkenna landslagið og samgöngur að bænum voru erfiðar, jafnvel lífshættulegar, sérstaklega þegar farið var um hið hrikalega Merkigil, gilið sem bærinn er kenndur við. Á þessum afskekkta stað byggði Monika upp myndarlegt bú og varð landsþekkt og dáð, sérstaklega eftir að ævisaga hennar, Konan í dalnum og dæturnar sjö, eftir Guðmund G. Hagalín kom út árið 1954, þegar Monika var aðeins 53 ára gömul. Þátturinn var áður á dagskrá 2. september 2022.
    Viðmælandi er Ingibjörg Elín Jónasdóttir, leiðsögumaður.
    Í þættinum hljóma brot úr:
    Kona er nefnd, viðtal Indriða G. Þorsteinssonar við Moniku frá árinu 1973.
    Konan í dalnum, viðtal Guðrúnar Guðlaugsdóttur við Moniku frá árinu 1981.
    Konan í dalnum og dæturnar sjö eftir Guðmund G. Hagalín, útvarpssaga í flutningi Sigríðar Hagalín leikkonu frá árinu 1988.
    Í lok þáttar er lesið stutt brot úr eftirmála ævisögu Moniku frá árinu 2017.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min

About Sögur af landi

From the publisher's feed

Landsbyggðin, höfuðborgin og allt þar á milli.