Sögur af landi

Sögur af landi

By RÚV
Download on the App Store

Sögur af landi episodes

  • Sumar: Flakkað um Öxarfjörð
    Sumarþáttaröð Sagna af landi heldur áfram, þar sem tínt er til efni frá liðnum vetri fyrir hlustendur til að njóta í sumar. Í þessum sjötta þætti verður rifjað upp ferðalag þar sem farið var í heimsókn á þrjá bæi við Öxarfjörð. Við byrjum á að fá okkur kaffi hjá sauðfjárbóndanum og frumkvöðlinum Guðríði Baldvinsdóttur á Lóni í Kelduhverfi. Hún segir okkur meðal annars frá fyrirtækinu sínu Mórúnum þar sem hún jurtalitar ull. Því næst er farið á bæinn Gilsbakka þar sem þau Guðrún Lilja Dam Guðrúnardóttir og Brynjar Þór Vigfússon reka litla ullarvinnslu. Að lokum er farið á bæinn Leifsstaði en þar býr veðurspámaður sveitarinnar, stórbóndinn Stefán Rögnvaldsson. Viðtölin voru tekin í apríl.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Sumar: Dagur á Dalvík 1968
    Það er komið að fimmta þættinum í sumarþáttaröð Sagna af landi. Að þessu sinni er ferðinni heitið aftur í tímann og rifjum upp sögur frá Dalvík. Við ferðumst í fylgd með fréttamanninum Stefáni Jónssyni sem flakkaði um Dalvík með upptökutækið þann 22. ágúst 1968. Þar spjallaði hann við heimafólk og fékk hjá þeim sögur um daginn og veginn.
    Viðmælendur í þættinum eru: Sigurður P. Jónsson kaupmaður, Stefán Stefánsson sjómaður, Sverrir Sveinbjörnsson sjómaður, Björgvin Jónsson forstjóri, Tryggvi Jónsson frystihússtjóri, Sveinbjörn Jóhannsson útgerðarmaður, Jakob Helgason fyrrv. Grímseyingur, Haraldur Sófóníasson verkamaður, Hilmar Daníelsson sveitarstjóri og Unnur Sigurðardóttir húsmóðir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Sumar: Gunni Mall og æviminningar Guðjóns R. Sigurðssonar.
    Sumarþáttaröð Sagna af landi heldur áfram, þar sem tínt er til efni frá liðnum vetri fyrir hlustendur til að njóta í sumar. Í þessum fjórða þætti verður endurflutt viðtal við Gunnar Malmquist Gunnarsson, föður tveggja landsliðsfyrirliða. Auk þess verður rifjuð upp heimsókn til skáldsins og þýðandans Þórðar Sævars Jónssonar sem fræðir okkur um alþýðulistamanninn Guðjón R. Sigurðsson.
    Efni í þáttinn unnu Óðinn Svan Óðinsson og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Sumar: Nýtin systkini að austan og veflistakonan Ragnheiður Björk
    Sumarþáttaröð Sagna af landi heldur áfram. Í þessum þriðja þætti verður endurflutt innslag um nýtin systkini að austan. Auk þess verður rifjuð upp frásögn veflistakonunnar Ragnheiðar Bjarkar Þórsdóttur.
    Efni í þáttinn unnu Rúnar Snær Reynisson og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Sumar: Sprenging við Mývatn, veitingastaðurinn Teni, ástarsaga
    Þetta er annar þátturinn af níu í sumarþáttaröð Sagna af landi, þar sem tínt verður saman efni frá liðnum vetri fyrir hlustendur til að njóta í sumar. Að þessu sinni rifjum við upp sprenginguna við Miðkvíslarstíflu, heimsækjum veitingastaðinn Teni á Blönduósi og heyrum ástarsögu að austan.
    Efni í þáttinn unnu Úlla Árdal, Gígja Hólmgeirsdóttir og Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Sumar: Elfríð Pálsdóttir segir sögu sína
    Í dag hefur göngu sína fyrsti þátturinn af níu í sumarþáttaröð Sagna af landi, þar sem tínt verður saman efni frá liðnum vetri fyrir hlustendur til að njóta í sumar. Í þessum fyrsta þætti verður rifjað upp viðtal sem Rúnar Snær Reynisson tók við Elfríð Pálsdóttur á heimili hennar á Egilsstöðum í janúar 2019. Elfríð fæddist í Þýskalandi árið 1930 og ólst upp á tímum seinni heimstyrjaldarinnar. Ung fluttist hún til Íslands og starfaði sem vinnukona á Siglunesi.
    Efni í þáttinn vann Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Dráttarvélar. Missir á Eyrarbakka. Kvennasigling.
    Í þessum þætti er rætt um dráttarvélar við meðlim í Fergusonfélaginu en tilefnið var afhending á uppgerðum Ferguson til minjasafnsins á Burstarfelli. Við forvitnumst einnig um sýninguna Missi sem nú stendur yfir í Húsinu á Eyrarbakka. Að lokum förum við um borð í seglskútuna Esju og ræðum þar við tvo meðlimi Seiglanna sem nú sigla hringinn í kringum landið.
    Viðmælendur í þættinum eru Ragnar Jónasson, Linda Ásdísardóttir, Tara Ósk Markúsdóttir og Bryndís Skúladóttir.
    Efni í þáttinn unnu Rúnar Snær Reynisson og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Hið artíska. Mývatnssveit. Sveitaís. Heimilisiðnaðarsafnið.
    Í þættinum fræðumst við um sýninguna Fyrstu kynni: Grænlendingar á Ísafirði 1925 sem nú er til sýnis á Amtsbókasafninu á Akureyri. Ræðum líka við umhverfisstjóra Skútustaðahrepps og smökkum ís fram í Eyjafjarðarsveit. Að lokum forvitnumst við um sumarsýningu Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi.
    Viðmælendur í þættinum eru Sumarliði R. Ísleifsson, Daði Lange Friðriksson, Fjóla Kim Björnsdóttir og Elín S. Sigurðardóttir.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Ágúst Ólafsson og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Flakkað um Eyjafjarðarsveit
    Við ferðumst um Eyjafjarðarsveit í þessum þætti. Ferðalagið hefst á bænum Kristnesi þar sem við forvitnumst um risakúna Eddu sem nú er í smíðum hjá bóndanum Beate Stormo. Kúnni er ætlað að verða einkennistákn Eyjafjarðarsveitar enda er mjólkurframleiðsla eitt af sérkennum sveitarinnar. Því næst fræðumst við um Matarstíg Helga magra hjá Mariu Holmgrimsdóttur, verkefnastjóra matarstígsins. Þaðan förum við í heimsókn í Dyngjuna listhús þar sem Guðrún H. Bjarnadóttir segir frá staðnum og þeirri starfsemi sem hún rekur þar. Við ljúkum ferðalaginu á Smámunasafni Sverris Hermanssonar og spjöllum þar við safnstýruna Sigríði Rósu Sigurðardóttur um starfsemi safnsins og forvitnumst líka um húsið sjálft sem hýsir safnið.
    Viðmælendur í þættinum voru Beate Stormo, Maria Holmgrimsdóttir, Guðrún Hallfríður Bjarnadóttir og Sigríður Rósa Sigurðardóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Tryggvaskáli. Tvö söfn á Húsavík. Ævintýraarkítekt
    Í þættinum í dag fjöllum við um Tryggvaskála á Selfossi, sem er elsta húsið í bænum og á sér merka sögu. Bryndís Brynjólfsdóttir rifjar upp sitthvað úr sögu hússins. Því næst bregðum við okkur í heimsókn til Húsavíkur þar sem við heimsækjum Safnahúsið og Hvalasafnið. Að lokum fáum við að kynnast svokölluðum ævintýraarkítekt sem starfar við að skipuleggja flest allt sem viðkemur ferðaþjónustu. Það er Marinó Sveinsson sem segir frá störfum sínum við fjölskyldufyrirtækið Sportferðir.
    Viðmælendur í þættinum eru Bryndís Brynjólfsdóttir, Sólrún Harpa Sveinbjörnsdóttir, Eva Björk Káradóttir og Marinó Sveinsson.
    Efni í þáttinn unnu Margrét Blöndal, Gígja Hólmgeirsdóttir og Ágúst Ólafsson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    51 min

About Sögur af landi

From the publisher's feed

Landsbyggðin, höfuðborgin og allt þar á milli.