Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Spegilmyndin er mannlífsþáttur um kvenheilsu, heilbrigðan lífsstíl, mataræði, hreyfingu, tískustrauma, líkamsvirðingu og fegrunar- og lýtaaðgerðir. Höfundur og þáttastjórnandi er Marín Manda Magnúsdót... more
FAQs about Spegilmyndin:How many episodes does Spegilmyndin have?The podcast currently has 65 episodes available.
April 23, 202435. Hekla Guðmundsdóttir - „Bandvefslosun bjargaði mér eftir ítrekuð áföll"Hin dásamlega Hekla Guðmundsdóttir er viðmælandi í Spegilmyndinni að þessu sinni. Hekla hefur gengið í gegnum röð áfalla á sinni lífstíð en hefur tekist á við þau verkefni af mikilli þrautseigju og jákvæðni. Hún var frá vinnumarkaði í um 14 ár vegna veikinda en hefur í dag fundið sína köllun. Bandvefslosun er hennar hugarfóstur en það kennir hún í Dans og jóga ásamt því að halda pop up viðburði reglulega. Hekla deilir sögu sinni af mikilli einlægni í þessum þætti og lýsir því hvernig Bandvefslosun bjargaði henni eftir röð áfalla. * Þessi þáttur er í boði Neostrata húðvörur og Netgíró sem er örugg og einföld greiðsluleið. ...more56minPlay
April 17, 202434. Helga Ólafsdóttir - „Stundum finnst mér ég geta sigrað heiminn"Helga Ólafsdóttir er nýjasti viðmælandinn í Spegilmyndinni. Hún starfar í dag sem stjórnandi Hönnunarmars sem er hátíð hönnunar og arkitektúrs. Helga er með gríðarlega víðtæka reynslu í heimi hönnunar, þróunar skapandi verkefna, í stjórnun og rekstri. Hún er með BA gráðu í fatahönnun og vöruþróun frá Hellerup Textile College í Kaupmannahöfn og fatahönnun frá Kent Institute of Art and Design á Englandi. Í 11 ár rak hún hönnunarfyrirtækið sitt Ígló og Indí með barnaföt og hefur starfað sem hönnuður hjá All Saints á Englandi, yfirhönnuður hjá Ilse Jacobsen og vöruþróunarstjóri hjá Nikita. Í þessum þætti ræðir hún Hönnunarmars og margt annað sem tengist ástríðunni að hanna og skapa. * Þessi þáttur er í boði Neostrata húðvörur og Netgíró sem er örugg greiðsluleið. ...more32minPlay
April 08, 202433. Judith Jóhannsdóttir -„Nefið stjórnaði of miklu í lífinu mínu“Í þessum þætti ræðir Marín Manda við Judith Jóhannsdóttur hjúkrunarfræðinema, en hún ferðaðist til Tyrklands fyrir nokkrum vikum síðan og lagðist undir hnífinn til þess að fá nefið sem hana hafði dreymt um. Síðan hún man eftir sér átti hún erfitt með að sætta sig við nefið sitt, þrátt fyrir að hafa ekki skort sjálfstraust. Hún var staðráðin í því að breyta nefinu og lét til skarar skríða fyrir nokkrum vikum. Hún er himinlifandi með útkomuna þó hún sé enn að venjast nýrri útgáfu af sjálfri sér. Hér er á ferðinni ákaflega skemmtileg ung kona sem deilir sögu sinni á skondin en einlægan hátt ** Þessi þáttur er í boði Neostrata og Netgíró ...more50minPlay
March 31, 202432. Lilja Sigurgeirsdóttir - „Ég brenn fyrir því að hjálpa fólki að eldast vel"Lilja Sigurgeirsdóttir er eins og ferskur andblær þegar hún kemur inn í upptökuverið, en hún er nýjasti viðmælandinn í Spegilmyndinni. Hún hefur aldrei verið þessi týpíska liðuga fimleikastelpa en starfar sjálfstætt í dag sem liðleika og hreyfanleika þjálfari. Lilja hefur verið með vinsæl námskeið sem heita Stirðir strákar og Flex Fit og segir alltof marga vera að eiga við stoðkerfisvandamál í dag. Nútimasamfélagið hafi gert það að verkum að fólk hafi hætt að hreyfa eins og áður þegar við vorum veiðimenn og því þurfi að bæta úr. Áhugavert og skemmtilegt spjall við Lilju sem segist brenna fyrir því að hjálpa fólki að eldast vel í eigin líkama. ...more50minPlay
March 21, 202431. Jara Gian Tara stjörnuspekingur - „Ég get hjálpað þér að tengjast þínum innri töfrum"Jarþrúður eða Jara Gian Tara er viðmælandi Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Hún er mögnuð kona. Hún er listakona, jógakennari og stjörnuspekingur sem semur tónlist og lærði heimspeki við Háskóla Íslands. Jara trúir á stjörnurnar og Human design. Hún aðhyllist stjörnuspeki og dulspeki og segir að það skipti máli hvenær og hvar við fæðumst. Jara vill meina að við höfum öll tilgang en oft þurfum við að komast í dýpri tengingu við okkur sjálf til þess að lífið verði magískt. Marín Manda ræddi við hana um alla þessa hluti og fékk hana örlítið til að skyggnast inn í stjörnukortið hennar. Þessi þáttur eru í boði Neostrata og Netgíró. ...more57minPlay
March 15, 202430. Björn Þór Sigurbjörnsson - Stóralvarlegt að nota megrunarlyf til að komast í betra form fyrir TeneBjörn Þór Sigurbjörnsson eða Bjöddi þjálfari er nýjasti gestur Marín Möndu í Spegilmyndinni. Björn er einnig Ostopatíu nemandi og starfar í World Class. Hann er með yfir 20 ára reynslu af heilsu -og líkamsræktargeiranum og margir skjólstæðingar hans í dag eru konur á breytingaskeiðinu. Hér er á ferðinni ansi fræðandi og skemmtilegt spjall við Björn sem hefur sterkar skoðanir á matarkúrum, markaðsöflunum og hugarfari. Samkvæmt honum þarftu að hafa hugann í lagi til þess að þjóna líkamanum sem allra best, bæði á æfingum og í lífinu. *Þessi þáttur er í boði Neostrata húðvörur og Netgíró - örugg og þægileg greiðslulausn. ...more1h 9minPlay
March 07, 202429. Berglind Guðmundsdóttir - „Ég þurfti að kveðja hver ég var og uppgötva sjálfa mig á ný"Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og markþjálfi er nýjasti gestur Spegilmyndarinnar. Hún er mikill matgæðingur, hefur gefið út matreiðslubækur og rak Gulur rauður grænn og salt, eitt vinsælasta matarblogg um langt skeið. Fyrir ekki svo löngu síðan stóð hún á tímamótum þegar hún þurfti að kveðja vörumerkið sitt og það tók virkilega á. Berglind er dásamlega skemmtileg og einlæg kona sem í dag heldur úti Instagram miðlinum Lífsgleðin og vefmiðlinum Salina. Einnig sér hún um fararstjórn í skemmtiferðum fyrir konur til Ischia á Ítalíu. Mögnuð kona hér á ferð sem í dag segist einungis gera það sem gleður sig og þráir að lyfta öðrum konum upp. * Gleðiferð fyrir konur til Ischia: Hér Þessi þáttur í boði Neostrata sem eru frábærar húðvörur sem vinna gegn ýmsum húðvandamálum og öldrun húðarinnar. Vörurnar fást hjá Hverslun. ...more56minPlay
March 01, 202428. Ásdís grasalæknir - Heilbrigður lífstíll er lykilþáttur fyrir hormónaheilsu kvennaÁsdís Ragna Einarsdóttir grasalæknir er nýjasti viðmælandi Marín Möndu í Spegilmyndinni. Hún hefur rekið sína eigin stofu um árabil en hún útskrifaðist með BSc í grasalækningum frá University of East London árið 2005. Í dag hefur hún sérhæft sig í kvenheilsu og þótti því viðeigandi að ræða breytingarskeið kvenna, mataræði og ýmis náttúruleg bætiefni sem konur geta stuðst við á þessu tímabili. Ásdís starfar einnig í dag með GreenFit og hefur sjálf prófað allt undir sólinni í mataræði. Ásdís er skemmtileg og yndisleg kona sem þið getið fundið á Instagram: asdisgrasa * Þessi þáttur er í boði NEOSTRATA sem eru húðvörur sem fást í öllum helstu apótekum en einnig Hverlsun. ...more37minPlay
February 19, 202427. Hilmir P. Hjálmarsson öndunarþjálfari - Reis upp úr þunglyndi og lærði að anda réttHilmir Petersen Hjálmarsson starfaði áður sem bakari en starfar í dag sem öndunarþjálfari og gengur undir nafninu Breatheviking á samfélagsmiðlum. Hann er nýjasti viðmælandi Marín Möndu í Spegilmyndinni. Hann ræðir á mjög einlægan hátt hvernig hann upplifði mikið þunglyndi í fjölda ára og var búin að ákveða hvenær, hvernig og hvar hann ætlaði að taka eigið líf. Í dag er hann nýr og breyttur maður og deilir með hlustendum hvernig hann náði að vinna sig út úr þessum erfiðleikum. Í dag aðstoðar hann fólk við að læra rétta öndun til þess að brjótast út úr stressi og vanlíðan til að verða heil. Mögnuð vegferð hjá áhugaverðum manni sem segir að rétt öndun getur raunverulega breytt hugarfari og lífi fólks. ...more1h 1minPlay
February 12, 202426. Kristín Edda & Sigríður hjá Spjöru - Leigja "boost" fyrir sjálfstraustið á sjálfbæran háttAð þessu sinni eru það Kristín Edda Óskarsdóttir og Sigríður Guðjónsdóttir sem komu í spjall í Spegilmyndina, en þær eru eigendur fataleigunnar og umboðssölunnar Spjöru. Þessar frábæru konur sem eru fullar af eldmóð, ákváðu að opna fataleigu fyrir sparilegri tilefni og leigja út fallega merkjavöru með sjálfbærni og umhverfismál að leiðarljósi. Þær fengu þessa hugmynd til þess að sporna við textílvandanum með von um það að fá fólk til þess að hugsa tísku upp á nýtt. ...more55minPlay
FAQs about Spegilmyndin:How many episodes does Spegilmyndin have?The podcast currently has 65 episodes available.