Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Yrsa Sigurðardóttir
    Yrsa Sigurðardóttir glæpasagnadrottning er gestur í Sunnudagasögum að þessu sinni. Hún segir frá jólakúlunum sem hún safnar, hvernig hún hlustar á hryllingsmyndir á meðan hún skrifar glæpasögur, verkfræðinni, munnlegu prófi í MR, dvöl sinni í Kanada og ótrúlegu láni þegar minnstu munaði að dóttir hennar lenti í skelfilegu slysi. Slík var heppnin þann dag að hún segist aldrei þurfa að lenda í neinu láni aftur.
    1 hr 15 min
  • Pétur Markan
    Þema Júlíu Margrétar Einarsdóttur í Sunnudagssögum í mars er heppni. Hún fær til sín ólíka viðmælendur sem öll hafa orðið fyrir láni í lífinu sem hefur haft áhrif á þau.
    Í þessum fyrsta þætti segir Pétur G. Markan biskupsritari frá æsku sinni sem fótbolta- og kórdrengur í Fossvoginum. Hann átti ástríka æsku og samheldna fjölskyldu en varð fyrir áfalli sextán ára gamall þegar faðir hans lést. Hann rifjar upp örlagaríkt eftirpartý í miðbænum og símtal sem hann átti mörgum árum síðar við systur sína, og afleiðingum þess, sem áttu eftir að færa fjölskyldunni mikla gæfu og þakklæti.
    1 hr 7 min
  • Kristín Ástgeirsdóttir
    Kristín Ástgeirsdóttir er fjórði og síðasti viðmælandi Steineyjar Skúladóttur í Sunnudagssögum þar sem þemað er Rauðsokkur. Kristín er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum en flutti með fjölskyldunni til Reykjavíkur til að fara í menntaskóla. Hún segir meðal annars frá uppvextinum, sjóræningjaútvarpsstöðvum, Víetnamstríðinu, jafnrétti, Heimaeyjargosinu og mengun. Kristín gekk til liðs við Rauðsokkurnar 1976 og komst á þing fyrir Kvennalistann 1991.
    1 hr 15 min
  • Silja Aðalsteinsdóttir
    Silja Aðalsteinsdóttir er þriðji viðmælandi Steineyjar Skúladóttur í Sunnudagssögum í febrúar þar sem þemað er Rauðsokkur. Silju var boðið á stofnfund Rauðsokkuhreyfingarinnar 1970 en fannst hún ekki eiga heima þar þá. Það var svo 6 árum síðar sem hún fann að tíminn var kominn og gerðist virkur meðlimur. Í þættinum segir Silja frá uppvextinum, árunum í London, ástríðunni fyrir menningu og listum, mikilvægi réttindabaráttu, samstarfinu með Bubba Morthens og fleira og fleira.
    47 min
  • Auður Hildur Hákonardóttir
    Auður Hildur Hákonardóttir, eða Hildur Hákonardóttir eins og margir þekkja hana, var annar gestur Sunnudagssagna í febrúar þar sem þemað er Rauðsokkur. Hildur var svo sannarlega Rauðsokka en hún kynnti fyrir hreyfingunni nýtt og ferskt félagaform sem var notað. Hildur ræðir við Steineyju Skúladóttur um barnæskuna, árin í Bandaríkjunum, Rauðsokkuárin, starf sitt sem myndvefari og kennari og fleira.
    1 hr 15 min
  • Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
    Þema Sunnudagssagna í febrúar er Rauðsokkur. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er fyrsti viðmælandi en þær Steiney Skúladóttir ræddu uppvöxtinn í Vogahverfinu, rökræður við matarborðin, misréttið í menntaskóla og af hverju Ingibjörg gekk til liðs við Rauðsokkur. Þær ræða einnig árin sem borgarstjóri, að rísa upp úr erfiðum veikindum og að starfa fyrir UN Women, svo fátt eitt sé nefnt..
    1 hr 3 min
  • Ragnheiður Thorsteinsson
    Áfram höldum við að kynnast fólki sem starfar fyrir aftan myndavélarnar og lætur efnið sem sést í sjónvarpinu verða að veruleika. Næst í röðinni er Ragnheiður Thorsteinsson. Ragga eins og hún er oftast kölluð færði okkur SPK, Fólk með Sirrý, Stundina okkar, Steinsteypuöldina, Kiljuna og miklu fleira.
    1 hr 15 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners