Sögur af landi

Sögur af landi

By RÚV
Download on the App Store

Sögur af landi episodes

  • Sumar: För Hólmfríðar Völu yfir Grænlandsjökul
    Þessi sjöundi sumarþáttur Sagna af landi er helgaður einu viðfangsefni en við rifjum upp för Hólmfríðar Völu Svavarsdóttur yfir Grænlandsjökul.
    Hólmfríður Vala var í hópi átta leiðangursfara og gekk frá vesturströnd Grænlands yfir á Austurströndina á vormánuðum og hélt rafræna dagbók á leiðinni.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    50 min
  • Sumar: Þolreið á hestum, útfararþjónusta og Akranesviti
    Í þessum sjötta sumarþætti Sagna af landi ætlum við að kynnast nokkrum hugsjónaverkefnum. Við byrjum í Reykjavík þar sem við hittum Anítu Margréti Aradóttur, hestakonu, sem hefur tekið þátt í þolreiðum á hestum erlendis og undirbýr nú slíka keppni á Íslandi. Þá höldum við á Skagaströnd þar sem Anna Þorbjörg Jónasdóttir ræddi við hjónin Hugrúnu Sif Hallgrímsdóttur og Jón Ólaf Sigurjónsson slökkviliðsstjóra sem reka útfararstofu í frítíma sínum. Og að lokum sláumst við í för með Elsu Maríu Guðlaugs Drífudóttur í Akranesvita að hitta Hilmar Sigvaldason vitavörð en í mars voru tíu ár síðan vitinn var opnaður almenningi.
    Efni í þáttinn unnu Halla Ólafsdóttir, Anna Þorbjörg Jónasdóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    50 min
  • Sumar: Bjössaróló, Stella í Heydal og Örlygur Hnefill og Eurovision
    Í þessum fimmta sumarþætti Sagna af landi hittum við fólk sem hefur ráðist í nokkuð sérstök verkefni. Við höldum í Borgarnes og hittum Ríkharð Mýrdal Harðarson sem fer nú fyrir endurbótum á hinum þekkta Bjössaróló. Þá hittum við Stellu Guðmundsdóttur, ferðaþjónustubónda, sem hefur staðið vaktin í Heydal í Ísafjarðardjúpi í um 20 ár. Og að lokum höldum við til Húsavíkur þar sem Örlygur Hnefill segir okkur frá Eurovisionsafninu og -ævintýrinu mikla.
    Efni í þáttinn unnu: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, Halla Ólafsdóttir og Óðinn Svan Óðinsson.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    50 min
  • Sumar: Þrjátíu ár síðan Krossnes fórst á Halamiðum
    Í þessum fjórða sumarþætti Sagna af landi rifjum við upp frásögn Hafsteins Garðarssonar af því þegar skuttogarinn Krossnes fórst á Halamiðum. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði við hann en þann 23. febrúar síðastliðinn voru þrjátíu ár síðan togarinn fórst. Níu menn komust lífs af en þrír fórust í slysinu.
    Efni í þáttinn unnu Elsa María Guðlaugs Drífudóttir og Halla Ólafsdóttir.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    50 min
  • Sumar: Hekla Sólveig, Hanin og Yaqeen og Anton Líni
    Í þessum þriðja sumarþætti Sagna af landi rifjum við upp sögur af ungu fólki. Anna Þorbjörg Jónasdóttir fór í göngutúr með Heklu Sólveigu Magnúsdóttur, unglingi á Akureyri, sem er í hljómsveitinni Brenndu bananarnir. Þá höldum við vestur á Ísafjörð þar sem systurnar Hanin og Yaqeen Al-Saedi sækja nám við menntaskólann. Þær eru frá Írak og fluttu til landsins í hópi flóttafólks eftir að pabba þeirra hafði verið rænt. Og að lokum rifjum við upp viðtal Óðins Svans Óðinssonar við Anton Lína Hreiðarsson, tónlistarmann, sem hefur þrátt fyrir ungan aldur orðið fyrir fleiri áföllum en margir verða fyrir á allri sinni ævi.
    Efni í þáttinn unnu: Anna Þorbjörg Jónasdóttir, Halla Ólafsdóttir og Óðinn Svan Óðinsson.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    50 min
  • Sumar: Pylsumenning Akureyringa, Saltfiskur og Bókakaffi í Fellabæ
    Í þessum öðrum sumarþætti í Sagna af landi rifjum við upp sögur tengdum mat - og allskonar mat. Við höldum með Þórgunni Oddsdóttur í nokkrar bílalúgur á Akureyri og kynnum okkur pylsumenningu Akureyringa, allt frá djúpsteiktum pylsum með frönskum kartöflum til eldfjallapylsu í svörtu brauði. Svo höldum við með Ágústi Ólafssyni út Eyjafjörð og á Hauganes hann hitti Elvar Reykjalín þar sem þeir ræddu saltfisk og ferðamennsku ? en aðallega saltfisk. Og að lokum höldum við í Bókakaffi í Fellabæ þar sem Gréta Sigurjónsdóttir, sem margir þekkja sem Grétu úr Dúkkulísunum, galdrar fram kótilettur og fiskilummur, en líka ljúfa tóna.
    Efni í þáttinn unnu: Þórgunnur Oddsdóttir, Ágúst Ólafsson og Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    50 min
  • Sumar: Elíza Newman, Satu Rämö og Páll A. Pálsson
    Í þessum fyrsta sumarþætti rifjum við upp sögur tengdum listafólki í þremur landshlutum. Við förum með Gígju Hólmgeirsdóttur í heimsókn til tónlistarkonunnar Elízu Newman sem býr í Höfnum á Reykjanesskaga. Við höldum svo til Ísafjarðar þar sem við hittum finnska rithöfundinn Satu Rämö, sem situr sjaldan auðum höndum. Og við höldum svo til Akureyrar þar sem við bregðum okkur í ljósmyndatöku hjá Páli A. Pálssyni og spurning hvort við getum skipt á myndatöku og svo sem einni vísu.
    Efni í þáttinn unnu: Gígja Hólmgeirsdóttir, Halla Ólafsdóttir og Ágúst Ólafsson.
    50 min
  • Matargjafir, snjóflóðaleitarhundur og nytjamarkaður Rauða krossins
    Við hittum þrjá einstaklinga og einn hund, í þremur landshlutum, sem eru virk í sjálfboðaliðastarfi. Við byrjum á Akureyri þar sem við hittum Sigrúnu Steinarsdóttir Ellertsen sem hefur haldið úti Facebook-síðunni Matargjafir á Akureyri og nágrenni í átta ár. Og frá Akureyri höldum við til Flateyrar en eftir að snjóflóð féll á Flateyri í janúar 2020 ákvað Konráð Ara Skarphéðinsson að þjálfa hundinn sinn, Ask, sem snjóflóðaleitarhund. Að lokum höldum við svo á nytjamarkað Rauða krossins á Egilsstöðum og hittum Berglindi Sveinsdóttur sem stendur þar vaktina.
    Efni í þáttinn unnu: Þórgunnur Oddsdóttir, Halla Ólafsdóttir og Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    50 min
  • Vaðlaheiðargöng og Öll vötn til Dýrafjarðar
    Við ætlum að velta aðeins fyrir okkur jarðgöngum og afleiddum áhrifum þeirra. Ein umdeildustu jarðgöng landsins, Vaðlaheiðargöng, voru opnuð fyrir umferð í lok árs 2018. Ágúst Ólafsson slóst í för með Valgeiri Bergmann, framkvæmdastjóra Vaðlaheiðarganga, inn í sólarlandahitann í göngunum. Við höldum svo vestur á Þingeyri. Með tilkomu Dýrafjarðarganga og bættum vegasamgöngum á Dynjandisheiði er ljóst að ýmislegt hefur breyst, og gæti breyst enn frekar, fyrir þorpið. Þingeyri hefur undanfarin ár tekið þátt í byggðaþróunarverkefni Byggðastofnunar, Brothættum byggðum og við hittum verkefnastjórann Agnesi Arnardóttur.
    Efni í þáttinn unnu Ágúst Ólafsson og Halla Ólafsdóttir.
    50 min
  • Útihátíðir í Húsafelli og í Atlavík
    Það er komið sumar og sumrinu fylgja tjaldútilegur og ferðalög og margir vita ekkert skemmtilegra en að taka þátt í útihátíðum. Og útihátíðir eru sannarlega ekki nýjar af nálinni. Við rifjum upp tvær sögufrægar útihátíðir.
    Húsafellsmótin voru haldin á vegum Ungmennasambands Borgarfjarðar í nokkur ár og frægasta hátíðin var árið 1969. Þá voru Íslendingar um tvö hundruð þúsund og talið er að um tuttugu þúsund manns hafi verið á þessari einu hátíð. Við hittum Þorvald Jónsson sem þekkti vel til þessara samkoma. Svo höldum við yfir landið og í Atlavík á Hallormsstað. Þar voru frægar útisamkomur á sjöunda og níunda áratugnum og margir muna líklega eftir því þegar bítillinn Ringo Starr spilaði þar með Stuðmönnum árið 1984. Magnús Stefánsson segir frá hátíðinni í Atlavík og komu Ringo Starr.
    Efni í þáttinn unnu Elsa María Guðlaugs Drífudóttir og Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    50 min

About Sögur af landi

From the publisher's feed

Landsbyggðin, höfuðborgin og allt þar á milli.