Sögur af landi

Sögur af landi

By RÚV
Download on the App Store

Sögur af landi episodes

  • Árni bakarameistari, Dýrfinna gullsmiður og Baldur björgunarsveitarm.
    Við hittum við fólk sem hefur stundað vinnu og áhugamál árum og áratugum saman og þar af leiðandi upplifað ýmsar breytingar og tímana tvenna. Við komum fyrst við í Gamla bakaríinu á Ísafirði þar sem Árni Aðalbjarnarson hefur bakað alla sína starfsævi og þrátt fyrir að hafa lokað og sett bakaríið á sölu heldur hann áfram að baka. Við höldum svo á Akranes þar sem við skyggnumst inn á vinnustofu Dýrfinnu Torfadóttir sem er sjónfræðingur og gullsmiður og að lokum hittum við Baldur Pálsson björgunarsveitarmann og snjóbílstjóra í Björgunarsveitinni Héraði á Egilsstöðum sem segir okkur frá afdrifaríku útkalli sem knúði fram breytingar á samstarfi björgunarsveita landsins.
    Efni í þáttinn unnu Halla Ólafsdóttir, Elsa María Guðlaugs Drífudóttir og Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    52 min
  • Hanin og Yaqeen frá Írak, Ahmed frá Marokkó og Natalia frá Úkraínu
    Við hittum fólk sem hefur kvatt heimaland sitt og sest að á Íslandi af ýmsum ástæðum. Við hittum systurnar Hanin og Yaqeen Al-Saedi frá Írak sem fluttu frá Jórdaníu til Súðavíkur eftir að pabba þeirra hafði verið rænt frá fjölskyldunni. Svo höldum við til Akureyrar þar sem við hittum Ahmed Essabiani sem kom fyrst til Íslands frá Marokkó 1999 og hefur undanfarin ár aðstoðað og starfað með flóttafólki hér á landi. Og að lokum hittum við Nataliu Kravtchouk frá Úkraínu sem arkar á fjöll í leit að hugarró. Eftir 28 ára búsetu á Íslandi leitar hugur hennar nú heim hverja stund.
    Efni í þáttinn unnu Halla Ólafsdóttir, Anna Þorbjörg Jónasdóttir og Þórgunnur Oddsdóttir.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir
    51 min
  • Safnari, uppfinningamenn og flugmenn
    Við hittum nokkra grúskara. Á Akureyri hittum við Pál A. Pálsson ljósmyndara og safnara með meiru sem segir okkur frá vísusafni sínu en vísurnar hefur hann fengið í skiptum fyrir myndatöku. Þá hittum við feðgana Örn og Ingólf Eggertsson á Ísafirði og heyrum af áratuga löngu samstarfi þeirra og uppfinningum. Þeir hafa bæði hannað rafeindavogir og snjódýptarmæla sem hafa komið sér vel. Þá heyrum við af flugáhuga þeirra og bræðra Arnar.
    Efni í þáttinn unnu Ágúst Ólafsson og Halla Ólafsdóttir.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    51 min
  • Egilsstaðaflugvöllur, dýrlæknir í laxeldi og leikkona á Akureyri
    Við höldum á þrjá vinnustaði í þremur landshlutum. Við byrjum á því að kynnast fjölbreyttum störfum á Egilsstaðaflugvelli. Rætt er við Ásgeir Rúnar Harðarson, Nikulás Bragason, Þórhall Borgarson, Ingvar Hrólfsson og Loft Magnússon. Þá er haldið í Vestrahúsið á Ísafirði þar sem margir einyrkjar hafa aðsetur. Ein þeirra er Sigríður Gísladóttir, dýralæknir í fiskeldi. Að lokum höldum við í Samkomuhúsið á Akureyri þar sem rætt er við Þórdísi Björk Þorfinnsdóttur, leikkonu.
    Efni í þáttinn unnu Rúnar Snær Reynisson, Halla Ólafsdóttir og Óðinn Svan Óðinsson.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    53 min
  • Jarðskjálftar í Borgarfirði, lífið í Hrísey og skrifstofa í Korpudal
    Við hittum Snorra Jóhannesson, ábúanda á Augastöðum, sem man vel jarðskjálftahrinu í Borgarfirði 1974. Þá hittum við Hríseyinginn Ásrúnu Ýr Gestsdóttur í kaupstaðarferð á Akureyri. Og í lok þáttar höldum við að Kirkjubóli í Korpudal í Önundarfirði. Þar er að finna farfuglaheimili en líka nyrstu skrifstofu fyrirtækisins Nox Medical þar sem Stefán Rósinkrans Pálsson starfar.
    Efni í þáttinn unnu Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, Anna Þorbjörg Jónasdóttir og Halla Ólafsdóttir.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    51 min
  • Kerecis á Ísafirði, Leifur Arnar hjá Vistorku og Listasafn Akureyrar
    Við kynnum okkur starfsemi fyrirtækisins Kerecis á Ísafirði og ræðum við Dóru Hlín Gísladóttur sem er þróunarstjóri hjá fyrirtækinu.
    Þá höldum við til Akureyrar og heyrum af verkefninu Leifur-Arnar sem á vegum Vistorku sem er ætlað að sporna við matarsóun á veitingahúsum. Rætt er við Eyrúnu Gígju Káradóttur og Ingu Lilju Ólafsdóttur
    Og að lokum höldum við í Listasafn Akureyrar og fylgjumst við með því þegar starfsárið var sett. 18 sýningar verða opnaðar hjá Listasafninu á Akureyri á þessu ári í 12 sölum safnsins sem er í húsum gamla mjólkursamlagsins í Listagilinu á Akureyri. Rætt er við Hlyn Hallsson, safnstjóra.
    Efni í þáttinn unnu Halla Ólafsdóttir, Þórgunnur Oddsdóttir og Ágúst Ólafsson.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    52 min
  • Pétur Oddson og Sigurlín G. Pétursdóttir ásamt Þóri Auðólfssyni, lækni
    Í þættinum heyrum við sögu Péturs Oddssonar. Pétur er rafvirki og var við störf fyrir Orkubú Vestfjarða þann 17. september 2020 þegar hann lenti í alvarlegu slysi og brenndist illa.
    Við hittum Pétur á heimili hans á Ísafirði og Sigurlín Guðbjörgu Pétursdóttur, konu Péturs. Þá ræðum við við Þóri Auðólfsson, lýtaskurðlækni, sem starfar á Landspítalanum og þekkir til meðferðar á brunasárum og framförum í brunalækninum.
    Efni í þáttinn vann Halla Ólafsdóttir.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    49 min
  • Fylgjendur handboltalandsliðs, skíðagöngukappi og bankahús
    Þegar handboltinn hefur hresst við landann í faraldri, skammdeginu og janúarveðráttunni hittum við Hlyn Jóhannsson, sem hefur ásamt hópi fólks á Akureyri, lagt mikið á sig til að styðja við íslenska karlalandsliðið í handbolta.
    Við hittum Snorra Einarsson, skíðagöngukappa, og sambýliskonu hans, Elínu Mörtu Eiríksdóttur og heyrum af undirbúningi Snorra fyrir vetrarólympíuleikana en einnig af nýju heimili þeirra í gamla Landsbankahúsinu á Ísafirði.
    Innslög í þáttinn unnu Óðinn Svan Óðinsson og Halla Ólafsdóttir.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir
    49 min
  • Að vera unglingur á Akureyri, Akranesviti og finnskur rithöfundur
    Við byrjum á því að ræða við Heklu Sólveigu Magnúsdóttur, ungling á Akureyri, sem er í hljómsveitinni Brenndu bananarnir. Þá hittum við Hilmar Sigvaldason vitavörð í Akranesvita en í mars verða tíu ár síðan vitinn var opnaður fyrir almenningi og hittum við finnska rithöfundinn og áhrifavaldinn Satu Rämö sem býr og starfar á Ísafirði.
    Innslög í þáttinn unnu Anna Þorbjörg Jónasdóttir, Elsa María Guðlaugs Drífudóttir og Halla Ólafsdóttir.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir
    52 min
  • Stella í Heydal, Gréta í Bókakaffi, Guðrún í veðurmælingum til 58 ára
    Við hittum þrjár konur í jafnmörgum landshlutum og kynnumst störfum þeirra fyrr og nú. Við byrjum í Ísafjarðardjúpi þar sem við hittum Stellu Guðmundsdóttur, sem hefur staðið vaktina í Heydal í nær tvo áratugi. Þá höldum við í Bókakaffi í Fellabæ þar sem Gréta Sigurjónsdóttir, sem margir þekkja sem Grétu úr Dúkkulísunum, galdrar fram kótilettur og fiskilummur, en líka ljúfa tóna. Og að lokum heyrum við af veðurathugunum til 58 ára en Guðrún Sveinbjörnsdóttir tók veðrið fyrir Veðurstofuna á Mýri í Bárðardal í öll þessi ár.
    Innslög í þáttinn unnu Halla Ólafsdóttir, Rúnar Snær Reynisson og Ágúst Ólafsson.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir
    52 min

About Sögur af landi

From the publisher's feed

Landsbyggðin, höfuðborgin og allt þar á milli.