Sögur af landi

Sögur af landi

By RÚV
Download on the App Store

Sögur af landi episodes

  • Clyne Castle. Verksmiðjan í Djúpuvík. Leikfangasöfnun.
    Í þætti dagsins er endurflutt efni frá 2020 og 2011. Rætt var við Ólafíu Herborg Jóhannsdóttur sem eignaðist bréfabunka ömmu sinnar þegar hún var ung og hefur árum saman grúskað í þeim og skrifað sögu hennar, Herborgarsögu. Þá hefur hún safnað heimildum um tilraunir afa síns, Valdórs Bóassonar, til að ná togaranum Clyne Castle á flot, en sá togari strandaði í apríl árið 1919 á Bakkafjörum í Öræfum. Auk þess verður rifjað upp viðtal Péturs Halldórssonar við Skúla Alexandersson, sem fæddist í Kjós í Reykjarfirði á Ströndum 1926. Skúli rifjar upp þegar síldarverksmiðjan reis í Djúpuvík og þegar hún var starfandi. Viðtalið var upphaflega flutt í þættinum Við sjávarsíðuna í desember 2011. Að lokum heyrum við í Inga Hans Jónsson í Grundarfirði á Snæfellsnesi en hann er einn upphafsmanna Sögumiðstöðvarinnar þar í bæ, sem er allt í senn sögusafn, bókasafn, upplýsingamiðstöð og bíósalur. Ingi Hans segir frá þeim örlagadegi, þegar hann fann á fullorðinsárum draumabíl æsku sinnar á ferðalagi í Kanada. Það var fyrsta skrefið að því að hann hóf að sanka að sér leikföngum úr æsku sinni og endurbyggði hina sögufrægu Þórðarbúð í Grundarfirði. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    52 min
  • Clyne Castle. Verksmiðjan í Djúpuvík. Leikfangasöfnun
    Í þætti dagsins er endurflutt efni frá 2020 og 2011. Rætt var við Ólafíu Herborg Jóhannsdóttur sem eignaðist bréfabunka ömmu sinnar þegar hún var ung og hefur árum saman grúskað í þeim og skrifað sögu hennar, Herborgarsögu. Þá hefur hún safnað heimildum um tilraunir afa síns, Valdórs Bóassonar, til að ná togaranum Clyne Castle á flot, en sá togari strandaði í apríl árið 1919 á Bakkafjörum í Öræfum.
    Auk þess verður rifjað upp viðtal Péturs Halldórssonar við Skúla Alexandersson, sem fæddist í Kjós í Reykjarfirði á Ströndum 1926. Skúli rifjar upp þegar síldarverksmiðjan reis í Djúpuvík og þegar hún var starfandi. Viðtalið var upphaflega flutt í þættinum Við sjávarsíðuna í desember 2011.
    Að lokum heyrum við í Inga Hans Jónsson í Grundarfirði á Snæfellsnesi en hann er einn upphafsmanna Sögumiðstöðvarinnar þar í bæ, sem er allt í senn sögusafn, bókasafn, upplýsingamiðstöð og bíósalur. Ingi Hans segir frá þeim örlagadegi, þegar hann fann á fullorðinsárum draumabíl æsku sinnar á ferðalagi í Kanada. Það var fyrsta skrefið að því að hann hóf að sanka að sér leikföngum úr æsku sinni og endurbyggði hina sögufrægu Þórðarbúð í Grundarfirði.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Hús og fólk á Eyrinni, handverkskona og sögur sunnan jökla
    Við hefjum þáttinn á ferðalagi um Oddeyrin á Akureyri og forvitnumst um fyrirhugaða bók um hús og fólk á Eyrinni. Þau Kristín Aðalsteinsdóttir og Arnór Bliki Hallmundsson standa að verkefninu. Því næst er ferðinni heitið til handavinnukennarans og leiðsögumannsins Ragnheiðar S. Jóhannsdóttur á Hvammstanga sem býður upp á handverksferðir og námskeið fyrir erlenda ferðmenn. Að lokum verður flutt brot úr þættinum Sunnan jökla frá 1979 í umsjón Magnúsar Finnbogasonar þar sem rætt er við þá Sigurð Eggertsson á Efri Þverá í Fljótshlíð og Þráinn Þorvaldsson í Oddakoti um ungmennafélög á svæðinu.
    Efni í þáttinn unnu Þórgunnur Oddsdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Kvenfélagið Eining, Mótorhjólasafn, síðasta aftakan á Austurlandi
    Ýmiskonar grúsk verður til umfjöllunar í þætti dagsins. Við byrjum á að slá á þráðinn til kvenfélagskonunnar Margrétar Tryggvadóttur á Hvolsvelli og hún segir frá handverkssýningunni Margt verður til í kvennahöndum sem Kvenfélagið Eining setti upp í félagsheimilinu Goðalandi í Fljótshlíð.
    Við ferðumst einnig aftur í tímann og heyrum viðtal frá árinu 1979. Þar ræðir Magnús Finnbogason við Kristínu Guðmundsdóttur um starfsemi Kvenfélagsins Einingar en þá var Kristín formaður félagsins.
    Því næst er ferðinni heitið á Mótorhjólasafn Íslands. Þar segir Tómas Ingi Jónsson frá tilurð safnsins og nokkrum vel völdum safngripum.
    Að lokum er rætt við Ásgeir Hvítaskáld, rithöfund á Egilsstöðum, sem skrifað hefur skáldsögu um örlög ungs pilts sem var hálshöggvin árið 1786 og var það síðasta aftakan á Austurlandi.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Ágúst Ólafsson og Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Svavar Knútur, flutningar á Laugarbakka, búseta í Grímsey
    Við veltum fyrir okkur búsetu í þessum þætti. Við byrjum á að heimsækja söngvaskáldið Svavar Knút sem nýlega flutti ásamt fjölskyldunni til Akureyrar. Því næst er ferðinni heitið á Laugarbakka þar sem við hittum hjónin Ólínu Sófusdóttur og Einþór Skúlason sem nýlega fluttu á Laugarbakka og byggðu þar hús. Við heyrum líka í dóttur þeirra hjóna, Dagbjörtu Diljá Einþórsdóttur, sem var sú fyrsta úr fjölskyldunni að flytja á svæðið. Að lokum höldum við til Grímseyjar þar sem við hittum fyrir útgerðarmanninn Bjarna Reykjalín Magnússon sem ólst upp í Grímsey og vill búa þar áfram.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Óðinn Svan Óðinsson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Hvanneyri, Tónlistarskóli Borgarfjarðar, Háskólinn á Hólum
    Í þættinum verður forvitnast um starfsemi þriggja menntastofnana. Við heimsækjum fyrst Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Raghildur Helga Jónsdóttir aðjúnkt og safnstjóri Landbúnaðarsafns Íslands segir okkur frá staðnum og starfsemi safnsins. Því næst er ferðinni heitið í Tónlistarskóla Borgarfjarðar og ræðum þar við Árna Frey Jónsson tónlistarkennara en hann fer fyrir nýjum áfanga við skólann sem nýtir hljóðver sem hljóðfæri. Að lokum er ferðinni heitið á Hóla í Hjaltadal þar sem Hólmfríður Sveinsdóttir nýr rektor skólans segir okkur frá sjálfri sér og skólanum.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsóttir
    50 min
  • Skógfræðingurinn Hrefna Jóhannesdóttir og organistinn Torvald Gjerde
    Ævistarf tengir saman efni þáttarins, auk þess sem Noregur tengir viðmælendur þáttarins sterkt saman. Við byrjum í heimsókn hjá skógarbóndanum Hrefnu Jóhannesdóttur á Silfrastöðum í Skagafirði, en Hrefna ákvað snemma að gera skógræktina að sínu ævistarfi. Því næst kynnumst við organistanum og kórstjórnandanum Torvald Gjerde sem stendur nú á tímamótum eftir að hafa starfað sem organisti við Egilsstaðakirkju í rúm 20 ár.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Heilandi hljómplata, álfasetur og hjónin á Illugastöðum
    Við förum í þrjár heimsóknir í þættinum. Byrjum á að banka upp á hjá tónlistarkonunni Fanneyju Kristjáns Snjólaugardóttur sem nýverið gaf út sína aðra hljómplötu, því næst er ferðinni heitið á bæinn Arnarnes við utanverðan Eyjafjörð þar sem við hittum á Eygló Jóhannesdóttur en hún starfrækir þar gistiheimili og álfasetur. Að lokum bregðum við okkur að orlofsbyggðinni á Illugastöðum í Fnjóskadal og ræðum þar við hjónin Jón Þóri Óskarsson og Hlíf Guðmundsdóttir en þau hafa haft umsjón með orlofsbyggðinni frá því þau voru aðeins 19 ára gömul.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Ágúst Ólafsson og Þórgunnur Oddsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Á slóðum Moniku á Merkigili
    Þáttur dagsins er helgaður alþýðuhetjunni Moniku Helgadóttur og heimaslóðum hennar, Merkigili í Austurdal í Skagafirði. Sögu Moniku þekkja margir. Bóndinn, ekkjan, íslenska sveitakonan sem bjó ásamt átta börnum sínum, sjö dætrum og einum syni, á afskekktum bæ í innsveitum Skagafjarðar, í Austurdal, þar sem Austari-Jökulsá rennur straumþung niður. Hrikaleg gljúfur og gil einkenna landslagið og samgöngur að bænum voru erfiðar, jafnvel lífshættulegar, sérstaklega þegar farið var um hið hrikalega Merkigil, gilið sem bærinn er kenndur við. Á þessum afskekkta stað byggði Monika upp myndarlegt bú og varð landsþekkt og dáð, sérstaklega eftir að ævisaga hennar, Konan í dalnum og dæturnar sjö, eftir Guðmund G. Hagalín kom út árið 1954, þegar Monika var aðeins 53 ára gömul.
    Viðmælandi er Ingibjörg Elín Jónasdóttir, leiðsögumaður.
    Í þættinum hljóma brot úr:
    Kona er nefnd, viðtal Indriða G. Þorsteinssonar við Moniku frá árinu 1973.
    Konan í dalnum, viðtal Guðrúnar Guðlaugsdóttur við Moniku frá árinu 1981.
    Konan í dalnum og dæturnar sjö eftir Guðmund G. Hagalín, útvarpssaga í flutningi Sigríðar Hagalín leikkonu frá árinu 1988.
    Í lok þáttar er lesið stutt brot úr eftirmála ævisögu Moniku frá árinu 2017.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    51 min
  • Sumar: Húsmæðraskólinn Ósk og Hveragerðisskáldin
    Í þessum áttunda og síðasta sumarþætti Sagna af landi þetta sumarið ætlum við skyggnast aðeins aftur í tímann. Við höldum vestur á Ísafjörð því að í Tónlistarskóla Ísafjarðar hefur verið sett upp sýning um fyrra hlutverk hússins, um Húsmæðraskólann Ósk. Við hittum Albert Eiríksson sem vann að sýningunni og fyrrverandi nemanda skólans, Geirþrúði Charlesdóttur.
    Við höldum svo á flakk um Hveragerði. Síðasta vetur hitti Gígja Hólmgeirsdóttir sagnfræðinginn Njörð Sigurðsson sem segir meðal annars frá Hveragerðisskáldunum og öðru listafólki sem býr og hefur búið í Hveragerði.
    Efni í þáttinn unnu Halla Ólafsdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    50 min

About Sögur af landi

From the publisher's feed

Landsbyggðin, höfuðborgin og allt þar á milli.