Sögur af landi

Sögur af landi

By RÚV
Download on the App Store

Sögur af landi episodes

  • Stríðsárin á Reyðarfirði
    Á þessu ári eru liðin 80 ár frá því að Bretar hertóku Íslandi í seinni heimstyrjöldinni. Þann tíunda maí árið 1940 lögðust fjögur herskip að bryggju í Reykjavík og á næstu vikum kom herinn sér fyrir víðar á landinu. Á Austurland voru aðalbækistöðvar hersins á Reyðarfirði og gjörbreytti hernámið þorpinu. Allt í einu var næga vinnu að hafa og herinn borgaði svo vel að jafnvel unglingar gátu á einni viku fengið tvöfalt meira en sumt fullorði fólk fékk í mánaðarkaup. Enn er til fólk sem man vel eftir stríðinu og í þessum þætti ætlum við að hverfa aftur til stríðaáranna á Reyðarfirði.
    Í þættinum ræðir Rúnar Snær Reynisson við Vigfús Ólafsson og Guðmund Magnússon sem báðir eru fæddir fyrir hernám. Þeir þurftu að leita skjóls í loftvarnarbirgum eins og aðrir bæjarbúar og muna hvernig Reyðarfjörður og þorpið þar Búðareyri gjörbreyttist. Rúnar fór einnig í heimsókn á Stríðsárasafnið þar sem hann hitti Einar Þorvarðarson.
    Efni í þáttinn vann Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Heimstyrjöld á Seyðisfirði
    Í þessum þætti er ferðast aftur til fimmta áratugarins og rifjaðar upp sögur úr stríðinu, meðal annars þegar Þjóðverjar vörpuðu sprengjum á breska tankskipið El Grillo. Það er Seyðfirðingurinn Jóhann Sveinbjörnsson sem segir frá en þegar hann var barn horfði hann á Þjóðverja og Breta berjast í firðinum. Jóhann hefur alla tíð verið hugfanginn af stríðinu og munir í hans eigu gætu fyllt heilt safn og sögurnar heila bók. Rúnar Snær Reynisson heimsótti Jóhann.
    Efni í þáttinn vann Rúnar Snær Reynisson. Þátturinn var áður á dagskrá 15. september 2019.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    49 min
  • Brothættar byggðir
    Við beinum sjónum okkar að Brothættum byggðum, verkefni á vegum Byggðastofnunar þar sem markmiðið er að ná fram skoðunum íbúanna sjálfra á framtíðarmöguleikum heimabyggðarinnar. Í þessum þætti er farið í heimsókn á Borgarfjörð eystra og til Hólmavíkur á Ströndum. Íbúar á Borgarfirði eystra hafa verið þátttakendur í verkefninu Brothættar byggðir í núna tvö ár og hafa nýtt sér vel þann stuðning sem þar býðst. Yfir tuttugu verkefni hafa hlotið styrki og nokkur ný fyrirtæki verið stofnuð. Strandabyggð er síðan nýjasti meðlimurinn að verkefninu og þurfa þau að fara nýjar leiðir í upphafi vegna heimsfaraldurs Covid-19. Viðmælendur í þættinum eru Alda Marín Kristinsdóttir, verkefnastjóri Brothættra byggða á Borgarfirði eystra, og Esther Ösp Valdimarsdóttir, sem situr í framkvæmdaráði Brothættra byggða í Strandabyggð.
    Í þættinum er einnig rifjaður upp hluti af innslagi úr fréttaskýringarþættinum Kveik. Þar var farið til Raufarhafnar sem hafði þá nýlokið þátttöku sinni í Brothættum byggðum í lok árs 2017.
    Efni í þáttinn unnu Ágúst Ólafsson og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Flakkað um Svarfaðardal og Skíðadal: Seinni hluti
    Í þessum þætti af Sögum af landi verður flakkað um Svarfaðardalinn og íbúar þar teknir tali. Þetta er seinni þátturinn af tveimur þar sem flakkað er um sveitir Svarfaðardals og Skíðadals. Í þessum seinni þætti verður farið í heimsókn á bílaverkstæðið á Bakka, þar sem forvitnast verður um starfsemi verkstæðisins, um vinsæla kaffistofu sem þar er til húsa auk þess sem einn af starfsmönnum verkstæðisins fræðir okkur um Matarhornið, gamansöm Facebook-myndbönd þar sem matur og mannlíf sveitarinnar er í forgrunni. Í þættinum er einnig skroppið í kaffi á bæinn Tjörn, þar sem rætt verður um náttúru og mannlífið á svæðinu. Að lokum verður farið í heimsókn til ungra bænda sem nýlega festu kaup á jörðinni Hrafnsstöðum og létu þar með gamlan draum um að búa í sveit rætast.
    Viðmælendur í þættinum eru Alfreð Viktor Þórólfsson, Þór Ingvason, Kristján Eldjárn Hjartarson, Berglind Stefánsdóttir og Magnús Helgi Jónson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Flakkað um Svarfaðardal og Skíðadal: Fyrri hluti
    Í þættinum er farið á flakk um Svarfaðardal og Skíðadal og íbúar teknir tali. Í þessum fyrri þætti er farið fram í Skíðadal og hjónin Dagur Óskarsson og Bryndís Hrund Brynjólfsdóttir heimsótt, en þau búa á bænum Þverá. Þau segja frá lífi þeirra, hvað varð til þess að þau ákváðu að flytja út í sveit og hvaða áskoranir fylgja því að gera upp gamlan sveitabæ. Ferðinni er síðan heitið til Steindyra, bæjar í vestanverðum Svarfaðardal, og þar tekur á móti okkur Gunnhildur Gylfadóttir. Hún segir frá búskapnum á Steindyrum og rifjar upp óveðrið í desember þegar þessi sveit var án rafmagns í marga daga auk þess sem samgöngur og fjarskipti lágu niðri.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    52 min
  • Neskaupstaður að fornu og nýju. Hekluhestar
    Í þætti dagsins er ferð okkar heitið á Suður- og Austurlandið. Fyrir austan fræðumst við um landnótaveiðar og sögu gamla Lúðvíkshúss sem hefur þjónað mörgum hlutverkum í Norðfirði síðan það var reist árið 1881. Það er Smári Geirsson kennari í Neskaupstað sem segir frá. Við heyrum einnig gamla upptöku frá árinu 1960 þegar Stefán Jónsson var á ferð í Norðfirði og talaði þar við sjómenn og starfsfólk í fiskisölu og fiskvinnslu. Á Suðurlandi forvitnumst við um hestaleiguna Hekluhesta sem boðið hefur upp á skipulagðar hestaferðir í 40 ár, en það er ferðaþjónustubóndinn Aníta Ólöf Jónsdóttir sem segir okkur frá starfseminni. Rifjum líka upp Heklugosið 1980 sem má segja hafi markað upphaf Hekluhesta.
    Efni í þáttinn unnu Rúnar Snær Reynisson og Úlla Árdal.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    52 min
  • Amman í búningunum. Út á túni. Kór eldriborgara á Höfn í Hornafirði.
    Í þættinum er rætt við Eygló Egilsdóttur í Borgarnesi. Þegar barnabörnin hennar urðu að fara í sóttkví brá hún á það ráð að klæða sig upp sem allskonar furðuverur og banka á gluggann þeirra á hverjum degi. Bæði til að hafa ofan af fyrir þeim og sjálfri sér. Við sláum einnig á þráðinn til bóndans Sigrúnar Júníu Magnúsdóttur og forvitnumst um hlaðvarpsþáttinn Út á túni. Að lokum verður rifjað upp innslag sem flutt var í þessum þætti sumarið 2019, þar sem rætt var við meðlimi kórs eldri borgara á Höfn í Hornafirði um lífið og tilveruna.
    Efni í þáttinn unnu Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, Úlla Árdal og Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Kulnun. Harðfiskverkun. Stangveiði.
    Í Sögum af landi í dag verður rætt við Ingu Dagnýju Eydal um nýútkomna bók hennar, Konan sem datt upp stigann, en þar segir hún sögu sína og upplifun af kulnun. Í þættinum verður einnig slegið á þráðinn til Helgu Björgu Eiríksdóttur og spjallað við hana um harðfiskverkun sem komin er á fullt á Borgarfirði eystri. Auk þess verður rætt við fiskifræðinginn og stangveiðimanninn Erlend Steinar Friðriksson um vorið og komandi stangveiðitíma.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Úlla Árdal og Ágúst Ólafsson.
    Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Sögurnar hans Bubba eru sögurnar okkar
    Í þessum þætti sækjum við innblástur í plötuna Sögur af landi sem Bubbi Morthens gaf út árið 1990. Lögin á plötunni eru í þjóðlagastíl og textarnir draga fram myndir af lífinu í landinu í allri sinni mannlegu fegurð. Efnistök þáttarins tengjast innihaldi laganna og við fáum að heyra nýjar sögur af landi í samhengi við sögurnar hans Bubba. Við heyrum af skautaiðkun, byggðaþróun og sjómannslífinu.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Þórgunnur Oddsdóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    54 min
  • Leirlistakona. Sköpun bernskunnar. Hjólabrettaiðkun
    Í þessum þætti af Sögum af landi verður farið í heimsókn á vinnustofu leirlistakonunnar Margrétar Jónsdóttur. Heyrum einnig af undirbúningi sýningarinnar Sköpun bernskunnar á Listasafninu á Akureyri. Kíkjum á framkvæmdir Eiríks Helgasonar sem vinnur núna hörðum höndum að því að koma upp innanhúsaðstöðu fyrir hjólabretti í heimabæ sínum Akureyri.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir og Óðinn Svan Óðinsson.
    Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min

About Sögur af landi

From the publisher's feed

Landsbyggðin, höfuðborgin og allt þar á milli.