Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Spegilmyndin er mannlífsþáttur um kvenheilsu, heilbrigðan lífsstíl, mataræði, hreyfingu, tískustrauma, líkamsvirðingu og fegrunar- og lýtaaðgerðir. Höfundur og þáttastjórnandi er Marín Manda Magnúsdót... more
FAQs about Spegilmyndin:How many episodes does Spegilmyndin have?The podcast currently has 65 episodes available.
August 13, 202315. Linda Björg Árnadóttir - „Auðvitað hefur tíska líka alltaf verið notuð til að blekkja“Að þessu sinni er textíl og fatahönnuðurinn Linda Björg Árnadóttir gestur hlaðvarps Spegilmyndarinnar. Linda er einnig stofnandi Scintilla sem er íslenskt hönnunarfyrirtæki þekkt fyrir frumlega hönnun á mynstrum á vefnaðarvöru og fylgihlutum fyrir heimilið. Linda segir frá vegferð sinni sem hönnuður, árunum í París og áhugaverðu doktorsnámi sínu í félagsfræði tískunnar. Hún segir það vera augljóst mál að tíska er fyrst og fremst tæki til breytinga. Bakhjarl þáttarins er húðvörumerkið Neostrata sem fæst í öllum helstu apótekum en einnig hjá Hverslun.is - hér!...more45minPlay
July 24, 202314. Lára G. Sigurðardóttir læknir - Húðbókin, andlitsæfingar, steinefnasólarvarnir og mataræðiAð þessu sinni kom Lára G. Sigurðardóttir doktor í lýðheilsuvísindum í spjall. Lára hefur hellt sér út í hinar ýmsu forvarnar rannsóknir til þess að fræðast betur um það hvernig við getum fengið sem best út úr lífinu. Hún rekur einnig Húðina skin care klíník sem nú flytur í nýtt og stærra húsnæði og mun bjóða upp á nýjungar og meðferðir til að viðhalda húðinni í sem besta ástandi og vinna gegn öldrunareinkennum. Nýlega gaf hún út Húðbókina sem er ansi áhugaverð. Skemmtilegt spjall við fróða konu sem er algjörlega dásamleg. ...more47minPlay
July 12, 202313. Ingeborg Andersen grasalæknir - Nærðar konur, lífstílssjúkdómar, móðurhlutverkið og jurtirIngeborg Andersen grasalæknir er gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Hún lærði vestrænar grasalækningar í London og heldur úti síðunni jarðviska.is. Hún er einnig hluti af hópnum Nærðar konur. Í þessum þætti ræðir hún um starf sitt sem grasalæknir, hormónakerfi kynjanna sem er gjörólíkt, jurtir sem fegra og styðja við líkamann og nýja móðurhlutverkið sem er svo magnað - og fleira. * Þessi þáttur er í boði NEOSTRATA. Þessar frábæru húðvörur fást hjá Hverslun.is og í öllum helstu apótekum. ...more47minPlay
June 28, 202312. Sigrún María - Klínískur dáleiðari, jóga nidra kennari og upprisan úr kulnunSigrún María Hákonardóttir er gestur Spegilmyndarinnar að þessu sinni. Hún er viðskiptafræðingur, náms - og starfsráðgjafi og einka-og hóptíma þjálfari sem kennir hjá Reebook. Sigrún er mögnuð kona sem tók örlitla u- beygju þegar hún upplifði kulnun og skellti sér því í jóga nidra kennaranám og Dáleiðsluskóla Íslands. Hún deilir sögu sinni í þessu spjalli en í dag starfar hún sem klínískur dáleiðari og sérfræðingur í hugrænni endurforritun - ásamt þjálfuninni og vill hjálpa fólki að takast á við hugann til að líða betur. #Þessi þáttur er í boði Neostrata en hlustendur Spegilmyndarinnar geta verslað sér þessar frábæru húðvörur hjá Hverslun með 20% afslætti (út Júní)...more53minPlay
June 16, 202311. Jóhannes Árnason lýtalæknir - Vinsælar lýtaaðgerðir, áhættuþættirnir og góð ráðVið kynnumst Jóhannesi lýtalækni hjá Klínikinni og heyrum sögu hans um námið, árin erlendis og ástríðuna fyrir fegrunar lýtalækningum. Hann ræðir opinskátt um mismunandi aðgerðir, gefur góð ráð og fræðir um áhætturnar sem ber að hafa í huga þegar farið er í aðgerð. * Bakhjarl þáttarins er húðvörumerkið Neostrata en hlustendum Spegilmyndarinnar býðst 20% afsláttur af Neostrata hjá Hverslun.is út júní. ...more1h 37minPlay
June 08, 202310. Halldóra Skúladóttir - Breytingaskeiðið, hormónauppbótarmeðferðir og KvennaráðHalldóra Skúladóttir markþjálfi talar opinskátt um eigin upplifun af breytingarskeiðinu en hún heldur úti Instagram miðlinum Kvennaráð og deilir þar fræðandi molum um kvenheilsu sem tengjast aðallega breytingaskeiðinu og andlegri líðan. Fræðandi og skemmtilegt spjall við frábæra konu. * Þátturinn er í boði Neostrata en hlustendur Spegilmyndarinnar geta verslað þessar virku húðvörur hjá Hverslun með 20% afslætti út júní. Afsláttarkóðinn er: Spegilmyndin...more40minPlay
June 01, 20239. Erla Björnsdóttir - Svefnráð og isleep svefn appErla Björnsdóttir sálfræðingur og svefnráðgjafi er mörgum kunn en hún er hafsjór af fróðleik þegar kemur að svefninum. Hér ræður hún um mikilvægi svefnins sem er ein af grunnstoðum andlegrar og líkamlegrar heilsu og gefur góð ráð. Hún kynnir einnig til leiks nýtt íslenskt svefn app sem hún hefur verið að vinna að undanfarin 2 ár. ...more50minPlay
May 23, 20238. Dagný Berglind & Eva Dögg - Hugleiðsla, sjálfsrækt og náttúrulegt sleipiefniDagný Berglind og Eva Dögg reka vellíðunarsetrið Reykjavík ritual og ræða við Marín Möndu um hvernig þær hafa látið draumana rætast innan veggja Rvk. ritual með því að skapa pláss sem konur. Þær ræða um mikilvægi sjálfsræktar, fallega samfélagið sem hefur skapast í kringum Self mastery námskeiðin og kítlandi sleipiefnið sem konur hafa staðið í röðum til að eignast. ...more52minPlay
May 11, 20237. Geir Gunnar næringarfræðingur - Heilsan og þarmaflóranGeir Gunnar Markússon næringar-og matvælafræðingur starfar hjá NLFÍ. Hann berst gegn alls kyns öfgum og hindurvísindum í næringar- og heilsufræðum og er óhræddur við að segja sína skoðun þegar kemur að heilsuspillandi lífstíl. Þessi þáttur er í boði NEOSTRATA (húðvörur). Hlustendur geta nýtt sér 20% afsláttarkóða hjá Hverslun.is á Neostrata vörum út júní. Afsláttarkóðinn er: "Spegilmyndin" ...more53minPlay
May 05, 20236. Karin Kristjana - Húðvörur og virkniKarin Kristjana förðunarfræðingur eigandi Nola er mjög fróð um húðvörur og húðina. Í þessum þætti fræðir hún okkur um ýmis áhugaverð innihaldsefni í vörum og gefur góð ráð til að viðhalda fallegri húð. Þessi þáttur er í boði Neostrata....more42minPlay
FAQs about Spegilmyndin:How many episodes does Spegilmyndin have?The podcast currently has 65 episodes available.