Sögur af landi

Sögur af landi

By RÚV
Download on the App Store

Sögur af landi episodes

  • Óðinn Eddy. Óhapp í göngugötunni. Grænavatnsbærinn
    Það kennir ýmissa grasa í þætti dagsins. Við forvitnumst um sögu Óðins Eddy Viðarssonar sem flakkar í sumar um landið á sendibíl. Óðinn er sannkallaður þúsundþjalasmiður en hann er allt í senn kokkur, málari, dansari, nuddari og trúbador. Við heyrum líka af aðgengismálum í göngugötunni á Akureyri þegar Sigrún María Óskarsdóttir segir frá óhappi sem hún varð fyrir þegar dekkin á hjólastólnum hennar festust í brunnloki og hún steyptist úr stólnum. Að lokum fræðumst við um Grænavatnsbæinn í Mývatnssveit sem nýlega fékk hæsta styrkinn úr Húsafriðunarsjóði Minjastofnunar. Það er Benedikt Sigurðarsson sem segir frá æsku sinni á bænum og rifjar upp sögu fólksins sem þar bjó.
    Viðmælendur í þættinum eru Óðinn Eddy Viðarsson, Sigrún María Óskarsdóttir og Benedikt Sigurðarson.
    Efni í þáttinn unnu Halla Ólafsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    49 min
  • Sögur frá Húsavík
    Í þættinum verður flakkað um Húsavík. Við heimsækjum Örlyg Hnefil Örlygsson og heyrum hvernig gengur að koma upp Júróvisionsafninu. Förum líka í skoðunarferð um Húsavíkurkirkju, þar sem við hittum kirkjuvörðinn auk þess sem við spjöllum við skólameistara Framhaldsskólans á Húsavík sem stödd var í kirkjunni við undirbúning á útskriftarhátíð skólans. Heimsækjum Safnahúsið á Húsavík og kíkjum í matvöruverslunina á staðnum. Að lokum fræðir Tryggvi Finnsson okkur um nýtingu heita vatnsins á Húsavík og aðallega þá hvernig heimamenn hafa nýtt vatnið sér til heilsubótar.
    Viðmælendur í þættinum eru: Örlygur Hnefill Örlygsson, Valgerður Gunnarsdóttir, Guðbergur Ægisson, Sólrún Sveinbjörnsdóttir, Ásta Lárusdóttir, Björn Ingvarsson og Tryggvi Guttormur Finnsson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Sunnefa Jónsdóttir: Ofbeldi fyrr á öldum. Bryggjuspjall á Árskógssandi
    Í fyrri hluta þáttarins er farið í heimsókn til Kristínar Amalíu Atladóttur, en Kristín hefur safnað heimildum um Sunnefu Jónsdóttur og aðrar konur sem dæmdar voru til dauða fyrir meint kynferðisbrot fyrr á öldum. Sögu Sunnefu þekkja margir en hún var var í tvígang dæmd til dauða fyrir meinta blóðskömm. Í seinni hluta þáttar er haldið á bryggjuna á Árskógssandi þar sem rætt er við Pétur Sigurðsson, framkvæmdarstjóra útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækisins Sólrúnar ehf. Fyrirtækið var stofnað fyrir sextíu árum þegar feðgar létu smíða fyrir sig bát á Akureyri og enn er útgerðin í eigu sömu fjölskyldu.
    Efni í þáttinn unnu: Rúnar Snær Reynisson og Ágúst Ólafsson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    51 min
  • Konunglegur sérfræðingur. Drottningarbraut. Þórður í Skógum.
    Í þættinum verður farið í konunglegan sagnfræðitíma til Magnúsar K. Hannessonar í Hveragerði, en hann er mikill sérfræðingur í dönsku konungsfjölskyldunni. Við rifjum líka upp sögu Drottningarbrautarinnar á Akureyri. Að lokum heimsækjum við Þórð í Skógum á hundrað ára afmælisdegi hans þar sem hann rifjar upp hið helsta frá áralöngum ferli.
    Efni í þáttinn unnu Margrét Blöndal, Gígja Hólmgeirsdóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    51 min
  • Fuglavernd. Pípulagnir. Fjallaunnandi og Bókakaffi fyrir austan.
    Farið er um víðan völl í þessum þætti. Við byrjum á kynnast Fuglavernd, frjálsum félagasamtökum sem vinna að náttúruvernd. Það er framkvæmdarstjórinn Hólmfríður Arnardóttir sem segir okkur frá samtökunum. Því næst fáum við að kynnast námi í pípulögnum við Verkmenntaskólann á Akureyri. Ræðum þar við Elías Örn Óskarsson, pípulagningarmeistara og kennara við skólann, auk þess sem við heyrum í Birnu H. Bergstað Þórmundsdóttur, nemanda í pípulögnum við VMA. Í seinni hluta þáttar er haldið austur á land. Heimsækjum Bókakaffið Hlöðum í Fellabæ þar sem Gréta Jóna Sigurjónsdóttir fræðir okkur um sögu þessa vinsæla kaffihúss. Að lokum er ferðinni heitið á vinnustofu hönnuðarins Heiðdísar Höllu Bjarnadóttur en hún er mikill fjallaunnandi og nýtir sér fjöll óspart í verkum sínum.
    Efni í þáttinn unnu: Halla Ólafsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Flakkað um Öxarfjörð í Norðurþingi
    Í þessum þætti eru farið á þrjá bæi við Öxarfjörð. Við byrjum á að fá okkur kaffi hjá sauðfjárbóndanum og frumkvöðlinum Guðríði Baldvinsdóttur á Lóni í Kelduhverfi. Hún segir okkur meðal annars frá fyrirtækinu sínu Mórúnum þar sem hún jurtalitar ull. Því næst er farið á bæinn Gilsbakka þar sem þau Guðrún Lilja Dam Guðrúnardóttir og Brynjar Þór Vigfússon reka litla ullarvinnslu. Að lokum er farið á bæinn Leifsstaði en þar býr veðurspámaður sveitarinnar, stórbóndinn Stefán Rögnvaldsson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    51 min
  • Þór Sigurðsson. Grímshús. Loðdýrabúskapur.
    Við förum í þrjár heimsóknir í þættinum. Fyrst er farið til Þórs Sigurðssonar á Akureyri sem nýlega gaf út sína fyrstu plötu. Því næst er rætt við Sigurstein Sigurðsson í Borgarnesi sem segir frá Grímshúsi í Brákarey. Að lokum er farið í heimsókn til loðdýrabóndans Einars Eðvalds Einarsson á Syðra-Skörðugili í Skagafirði.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Elsa María Guðlaugs Drífudóttir og Ágúst Ólafsson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    54 min
  • Sauðfjárverndin. Síldarstúlkur í Roaldsbrakka. Eiðabruninn 1960.
    Í þætti dagsins verður forvitnast um Sauðfjárverndina, farið í heimsókn á Síldarminjasafnið á Siglufirði og forvitnast um líf síldarstúlkna auk þess sem bruninn í alþýðuskólanum á Eiðum árið 1960 er rifjaður upp.
    Efni í þáttinn unnu Margrét Blöndal, Gígja Hólmgeirdsóttir og Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Skíðavikan á Ísafirði. Flakkað um Mývatnssveit
    Í fyrri hluta þáttarins er fjallað um skíðavikuna á Ísafirði, sem nú hefur verið aflýst í þriðja sinn í sögu hátíðarinnar. Flutt verða viðtöl úr safni Ríkisútvarpsins þar sem fjallað er um upphaf Skíðavikunnar á Ísafirði. Þar heyrum segja frá þau Jónu Símonínu Ásgeirsdóttur og Odd Pétursson. Í seinni hlutanum er flakkað um Mývatnssveit þar sem heimsóttir verða þrír heimamenn, þau Ólöf Hallgrímsdóttir bóndi í Vogum, Jóhanna Jóhannesdóttir kennari og lýðheilsufræðingur og Ólafur Þröstur Stefánsson skrúðgarðyrkjumeistari og ferðaþjónustuaðili.
    Efni í þáttinn unnu Halla Ólafsdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Mývatnssveit: Vogafjós. Handverkshúsið Dyngjan. Birkir Fanndal.
    Við flökkum um Mývatnssveit. Förum í heimsókn í Vogafjós þar sem tekur á móti okkur ferðaþjónustubóndinn Ólöf Hallgrímsdóttir. Við forvitnumst líka um starfsemi Dyngjunnar handverkshúss og spjöllum þar við Sólveigu Pétursdóttur. Að lokum förum við í heimsókn á vinnustofu Birkis Fanndal, vélstjóra og handverksmanns.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min

About Sögur af landi

From the publisher's feed

Landsbyggðin, höfuðborgin og allt þar á milli.