Sögur af landi

Sögur af landi

By RÚV
Download on the App Store

Sögur af landi episodes

  • Dagur á Dalvík 1968
    Í þættinum ferðumst við aftur í tímann og rifjum upp sögur frá Dalvík. Við ferðumst í fylgd með fréttamanninum Stefáni Jónssyni sem flakkaði um Dalvík með upptökutækið þann 22. ágúst 1968. Þar spjallaði hann við heimafólk og fékk hjá þeim sögur um daginn og veginn.
    Viðmælendur í þættinum eru: Sigurður P. Jónsson kaupmaður, Stefán Stefánsson sjómaður, Sverrir Sveinbjörnsson sjómaður, Björgvin Jónsson forstjóri, Tryggvi Jónsson frystihússtjóri, Sveinbjörn Jóhannsson útgerðarmaður, Jakob Helgason fyrrv. Grímseyingur, Haraldur Sófóníasson verkamaður, Hilmar Daníelsson sveitarstjóri og Unnur Sigurðardóttir húsmóðir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    51 min
  • Sirkús á Ólafsfirði. Stefán Jónsson á Dalvík. Hvalaskoðun á Hauganesi
    Í þætti dagsins förum við í heimsókn til sirkúslistakonunnar Unnar Maríu Máneyjar Bergsveinsdóttur, sem býr og starfar á Ólafsfirði. Flökkum líka aftur í tímann, til ársins 1968 þegar Stefán Jónsson fréttamaður flakkaði um Dalvík. Við heyrum brot úr flakki hans þar sem rætt er við Steingrím Þorsteinsson kennara. Í lok þáttar verður forvitnast um hvalaskoðunarfyrirtæki á Hauganesi á Árskógsströnd, sem er það fyrirtæki sem lengst hefur siglt með ferðamenn í hvalaskoðun við Ísland. Fyrsta ferðin var farin 1993.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Ágúst Ólafsson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    53 min
  • Sögur úr Fjallabyggð: Vitavörður, bæjarstjórinn og safnstjóri
    Í þætti dagsins eru sagðar sögur frá Fjallabyggð. Fyrst förum við í heimsókn til Óskars Þráins Finnssonar, fyrrverandi sjómanns, vitavarðar og síðar kirkjuvarðar við Ólafsfjarðarkirkju. Óskar Þráinn er fæddur á bænum Ytri-Á á Kleifum í Ólafsfirði og er yngsti sonur hjónanna Mundínu Þorláksdóttur og Finns Björnssonar. Mundína og Finnur eignuðust saman tuttugu börn á árunum 1917-1945. Óskar segir frá lífi sínu og rifjar upp örlagaríkan dag þegar hann lenti í alvarlegu slysi sem vitavörður við Bríkurvita. Í þættinum kynnumst við einnig Elíasi Péturssyni, bæjarstjóra í Fjallabyggð og Anitu Elefsen, safnstjóra Síldarminjasafnsins á Siglufirði.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    49 min
  • Grasöl frá Bárðardal og viskí úr Hrísey. Endurheimt votlendis.
    Í þætti dagsins verður fjallað um nýsköpun í drykkjarvörum. Aftur verður haldið í Bárðardalinn þar sem Guðrún Sigríður Tryggvadóttir bóndi í Svartárkoti segir frá samstarfsverkefni nokkurra aðila í Bárðardal um framleiðslu á lífrænum drykkjarvörum. Meðal drykkja sem þróaðir verða er grasöl, drykkur sem mörg heimili í Bárðadal hafa bruggað í áratugi. Auk þess verður rætt við Björn Grétar Baldursson sem stefnir á að stofna gin- og viskiframleiðslu í Hrísey. Þetta verður í fyrri hluta þáttarins.
    Í seinni hluta þáttar er rætt við Iðunni Hauksdóttur, verkefnastjóra hjá Landgræðslunni. Hún segir frá hvernig endurheimt votlendis er háttað hjá þeim landeigendum sem óska eftir aðstoð Landgræðslunnar við endurheimt votlendis.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Guðrún í Svartárkoti. Friðlýsingar og þjóðgarður á Vestfjörðum
    Í fyrri hluta þáttarins verður farið í heimsókn í Svartárkot í Bárðardal. Þar býr Guðrún Sigríður Tryggvadóttir ásamt fjölskyldu sinni. Við spjöllum við Guðrúnu um lífið á þessum innsta bæ í Bárðardal, sem liggur við mörk Ódáðahrauns. Í seinni hluta þáttarins er rætt við Eddu Kristínu Eiríksdóttur um fyrirhugaðar friðlýsingar og þjóðgarð á sunnanverðum Vestfjörðum.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Halla Ólafsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Flakkað um Kjalarnes: Glerlist, kúabændur og hjónin á Skrauthólum
    Í þætti dagsins verður flakkað um Kjalarnes og farið í heimsókn til nokkurra íbúa á svæðinu. Farið verður til glerlistakonunnar Sigrúnar Einarsdóttur sem stofnaði á Kjalarnesi fyrsta heitglerverkstæði landsins. Einnig verður farið á bæinn Bakka þar sem rætt verður við síðustu hefðbundnu kúabændur Reykjavíkurborgar, þau Ásthildur Skjaldardóttir og Birgir Aðalsteinsson. Að lokum verður spjallað við hjónin á Skrauthólum, þau Kristjönu Þórarinsdóttur og Guðna Halldórsson, um lífið í sveitinni en þau hafa tekið mjög virkan þátt í félagslífi svæðisins frá því þau fluttu þangað fyrir nokkrum árum.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    52 min
  • Störf án staðsetningar. Blátindur VE 21. Aðbúnaður útigangshrossa
    Í þættinum verður spjallað við Þórgný Dýrfjörð hjá Akureyrarstofu um störf óháð staðsetningu. Einnig verður fjallað um sögu vestmanneyska vélbátsins Blátinds VE 21 en Vestmannaeyjabær áformar nú að farga bátnum, sem er friðaður sökum aldurs .Rætt verður við Tryggva Sigurðsson, fyrrverandi vélstjóra og bátaáhugamann í Vestmannaeyjum og Helga Mána Sigurðsson, formann Sambands íslenskra sjóminjasafna. Að lokum verður rætt við Sigríði Björnsdóttur dýralækni um aðbúnað útigangshrossa.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Ágúst Ólafsson.
    Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir
    51 min
  • Björgunarsveitarmaður rifjar upp snjóflóð. Rafíþróttir
    Í þætti dagsins er rætt við Magnús Einar Magnússon, formann björgunarsveitarinnar Sæbjargar á Flateyri. Magnús rifjar upp snjóflóðin sem féllu þann 14. janúar 2020 og talar um lífið á Flateyri. Í þættinum verður auk þess fjallað um rafíþróttir og farið í heimsókn til nýstofnaðs rafíþróttafélags í Bolungarvík, þar sem rætt verður við Þorberg Haraldsson, formann Rafíþróttadeildar Bolungarvíkur. Einnig er rætt við Sigrúnu Jónu Hauksdóttur, hjá Rafíþróttadeild Hattar á Egilsstöðum.
    Efni í þáttinn unnu Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, Halla Ólafsdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Spjallað við Gunna Mall. Æviminningar Guðjóns R. Sigurðssonar
    Í þættinum verður rætt við Gunnar Malmquist Gunnarsson, eða Gunna Mall eins og hann er oftast kallaður. Gunnar er faðir bræðranna Arons Einars og Arnórs Þórs, sem hafa gert það gott í sitthvorri boltagreininni. Aron Einar þekkja flestir fyrir að bera fyrirliðabandið hjá fótboltalandsliðinu. Það var svo tilkynnt á dögunum að bróðir hans, Arnór Þór, væri nýr fyrirliði íslenska handboltaliðsins, sem nú stendur í ströngu á HM í Egyptalandi.
    Í þættinum verður auk þess farið í heimsókn til skáldsins og þýðandans Þórðar Sævars Jónssonar, sem undanfarið hefur sökkt sér í handrit að æviminningum vesturfarans og alþýðulistamannsins Guðjóns R. Sigurðssonar. Guðjón fæddist árið 1903 á Hömrum í Mýrdalshreppi í Austur-Skaftafellssýslu. Hann bjó í Kanada í 37 ár, frá 1924 til 1961 en fluttist þá aftur til Íslands. Hann byggði sér lítið íbúðarhús á Fagurhólsmýri í Austur-Skaftafellssýslu og bjó þar til æviloka. Guðjón andaðist árið 1991 þá 88 ára gamall.
    Efni í þáttinn unnu Óðinn Svan Óðinsson og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    49 min
  • Aðalstræti 16. Ræktun burnirótar. Nökkvi.
    Í þættinum verður fjallað um Aðalstræti 16 á Bolungarvík, ræktun burnirótar á Íslandi og starfsemi Siglingaklúbbsins Nökkva á Akureyri.
    Efnin í þáttinn unnu Halla Ólafsdóttir, Gígja Hólmgeirsdóttir og Ágúst Ólafsson.
    Umsjón: Gígja Holmgeirsdóttir
    51 min

About Sögur af landi

From the publisher's feed

Landsbyggðin, höfuðborgin og allt þar á milli.