Sögur af landi

Sögur af landi

By RÚV
Download on the App Store

Sögur af landi episodes

  • Öskudagurinn á Blikkrás. Aðbúnaður geðsjúkra. Hótel Skúlagarður.
    Í þættinum verður kíkt í heimsókn í blikksmiðjuna Blikkrás á Akureyri en starfsfólkið þar hefur sérstakt dálæti á öskudeginum. Við heyrum einnig af aðbúnaði geðsjúkra á Íslandi fyrr á tímum. Að lokum skellum við okkur í heimsókn til ungra sauðfjárbænda í Kelduhverfi sem bættu óvænt hótelrekstri við búskapinn. Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Þórgunnur Oddsdóttir og Ágúst Ólafsson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    0 min
  • Stefán Aðalsteinsson ættfræðingur
    Í þessum þætti af Sögum af landi verður fjallað um ævi og störf ættfræðingsins Stefáns Aðalssteinssonar. Stefán skrifaði meðal annars ritið Svarfdælingar og var langt kominn með samskonar rit um Eyfirðinga, þegar hann féll frá langt fyrir aldur fram. Sögufélag Eyfirðinga varðveitti handritið að því riti og gaf það nýlega út. Í þættinum er rætt við Hauk Ágústsson, kennara og meðlim í ritnefndinni sem sá um útgáfu verksins. Auk þess er spjallað við Láru Ágústu Ólafsdóttur, héraðsskjalavörð á Héraðsskjalasafninu á Akureyri, en handskrifað handrit Stefáns er þar varðveitt.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Flugsafn Íslands. Borgarnes borðar saman. Konur í slökkviliðinu
    Í þessum þætti af Sögum af landi förum við í heimsókn á Flugsafn Íslands, er þar er meðal annars að finna hina þekktu björgunarþyrlu TF SIF. Í þættinum verður einnig spjallað um lítið samfélagsverkefni á Borgarnesi sem gengur út á að bæjarbúar hittast og borða saman kvöldmat. Að lokum verður rætt við tvær konur í slökkviliðinu á Akureyri en átak hefur verið gert í að fá fleiri konur til starfa á slökkvistöðvum landsins.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Elsa María Guðlaugs Drífudóttir og Óðinn Svan Óðinsson.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    51 min
  • Söngleikur í Samkomuhúsinu. Réttindi fatlaðs fólks. Pönkaður forstjóri
    Í þættinum verður farið í heimsókn í Samkomuhúsið á Akureyri þar sem rætt verður við leik- og söngkonuna Jónínu Björt Gunnarsdóttur, sem sýnir um þessar mundir söngleikinn Vorið vaknar hjá Leikfélagi Akureyrar. Einnig verður rætt við Ingu Margrétar- Bjarnadóttur baráttukonu, um hindranir sem mæta fötluðu fólki til dæmis innan menntakerfisins. Að lokum verður spjallað við Eydísi Líndal Finnbogadóttur forstjóra Landmælinga Íslands og meðlim í kvennapönkhljómsveitinni Hellidembu.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Þórgunnur Oddsdóttir og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.
    Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • 40 daga verslunarpása. Sælusápur. Vatnavextir í Fljótsdal
    Í Sögum af landi verður farið til Þórshafnar á Langanesi, þar sem spjallað verður við bændur sem reka litla sápu- og kertagerð í bílskúrnum. Heyrum einnig af hverju hjón á Akureyri ákváðu að kaupa ekki inn mat í 40 daga heldur borða frekar það sem þau eiga í hillum, skápum og frystikistu. Í þættinum verður auk þess rifjaður upp örlagaríkur dagur í Fljótsdal fyrir næstum 40 árum þegar þrír menn þurftu að berjast fyrir lífi sínu í miklum vatnavöxtum.
    Efni í þáttinn unnu Rúnar Snær Reynisson, Gígja Hólmgeirsdóttir og Ágúst Ólafsson.
    Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    51 min
  • Freyvangsleikhúsið
    Við kíkjum á æfingu hjá Freyvangsleikhúsinu og spjöllum við nokkra meðlimi leikhópsins um lífið í leikhúsinu.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Minningar um veðurofsa. Hvammstangi. Hjálpræðisherinn
    Í þættinum verður rifjað upp mannskaðaveður sem gekk yfir landið fyrir tæpum 85 árum síðan. Einnig verður farið í heimsókn á bóka- og héraðsskjalasafnið á Hvammstanga og farið í fjársjóðsleit í einum nytjamarkaða Hjálpræðishersins.
    Efni í þáttinn unnu Gígja Hólmgeirsdóttir, Þórgunnur Oddsdóttir og Úlla Árdal.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    51 min
  • Verslunarrekstur og Minjasafnið á Akureyri
    Í þættinum heyrum við í verslunareiganda í tískuvöruverslun sem staðið hefur vaktina síðustu þrjátíu árin. Við förum einnig í heimsókn á Minjasafnið á Akureyri og fræðumst um starfsemina þar.
    Efni í þáttinn unnu Ágúst Ólafsson, Úlla Árdal og Gígja Hólmgeirsdóttir.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    50 min
  • Akureyrarveikin
    Í þessum þætti hverfum við rúm 70 ár aftur í tímann. Fjallað verður um Akureyrarveikina sem geysaði veturinn 1948-1949 og lagði um 7% bæjarbúa á Akureyri í rúmið. Samkomubann var meðal annars sett á og skólum lokað til þess að hefta útbreiðslu veikinnar. Þátturinn var áður á dagskrá þann 20. desember 2019. Í ljósi aðstæðna var ákveðið að endurflytja þáttinn.
    Efni í þáttinn vann Þórgunnur Oddsdóttir.
    Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min
  • Minningar af aðventu og stríðsárum
    Í þessum þætti ætlum við að ferðast aftur í tímann og til Þýskalands stríðsáranna. Við förum í fylgd með Helgu Ruth Alfreðsdóttur en hún býr á Egilsstöðum þar sem hún starfaði lengi sem íþróttakennari. Rúnar Snær Reynisson hitti Helgu núna á aðventunni þar sem hún var við sína uppáhaldsiðju; að baka hið þýska Stollen-brauð fyrir jólin.
    Efni í þáttinn gerði Rúnar Snær Reynisson.
    Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir.
    50 min

About Sögur af landi

From the publisher's feed

Landsbyggðin, höfuðborgin og allt þar á milli.