Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E28 | Ríkisrekið ofbeldi gegn borgurum hvatt áfram af forsætisráðherra


Listen Later

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi bankamaður, var með réttarstöðu sakbornings í heilan áratug á meðan sérstakur saksóknari rannsakaði hann á eftirárum hrunsins. Hann fékk að lokum skilorðsbundin dóm fyrir hlutdeild að umboðssvikum í hinu svonefnda Stím-máli, 10 árum frá húsleit og handtökum. Hann hefur skrifað ötullega frá hruni um starfsaðferðir og kúltúr embættis sérstaks saksóknara og málar þar ekki fagra mynd. Nýlegt mál um gagnaleka frá embættinu veitir innsýn í hvernig umgengni embættisins við lög og mannréttindi voru á skjön við reglur réttarríkisns. Hvernig embættið rannsakaði öll mál til sektar og beitti til þess óvönduðum meðulum.

Þorvaldur Lúðvík hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu en nú hillir undir 15 ára afmæli málavafstur vegna þessa. Mannréttindadómstóll Evrópu er með mál hans til meðferðar og er niðurstöðu að vænta á næstunni. Þorvaldur segir sögu sína hér í þessu áhrifaríka viðtali.

Þorvaldur Lúðvík rekur hvernig honum varð kunnugt um réttarstöðu sína sem grunaðs manns í Kaupþingsmáli frá ritstjóra Kastljóss, Sigmari Guðmundssyni, sem vissi allt um réttarstöðu manna og grunsemdir embættis sérstaks saksóknara. Þorvaldur Lúðvík hafði ekki fengið neinar upplýsingar þar að lútandi frá embættinu og gat því engu svarað, enda fullkomlega án vitneskju. Þorvaldur segir augljóst að Kastljós hafi verið með upplýsingar frá embættinu og hafi unnið fréttir í samræmi við það. Í samtali milli ritstjóra Kastljóss og Þorvaldar Lúðvíks var hann margítrekað spurður hvort hann vildi ekki tjá sig, en hann sagðist enga vitneskju hafa um réttarstöðu eða málatilbúnað og gæti því ekki tjáð sig um eitthvað sem hann hefði ekki vitneskju um. Fréttaskýring RÚV sama kvöld hafi síðan verið með nafna- og myndbirtingum af mönnum í þessu máli (sem sumir hverjir voru aldrei ákærðir) og ritstjórinn lauk fréttaskýringunni með því að segja “engan sakborning hafa viljað tjá sig”.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættirBy Brotkast ehf.

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

1 ratings


More shows like Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

151 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

16 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

29 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

69 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

25 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

30 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners

True crime Ísland by True Crime Ísland

True crime Ísland

4 Listeners