Sögur af landi

Sögur af landi

By RÚV
Download on the App Store

Sögur af landi episodes

  • Flakkað um Blönduós
    Í þessum þætti er flakkað um bæinn Blönduós í Austur-Húnavatnssýslu.
    Þar mun Ágúst Þór Bergsson segja frá gömlu Blöndubrúnni sem búið er að gera upp og verður brátt notuð sem göngubrú yfir í Hrútey, eyju sem stendur mitt í jökulánni Blöndu. Einnig verður farið í heimsókn á eþíópíska veitingastaðinn Teni en þar eldar Liya Behaga eþíópíska rétti í bland við íslenskan heimilismat. Flakkið leiðir okkur einnig inn í stærstu ullarþvottastöð landsins þar sem verksmiðjustjórinn Guðmundur Svavarsson segir frá starfsemi Ullarþvottastöðvar Ístex á Blönduósi. Í framhaldinu rifjum við upp sigur Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps í keppninni Kórar Íslands sem fram fór árið 2017. Spilað er hljóðbrot úr kynningarefni Stöðvar 2 úr þáttunum.
    Að lokum er ferðinni heitið í Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga þar sem skólastjórinn Hugrún Sif Hallgrímsdóttir segir frá sjálfri sér og starfsemi skólans. Hugrún rifjar meðal annars upp sögu Jónasar Tryggvasonar sem gaf húsið sem hýsir Tónlistarskólann. Í safni RÚV er varðveitt viðtal við Jónas sem Guðrún Guðlaugsdóttir tók á heimili Jónasar og flutt í útvarpinu þann 9. maí 1984. Spilað er stutt brot úr þessu viðtali, auk þess sem lag Jónasar, Ég skal vaka í nótt, er spilað í flutningi Samkórsins Bjarkar þar sem einsöngvari er Þórhallur Barðason.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Nýtin systkini í Fljótsdal. Ágústa á Reistarnesi. Ljósmyndun á safni.
    Í Sögum af landi í dag verður forvitnast um sögu fjórtán systkina sem fæddust á bænum Egilsstöðum í Norðurdal í Fljótsdal snemma á síðustu öld. Níu þeirra giftust aldrei heldur bjuggu saman félagsbúi á bænum og þóttu mikið hagleiksfólk, einstaklega nýtin og hentu engu. Í þættinum verður farið inn í Norðurdal í Fljótsdal til að vitja um sögu þessara systkina.
    Í þættinum verður auk þess farið í heimsókn á Melrakkasléttu og rætt við eigenda fjárhundarins Tímons, sem fannst um síðustu helgi í gjótu, þar sem hann sat hafði setið fastur í tíu daga, eftir að hafa týnst við smölun í Blikalónsdal á Sléttu.
    Í þættinum verður rætt við eigendur um björgunina sem og búskapinn. Einnig verður fylgst með skráningu á safnkosti á Minjasafninu á Akureyri, þar sem nú er verið að ljósmynda og skrásetja gömul Íslandskort og handmálaðar ljósmyndir.
    Efni í þáttinn unnu Rúnar Snær Reynisson, Óðinn Svan Óðinsson og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    51 min
  • Flakkað um Grenivík
    Í þessum þætti er flakkað um Grenivík í Grýtubakkahreppi við Eyjafjörð. Rætt er við Guðnýju Sverrisdóttur sem var sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi og Grenivík í 27 ár. Hún gefur okkur innsýn inn í þróunina á svæðinu síðustu ár. Einnig verður rætt við hjónin Jón Stefán Ingólfsson og Jórlaugu Daðadóttur sem reka verslunina Jónsabúð í hjarta þorpsins. Því næst er farið í heimsókn til hjónanna Bjarna Arasonar og Þórunnar Indíönu Lúthersdóttur sem hafa frá árinu 2016 rekið ferðaþjónustufyrirtækið Cape Tours þar sem farið er í persónulegar ævintýraferðir út frá Grenivík. Að lokum verið spjallað við Gísla Gunnar Oddgeirsson um árangur íþróttafélagsins Magna í knattspyrnu.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Elfríð Pálsdóttir segir sögu sína
    Í þætti dagsins er farið í heimsókn til Elfríð Pálsdóttur á Egilsstöðum og segir hún hlustendum sögu sína.
    Elfríð fæddist nálægt Lübeck í Norður-Þýskalandi árið 1930 og ólst upp í Þýskalandi nasista. Hún er ein af þýsku stúlkunum sem komu sem vinnukonur til Íslands eftir að hafa upplifað hörmungar seinni heimstyrjaldarinnar á eigin skinni, misst foreldra og systkini. Þegar hún Elfríð kom til Íslands upplifði hún mikla fátækt sem vinnukona á Siglunesi en eftir að hún kynntist manni sínum, Erlendi Magnússyni sem nú er látinn, byggði hún upp sitt eigið líf í nýju landi. Þau hjónin bjuggu saman á Dalatanga í 26 ár.
    Rúnar Snær Reynisson hitti Elfríð í janúar í fyrra og var stutt viðtal við hana flutt í þessum þætti síðasta vetur. Nú ætlum við að gefa Elfríð meira pláss og heyra viðtalið í heild sinni, enda full ástæða til.
    Umsjón: Rúnar Snær Reynisson og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    52 min
  • Að flytja hús. Uppskerutími. Héðinsfjörður
    Í Sögum af landi verður sagt frá því þegar heilt hús kom keyrandi eftir veginum í Höfðahverfi í Grýtubakkahvreppi í miðjum sauðburði í vor, og það er Þórarinn Ingi Pétursson bóndi sem segir þá sögu. Í þættinum verður auk þess farið í heimsókn til Elínar Bjarkar Jóhannsdóttur, bókmenntafræðings í Teigahverfinu í Reykjavík, sem hefur ýmsar sögur að segja af grænmetisræktun og haustuppskeru. Í lok þáttar verður pælt í landslagi, og það er Tinna Gunnarsdóttir, vöruhönnuður og prófessor við Listaháskóla Íslands sem segir frá tilvistarrannsókn sem hún vinnur nú að í Héðinsfirði, þar sem athyglinni er beint að íslensku landslagi og það skoðað út frá sjónarhorni vöruhönnunar.
    Efni í þáttinn unnu Ágúst Ólafsson, Halla Ólafsdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    48 min
  • Sögur frá Mývatni og Háskólanum á Bifröst
    Sögur af landi hefja aftur göngu sína í dag eftir sumarfrí. Í þættinum er rætt við Mývetninginn Inga Þór Yngvason, en hann var einn þeirra sem tók þátt í sprengingunni á Miðkvíslarstíflu fyrir 50 árum síðan. Ingi Þór segir frá veiðiskap og fuglavernd við Mývatn, þátttöku sinni í Miðkvíslarsprengingunni, sem og forláta fallbyssu sem hann neyddist til að fela fyrir yfirvöldum. Í þættinum verður einnig farið í heimsókn í Háskólann á Bifröst. Þar er rætt við Margréti Jónsdóttir Njarðvík, sem tók við starfi rektors í sumar. Þar var auk þess rætt við þau Egil Örn Rafnsson og Bryndísi Ingu Reynis, nemendur við skólann sem nýfluttir eru í háskólaþorpið á Bifröst.
    Efni í þáttinn unnu Úlla Árdal og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    47 min
  • Sumar: Lífið í Svarfaðardal. Saga af veðurofsa.
    Í dag er komið að níunda og síðasta þættinum í sumarþáttaröð Sagna af landi, þar sem tínt hefur verið saman efni frá liðnum vetri fyrir hlustendur að njóta í sumar. Í þætti dagsins verður hugleitt um veðrið og rifjað upp viðtal við Rannveigu Karlsdóttur sem sagði sögu langafa síns sem fórst þegar mannskaðaveður gekk yfir landið árið 1935. Í þættinum verður einnig endurflutt viðtal við Gunnhildi Gylfadóttur, bónda á bænum Steindyrum í Svarfaðardal, þar sem hún segir frá lífinu í sveitinni og rifjar upp aðstæður í Svarfaðardal þegar aðventustormurinn gekk yfir landið í vetur.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Sumar: Verksmiðjurnar á Gleráreyrum
    Í dag er komið að áttunda og næstsíðasta þættinum í sumarþáttaröð Sagna af landi, þar sem tínt hefur verið til efni frá liðnum vetri fyrir hlustendur að njóta í sumar. Í þætti dagsins verður rifjuð upp saga verksmiðjanna á Gleráreyrum á Akureyri og hugleitt hvernig við munum söguna og hvernig við varðveitum minningar um veröld sem var.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Sumar: Tréð Margrét. Borgarnes borðar saman. Skógarbóndi fyrir austan.
    Sumarþáttaröð Sagna af landi heldur áfram, þar sem týnt er til efni frá liðnum vetri fyrir hlustendur til að njóta í sumar. Í þessum sjöunda þætti verður rifjuð upp heimsókn inn í Kjarnaskóg þar sem dáðst var að tignarlegri hengibjörk sem ber nafnið Margrét, eða jafnvel Frú Margrét. Í þættinum verður einnig rifjuð upp umfjöllun um áhugavert samfélagsverkefni í Borgarnesi sem nefnist Borgarnes borðar saman. Að lokum verður endurflutt viðtal við skógarbónda á Austurlandi þar sem fræðst var um könglasöfnun og frætýnslu.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirdsóttir, Elsa María Guðlaugs Drífudóttir og Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Sumar: Vatnavextir í Fljótsdal. Saga sjómannsfjölskyldu.
    Sumarþáttaröð Sagna af landi heldur áfram, þar sem týnt er til efni frá liðnum vetri fyrir hlustendur til að njóta í sumar. Í þessum sjötta þætti verður rifjaður upp örlagaríkur dagur í Fljótsdal fyrir næstum 40 árum, þegar þrír menn urður innlyksa vegna mikilla vatnavaxta og þurftu að berjast fyrir lífi sínu. Í þættinum verður rifjað upp viðtal við hjónin Stefán Lárus Pálsson og Elsu Sigurðardóttur á Akranesi sem sögðu frá lífi sjómannsfjölskyldu.
    Efni í þáttinn unnu Rúnar Snær Reynisson og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min

About Sögur af landi

From the publisher's feed

Landsbyggðin, höfuðborgin og allt þar á milli.