Sögur af landi

Sögur af landi

By RÚV
Download on the App Store

Sögur af landi episodes

  • Sauðfjárverndin, síldarstúlkur og Eiðabruninn
    Í þætti dagsins fjöllum við um Eiðabrunann 1960, skoðum merkilega ljósmynd á Síldarminjasafninu á Siglufirði og forvitnumst um starfsemi sauðfjárverndarinnar. Þátturinn var áður á dagskrá í Sögum af landi 9. apríl. 2021.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Saga Helgu Ruth Alfreðsdóttur
    Minningar af aðventu og stríðsárum: Í þessum þætti ætlum við að ferðast aftur í tímann og til Þýskalands stríðsáranna. Við förum í fylgd með Helgu Ruth Alfreðsdóttur en hún býr á Egilsstöðum þar sem hún starfaði lengi sem íþróttakennari. Rúnar Snær Reynisson hitti Helgu þar sem hún var við sína uppáhaldsiðju; að baka hið þýska Stollen-brauð fyrir jólin. Þátturinn var frumfluttur í Sögum af landi 13. desember 2019.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Stefnubreyting í lífinu, söngur í Kjósinni og hetjudáðir á stríðstímum
    Í þættinum í dag heyrum við sögu tveggja kvenna. Þuríður Helga Kristjánsdóttir segir frá stefnubreytingu í sínu lífi þegar hún ákvað að segja upp starfi sínu sem framkvæmdarstjóri Menningarfélags Akureyrar til að sinna öðrum hugðarefnum. Síðan heyrum við Ágústu Oddsdóttur segja frá bókinni Þegar Kjósin ómaði af söng þar sem fjallað er um samfélagið í Kjósinni og öflugt söngkórastarf sem starfrækt var þar á síðustu öld. Í lok þáttar rifjum við upp viðal frá árinu 2017 þar sem Magnús Pálsson frá Veturhúsum segir frá leiðangri breskra hermanna árið 1942 og hetjulegum björgunaraðgerðum fjölskyldunnar í Veturhúsum.
    Efni í þáttinn unnu Þórgunnur Oddsdóttir, Gígja Hólmgeirsdóttir og Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Einn efnilegasti listskautari landsins
    Við endurflytjum viðtal við einn efnilegasta listskautara landsins, Ísold Fönn Vilhjálmsdóttur frá Möðrudal á Fjöllum. Við heyrum af skautaferli Ísoldar Fannar og bataferli hennar eftir að hafa gengist undir umfangsmikla aðgerð fyrir um einu ári. Óðinn Svan Óðinsson ræddi við Ísold Fönn á Akureyri í maí á þessu ári. Halla Ólafsdóttir setti saman.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Fáskrúðsfjörður, unglingamenning og uppistand
    Fáskrúðsfjörður, unglingamenning og uppistand eru umfjöllunarefni þáttarins. Við byrjum á að forvitnast um nýja bók Smára Geirssonar um sögu Fáskrúðsfjarðar frá landnámi, því næst endurflytjum við viðtal við Heklu Sólveigu Magnúsdóttur um hvernig er að vera unglingur á Akureyri. Að lokum er rætt við Bjarna Hafþór Helgason um sögustundina Hristur ekki hrærður, þar sem hann segir persónulegar og húmorískar sögur í sínu lífi.
    Efni í þáttinn unnu Rúnar Snær Reynisson, Anna Þorbjörg Jónasdóttir og Ágúst Ólafsson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Hvernig útsýnisskífa verður til
    Þáttur dagsins er helgaður útsýnisskífum, eða hringsjám eins og þær eru líka kallaðar, og gerð þeirra. Í byrjun september fóru nokkrir félagar í Ferðafélagi Borgarfjarðarhéraðs í leiðangur upp á topp Hafnarfjalls. Tilgangurinn var að gera mælingar og skyssur fyrir útsýnisskífu sem stendur til að koma fyrir efst á fjallinu. Með í leiðangrinum var Jakob Hálfdanarson og aðstoðarmaður hans en Jakob hefur komið að gerð ótal útsýnisskífa sem finna má um allt land. Í þættinum er rætt við Jakob um þá vinnu sem liggur að baki einni útsýnisskífu. Einnig segir Jakob frá áratugalöngum ferli sínum hjá Vegagerðinni.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    44 min
  • Borðeyri við vestanverðan Hrútafjörð
    Borðeyri er eitt fámennasta þorp landsins en þar búa um 10 íbúar. Í þættinum er flakkað um þetta litla þorp sem er eins og gluggi inn í liðna tíð. Við ræðum meðal annars við sagnfræðinginn Vilhelm Vilhelmsson sem hefur kynnt sér náið sögu Borðeyrar, ræðum einnig við Kristínu Árnadóttur íbúa á Borðeyri um elsta hús plássins, svokallað Riis-hús. Sláum svo á þráðinn til tónlistarkonunnar Ásbjargar Jónsdóttur en fjölskylda hennar hefur undanfarið unnið að endurbótum á einu hússanna á staðnum. Að lokum flökkum við um gistiheimilið Tangahús í fylgd með gestgjafanum Ingibjörgu Rósu Auðunsdóttur.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    52 min
  • Akureyri.net tveggja ára, frumkvöðlar á Ísafirði og kúabóndinn Herdís
    Við skreppum í fjós, forvitnumst um frumkvöðlafyrirtæki á Ísafirði og heimsækjum eina minnstu ritstjórnarskrifstofu landsins í þætti dagsins. Við byrjum á að heimsækja blaðamanninn Skapta Hallgrímsson og fræðast um svæðismiðilinn Akureyri.net, sem fagnar um þessar mundir tveggja ára afmæli. Því næst endurflytjum við viðtal Höllu Ólafsdóttur við Dóru Hlín Gísladóttur þróunarstjóra frumkvöðlafyrirtækisins Keracis á Ísafirði. Viðtalið var fyrst flutt hér í Sögum af landi í febrúar 2022. Að lokum skreppum við í fjós á Egilsstaðabýlinu og ræðum við kúabóndann Herdísi Mögnu Gunnarsdóttur um landbúnaðarstörfin og nýja tækni í kynbótastarfi.
    Efni í þáttinn unnu Þórgunnur Oddsdóttir, Halla Ólafsdóttir og Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Ráðskonur í sveit, eldsmiður og ungt fólk á uppleið
    Ráðskonur, eldsmíði og ungir á uppleið eru til umfjöllunar í þætti dagsins. Við hefjum ferðalag á heimsókn til Dalrúnar Kaldkvísl Eygerðardóttur sagnfræðings og forvitnumst um rannsóknir hennar á ráðskonum í sveit á síðari hluta 20. aldar. Því næst rifjum við upp viðtal Dags Gunnarssonar frá árinu 2018 þar sem rætt var við Hall Karl Hinriksson myndlistarmann og eldsmið sem var við störf í eldsmiðju Eldsmíðafélags Suðurlands. Að lokum kíkjum við í ræktina á Dalvík, þar sem hópurinn Ungt fólk á uppleið hittist reglulega og æfir saman. Þar er rætt við þau Sigrúnu Friðriksdóttur, Jóhann Hreiðarsson, Hlín Torfadóttur, Ásu Harðardóttur og Sigurð Ásgeirsson.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Dagur Gunnarsson og Amanda Guðrún Bjarnadóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Hilmar Friðjónsson kennari og Verslunarminjasafnið á Hvammstanga
    Í þættinum verður fjallað um kennslu og verslunarsögu. Við hefjum þáttinn á spjalli við stærðfræðikennarann Hilmar Friðjónsson, sem lagt hefur áherslu á að þróa nýjar og óhefðbundnar leiðir til að auðvelda nemendum stærðfræðinámið. Í lok þáttar er svo ferðinni heitið á Hvammstanga þar sem við fræðumst um Verslunarminjasafnið þar í bæ. Það er Þuríður Þorleifsdóttir staðarhaldari sem leiðir okkur um safnið en þar er fjallað um verslunarsögu Hvammstanga og hægt að versla handverk af heimafólki.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Óðinn Svan Óðinsson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min

About Sögur af landi

From the publisher's feed

Landsbyggðin, höfuðborgin og allt þar á milli.