Sögur af landi

Sögur af landi

By RÚV
Download on the App Store

Sögur af landi episodes

  • Hugsa um leiði ókunnugs manns og vistaskipti presta
    Í þættinum heyrum við sögu fjölskyldu á Akureyri sem hefur áratugum saman hugað að leiði bláókunnugs manns sem hvílir í Akureyrarkirkjugarði. Rætt er við Ástu Eggertsdóttur um hver hann var þessi maður, Trygve Evanger, sem lést fyrir meira en áttíu árum.
    Við hittum tvo presta sem skiptu um kirkju í eitt ár. Séra Grétar Halldór Gunnarsson, sem hefur starfað síðustu fimm ár í Grafarvogskirkju hélt vestur á Ísafjörð og skipti við séra Magnús Erlingsson, sem hefur starfað sem sóknarprestur á Ísafirði í þrjátíu ár.
    Efni í þáttinn unnu Þórgunnur Oddsdóttir og Halla Ólafsdóttir.
    Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
    49 min
  • Minning um móður og raunir línumanna veturinn 1977
    Í þessum síðasta þætti ársins heyrum við lífssögu hvunndagshetjunnar Steinunnar Sveinsdóttur, sem bjó mestan hluta ævi sinnar á Varmá í Hveragerði. Steinunn hefði orðið 100 ára þann 3. júlí 2020 og af því tilefni gáfu afkomendur hennar Hveragerðisbæ bekk til minningar um ættmóðurina. Bekknum var komið upp á þeirri leið sem Steinunn gekk alltaf til vinnu sinnar. Það er Pálína Sigurjónsdóttir sem segir sögu móður sinnar. Í lok þáttar er fjallað um erfiða leiðangra línumanna hjá RARIK á Stuðlaheiði snemma árs 1977. Rætt er við Baldur Pálsson sem upplifði atburðina og hefur skrifað um þá í fjórðungsritið Múlaþing.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    48 min
  • Rjómabúið á Baugsstöðum, kraftlyftingakona og Muggstofa
    Í þættinum verður rifjuð upp saga Rjómabúsins á Baugsstöðum. Rjómabúið er staðsett nálægt Stokkseyri og er það eina í landinu sem stendur eftir með öllum búnaði. Það er Lýður Pálsson, sagnfræðingur og forstöðumaður Byggðasafns Árnesinga sem segir sögu rjómabúsins. Því næst er ferðinni heitið í Borgarnes þar sem rætt er við kraftlyftingakonuna Alexandreu Rán Guðnýjardóttur, sem fyrir skemmstu vann Norðurlandatitil unglinga í bekkpressu. Að lokum heimsækjum við samfélagsmiðstöðina Muggstofu sem nýlega opnaði á Bíldudal. Guðríður Hlín Helgadóttir forstöðukona Muggstofu segir frá starfseminni.
    Efni í þáttinn unnu: Gígja Hólmgeirsdóttir, Elsa María Guðlaugs Drífudóttir og Halla Ólafsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Bjössaróló, Ragnheiður í Kisukoti, Bakki í Grindavík
    Í þættinum er rætt við Ríkharð Mýrdal Harðarsson sem fer nú fyrir endurnýjun á hinum þekkta Bjössaróló í Borgarnesi. Förum líka í heimsókn til Ragnheiðar Gunnarsdóttur sem rekur Kisukot á Akureyri. Að lokum er ferðinni heitið í gömlu verbúðina Bakka í Grindavík en Sögufélag Grindavíkur hefur undanfarin ár staðið að endurnýjun hússins. Við ræðum þar við Hall Gunnarsson og Mörtu Karlsdóttur, en Marta rekur prjónaverslunina Prjónasystur í húsinu.
    Efni í þáttinn unnu: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, Anna Þorbjörg Jónasdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    51 min
  • Sunna Borg og Eyrin á Ísafirði
    Við hefjum þáttinn á viðtali við leikkonuna Sunnu Borg. Sunna er nú við æfingar á nýrri uppsetningu á Skugga-Sveini sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir á nýju ári. Verkið er eftir þjóðskáldið Matthías Jochumsson og mun Sunna fara með hlutverk hinnar þekktu Grasa-Guddu.
    Að lokum er flakkað um Eyrina á Ísafirði, en Ísafjarðarbær óskaði á dögunum eftir athugasemdum vegna fyrirhugaðrar landfyllingar við norðanverða Eyrina á Ísafirði. Óskað er eftir athugasemdum við skipulagslýsingu sem er fyrsta skref nýs skipulags. Hugmyndin að landfyllingunni er til komin vegna hafnarframkvæmda sem standa nú yfir á Ísafirði því þar fellur til mikið efni. Markmiðið með landfyllingunni og skipulagsbreytingunni er því að nýta þetta efni til að auka byggingarland á Ísafirði. Landfyllingar á Eyrinni eru hins vegar ekki nýjar á nálinni, stór hluti Eyrarinnar á Ísafirði er landfylling og upprunalega Eyrin aðeins brotabrot af Eyrinni í dag. Halla Ólafsdóttir, dagskrárgerðarkona á Ísafirði, hitti Jónu Símoníu Bjarnadóttur, sagnfræðing og forstöðukonu Byggðasafns Vestfjarða, og forvitnaðist um sögu Eyrarinnar á Ísafirði.
    Efni í þáttinn unnu Óðinn Svan Óðinsson og Halla Ólafsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Hérasmellir, saltfiskur á Hauganesi, Ólafsvallakirkja
    Þátturinn byrjar á gamansömum nótum, enda hafa Íslendingar haft gaman af því að segja sögur, ekki síst af náunganum. Nokkuð hefur verið gert af því að skrásetja slíkar sögur og nýlega kom út bókin Hérasmellir sem geymir skondnar sögur af Héraðsmönnum. Rúnar Snær Reynisson hitti skrásetjara þessara sagna, Baldur Grétarsson bónda á Skipalæk í Fellum, og fræddist um litlu sögurnar sem gefa lífinu lit.
    Frá gamansömum Hérasmellum er ferðinni síðan heitið á Hauganes. Þar er á sumrin rekinn veitingastaður sem sérhæfir sig í saltfiskréttum, og nú þegar ferðamönnum þar hefur fækkað eftir sumarið, fer hefðundin saltfiskverkun í fullan gang. Þessi starfsemi er öll hjá fyrirtækinu Ektafiski, en þar hafa sömu aðferðir verið notaðar við saltfiskverkun í áratugi. Hægt er að fá allskonar tegundir af saltfiski í soðið, sem oft er búinn að liggja hálft ár í salti. Einnig eru þau hjá Ektafiski að þróa nýja afurð fyrir landbúnað úr afgangssalti sem hingað til hefur verið hent. Ágúst Ólafsson fór í heimsókn á Hauganes einn fallegan nóvembermorgun og ræddi við Elvar Reykjalín hjá Ektafiski.
    Að lokum forvitnumst við sögu Ólafsvallakirkju sem nú er verið að endurgera. Kirkjan er í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og var byggð árið 1897. Hönnuður kirkjunnar var Kristinn Jónsson vagnsmiður en Samúel Jónsson frá Hunkubökkum á Síðu var yfirsmiður kirkjunnar. Ólafsvallakirkja var friðuð þann 1. janúar 1990. Rætt var við Jóhönnu Valgeirsdóttur, formann sóknarnefndar.
    Efni í þáttinn unnu Rúnar Snær Reynisson, Ágúst Ólafsson og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Elíza Newman í Höfnum, gömul byggð á nýjum tímum í innbænum á Akureyri
    Í þættinum bregðum við okkur í heimsókn til tónlistarkonunnar Elízu Geirsdóttur Newman, sem býr ásamt fjölskyldu sinni í Höfnum í Reykjanesbæ. Við flökkum einnig um innbæinn á Akureyri í fylgd með Hönnu Rósu Sveinsdóttur, sérfræðingi á húsverndarsviði hjá Minjasafninu á Akureyri.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Anna Þorbjörg Jónasdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Gallerí Listasel á Selfossi og rannsóknir á sérkennilegu fólki
    Við hefjum þáttinn í nýja miðbænum á Selfossi. Þar heimsækjum við listagalleríið Listasel sem staðsett er í húsi sem endurgert var eftir Hótel Gullfossi, húsi sem reist var árið 1905 í Hafnarstræti 100 á Akureyri. Við spjöllum við galleríeigandann Ólöfu Sæmundsdóttur og inn í frásögnina fléttast sögur af brennuvörgum og listmálaranum Tryggva Ólafssyni.
    Í lok þáttar er ferðinni heitið til Reykjavíkur þar sem Halla Ólafsdóttir ræðir við sagnfræðinginn Marín Árnadóttur. Marín hefur undanfarin ár skoðað sérkennilegt fólk í skriflegum heimildum, og lauk nýlega meistaraverkefni sínu um sérkennilegt fólk. Við forvitnumst um rannsóknir hennar og hvað geri fólk sérkennilegt.
    Viðmælendur í þættinum eru Ólöf Sæmundsdóttir, galleríeigandi og leirlistakona, og Marín Árnadóttir, sagnfræðingur. Einnig er endurflutt brot úr viðtali Jónasar Jónassonar frá árinu 1989 við listmálarann Tryggva Ólafsson í Kaupmannahöfn.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Halla Ólafsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Slúður í sjávarþorpum og rölt um garðyrkjustöð
    Í þessum þætti setjumst við niður með helsta sérfræðingi landsins á sviði slúðurs, en Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, kynjafræðingur og doktorsnemi við Háskólann á Akureyri, hefur rannsakað samfélagsleg áhrif slúðurs á ungar konur í átján sjávarþorpum víða um land. Sjálf býr Gréta enn í sjávarþorpinu þar sem hún ólst upp og segist upplifa slúður um sjálfa sig. Hún láti það samt hafa lítil áhrif á sig þó það geti vissulega bitið.
    Við heimsækjum líka garðyrkjustöðina Espiflöt sem staðsett er í Reykholti í Bláskógabyggð. Þar er rætt við Axel Sæland sem segir frá sögu garðyrkjustöðvarinnar og leiðir hlustendur í gegnum ævintýralegan heim gróðurhúsanna.
    Efni í þáttinn unnu Ágúst Ólafsson og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    49 min
  • Karólína í Hvammshlíð, Anna Catharina í Breiðholti, Hveragerðisskáldin
    Við heyrum sögur tveggja kvenna sem flutt hafa til Íslands og tekið ástfóstri við landið. Það eru þær Karólína Elísabetardóttir bóndi í Hvammshlíð í Skagabyggð, em fer fyrir rannsókn til að finna lausnir gegn riðuveiki. Einnig er rætt við Önnu Catharinu Gros sem hefur alla sína ævi haft áhuga á hestum og er nú með hesthúsi í Breiðholti, gamla hesthúsahverfinu á Akureyri. Að lokum flökkum við um Hveragerði í fylgd sagnfræðingsins Njarðar Sigurðssonar sem segir meðal annars frá Hveragerðisskáldunum.
    Efni í þáttinn unnu Óðinn Svan Óðinsson, Anna Þorbjörg Jónasdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min

About Sögur af landi

From the publisher's feed

Landsbyggðin, höfuðborgin og allt þar á milli.