Sögur af landi

Sögur af landi

By RÚV
Download on the App Store

Sögur af landi episodes

  • Clyne Castle. Verksmiðjan í Djúpuvík. Leikfangasöfnun.
    Í þætti dagsins verður rætt við Ólafíu Herborg Jóhannsdóttur sem eignaðist bréfabunka ömmu sinnar þegar hún var ung og hefur árum saman grúskað í þeim og skrifað sögu hennar, Herborgarsögu. Þá hefur hún safnað heimildum um tilraunir afa síns, Valdórs Bóassonar, til að ná togaranum Clyne Castle á flot, en sá togari strandaði í apríl árið 1919 á Bakkafjörum í Öræfum.
    Auk þess verður rifjað upp viðtal Péturs Halldórssonar við Skúla Alexandersson, sem fæddist í Kjós í Reykjarfirði á Ströndum 1926. Skúli rifjar upp þegar síldarverksmiðjan reis í Djúpuvík og þegar hún var starfandi. Viðtalið var upphaflega flutt í þættinum Við sjávarsíðuna í desember 2011.
    Að lokum heyrum við í Inga Hans Jónsson í Grundarfirði á Snæfellsnesi en hann er einn upphafsmanna Sögumiðstöðvarinnar þar í bæ, sem er allt í senn sögusafn, bókasafn, upplýsingamiðstöð og bíósalur. Ingi Hans segir frá þeim örlagadegi, þegar hann fann á fullorðinsárum draumabíl æsku sinnar á ferðalagi í Kanada. Það var fyrsta skrefið að því að hann hóf að sanka að sér leikföngum úr æsku sinni og endurbyggði hina sögufrægu Þórðarbúð í Grundarfirði.
    Efni í þáttinn unnu Rúnar Snær Reynisson og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirdóttir
    52 min
  • Káinn. Hringt til Vestmannaeyja. Maltvískífélag Norðurlands
    Í Sögum af landi segir sagnfræðingurinn Jón Hjaltason frá nýútkominni bók sinni um kímniskáldið Káinn. Bókin heitir Fæddur til að fækka tárum: Káinn ævi og ljóð. Í þættinum er einnig hringt til Vestmannaeyja og rætt við Katrínu Laufeyju Rúnarsdóttur, sem er annar tveggja eigenda fréttamiðilsins Tíguls, sem er vefur og blað sem er dreift vikulega í öll hús í Eyjum. Að lokum verður farið í heimsókn til Snorra Guðvarðssonar og spjallað við hann um áhuga hans á viskí og starfsemi Maltviskífélags Norðurlands.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Ágúst Ólafsson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    51 min
  • Riðuveiki. Efnismiðlun. Sögur undan Eyjafjöllum
    Í Sögum af landi verður forvitnast um starfsemi efnismiðlunar Góða hirðisins, nytjamarkaðs Sorpu. Einnig verður fjallað um sauðfjársjúkdóminn riðu. Að lokum verða sagðar sögur undan Eyjafjöllum: Rifjað verður upp brot úr samtali Jóns. R. Hjálmarssonar við Einar Jónsson á Moldnúpi, þar sem þeir ræða sjósókn undir Eyjafjöllum. Auk þess verður hringt í fyrrum sýslumanninn Önnu Birnu Þráinsdóttur, ferðaþjónustubónda, á Varmahlíð undir Eyjafjöllum og rætt við hana um lífið og tilveruna.
    Efni í þáttinn unnu Óðinn Svan Óðinsson, Halla Ólafsdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Sambandssagan Sumar í september. Veflistakonan Ragnheiður Björk.
    Í Sögum af landi í dag fer Rúnar Snær Reynisson í heimsókn til rithöfundarins Svein Snorra Sveinsson á Egilstöðum, en Sveinn Snorri hefur að undanförnu unnið að bók um sambandssögu hans og konu hans, Lornu M. Sveinsson, sem kemur frá Filippseyjum. Tilgangur bókarinnar er meðal annars að vinna gegn fordómum í garð hjónabanda íslenskra karla og filippseyskra kvenna. Bókin heitir Sumar í september.
    Gígja Hólmgeirsdóttir mun síðan kíkja í heimsókn á vinnustofu veflistakonunnar Ragnheiðar Bjarkar Þórsdóttur, sem segir meðal annars frá sambandi hennar við ömmu sína, Ragnheiði Brynjólfsdóttur klæðskera og kennara við Kvennaskólann á Blönduósi. Auk þess segir Ragnheiður frá bók sinni, Listin að vefa, sem kom út á síðasta ári.
    Efni í þáttinn unnu Rúnar Snær Reynisson og Gígja Hólmgeirdsóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    51 min
  • Nýsköpun á Flateyri. Ungur tónlistarmaður. Bændur á Hranastöðum.
    Í Sögum af landi verður rætt við verkefnastjórann Helenu Jónsdóttur á Flateyri um styrki úr Þróunarverkefnasjóði sem nýlega var úthlutað til 15 nýsköpunarverkefna sem talið er að munu hafa jákvæð áhrif á atvinnulíf og samfélagið á Flateyri. Í þættinum verður einnig flutt ítarlegra viðtal við Ásgeir Braga Ægisson, sauðkrækinginn unga, sem hefur á skömmum tíma orðið einn mest spilaði tónlistarmaður landsins á streymisveitunni Spotify. Að lokum í Sögum af landi verður farið í heimsókn á bæinn Hranastaði í Eyjafjarðarsveit, þar sem hjónin Ásta Arnbjörg Pétursdóttir og Arnar Árnason hafa búið í 20 ár og eru þar nú með ríflega 100 mjólkandi kýr og stórt eggjabú.
    Innslög í þáttinn unnu Halla Ólafsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson og Ágúst Ólafsson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirdóttir
    52 min
  • Bruninn á Snartarstöðum, Hulda Á. Stefánsdóttir og Formúla 1.
    Í Sögum af landi verður spjallað við hjónin Guðrúnu Maríu Björnsdóttur og Jóhann Pál Þorkelsson, bændur á Snartarstöðum í Lundareykjadal. 2. júní á þessu ári misstu þau heimili sitt þegar eldur braust út á efri hæð íbúðarhússins á bænum. Eldurinn kviknaði út frá gamalli spjaldtölvu sem var í hleðslu. Þau segja frá atburðarrásinni allt frá brunanum og þangað til dagsins í dag. Í þættinum verður einnig farið í ferðalag aftur í tímann í fylgd með Ragnari Jóhannessyni. Farið verður í heimsókn í Kvennaskólann á Blönduósi þar sem Ragnar ræðir við Huldu Á. Stefánsdóttur skólastýru skólans. Að lokum verður spjallað við Hinrik Wöhler, forstöðumann Húsavíkurstofu, en aðra hverja helgi lýsir hann Formúlu 1 á skandinavísku streymisveitunni Viaplay í beinni útsendingu frá Húsavík.
    Innslög í þáttinn unnu Elsa María Guðlaugs Drífudóttir og Úlla Árdal.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    52 min
  • Menntaskólinn á Tröllaskaga
    Í þætti dagsins verður fjallað um starfsemi Menntaskólans á Tröllaskaga.
    MTR er yngsti framhaldsskóli á landinu og er hefðbundinn framhaldsskóli sem staðsettur er á Ólafsfirði. Skólinn tók til starfa árið 2010 og fagnar því 10 ára starfsafmæli sínu þetta árið. Í þættinum er rætt við Láru Stefánsdóttur, skólameistara MTR, sem hefur starfað við skólann frá upphafi. Einnig er rætt við tónlistarmanninn Katrínu Ýr Óskarsdóttur sem kennir skapandi tónlist frá heimili sínu í London. Í þættinum er auk þess rætt við Sigríði Ástu Hauksdóttur, náms- og starfsráðgjafa og kennara, og hún segir frá áfanga þar sem hún kennir nemendum sálræna skyndihjálp.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    48 min
  • Furðusögur, skrímsli og draugasögur
    Þátturinn í dag er tileinkaður furðusögum, skrímslum og fyrirbærum sem erfitt er að festa hendur á. Hvernig verða draugasögur til? Er líklegt að slíkar sögur verði til með sama hætti í dag? Rætt verður við sálarrannsakendur, næmt fólk og skrímslafræðing.
    Þátturinn var áður á dagskrá 6. nóvember 2016.
    Innslög gerðu Halla Ólafsdóttir, Rögnvaldur Már Helgason og Dagur Gunnarsson.
    Umsjón hafði Dagur Gunnarsson.
    50 min
  • Menntaskólinn á Ísafirði. Siglunes. Kristín Aðalsteinsdóttir
    Í Sögum af landi verður farið í heimsókn í Menntaskólann á Ísafirði og rætt við Heiðrúnu Tryggvadóttur áfangastjóra, en skólinn fagnaði í byrjun októbermánaðar 50 ára afmæli sínu. Í tilefni afmælisins var gert myndband um starf skólans og fáum við að heyra hljóðbrot úr myndbandinu. Í þættinum verður einnig flakkað um Siglunes við Siglufjörð í fylgd með Valgeiri Tómasi Sigurðssyni, en hann er einn þeirra sem berst fyrir verdun Sigluness. Að lokum verður farið í heimsókn til Kristínar Aðalsteinsdóttur prófessors, sem nýverið gaf út tvær bækur þar sem æviminningar fólks eru í forgrunni.
    Efni í þáttinn unnu Halla Ólafsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Kornrækt. Jónas Tryggvason. Rannsóknarverkefnið Future Artic.
    Í þætti dagsins verður fjallað um kornrækt á Íslandi. Spjallað verður við Hermann Inga Gunnarsson, bónda á bænum Klauf í Eyjafirði. Einnig verður fræðst um rannsóknarverkefnið Future Artic, þar sem rannsökuð eru svæði í Ölfusinu sem hitnuðu óvænt eftir að Suðurlandsskjálftinn reið þar yfir 2008. Það er Bjarni Diðrik Sigurðsson, prófessor í skógfræði við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri sem segir frá verkefninu. Í þættinum verða einnig flutt fleiri brot úr viðtali frá árinu 1982 við tónlistarstjórann og bólstrarann Jónas Tryggvason á Blönduósi.
    Efni í þáttinn unnu Ágúst Ólafsson og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    51 min

About Sögur af landi

From the publisher's feed

Landsbyggðin, höfuðborgin og allt þar á milli.