Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Pétur Már Halldórsson
    Gestur Hrafnhildar er Pétur Már Halldórsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Nox Medical og núverandi stjórnarmaður í Nox Health. Hann segir frá uppvextinum, hinum ýmsu störfum sem hann hefur fengist við í gegnum tíðina, fjölskyldunni og áhugamálunum. Hann segir sögu Nox Medical sem framleiðir lækningatæki sem notuð eru af heilbrigðisstarfsfólki um allan heim til greiningar á svefni og svefnvandamálum. Hann segir frá áföllum sem hann lenti í árið 2020 og hvernig hann vann sig út úr því og hvernig hann lítur lífið öðrum augum.
    1 hr 15 min
  • Rakel Sigurðardóttir
    Hrafnhildur Halldórsdóttir ræðir við Rakel Sigurðardóttur andlegan einkaþjálfara um líf hennar og starf. Rakel ólst upp í Grafarvoginum, lífsglöð og hress stelpa sem var dugleg í íþróttum, félagslífi og leiklist en gekk ekki alveg jafn vel í skólanum. Rakel glímdi við lesblindu og skólinn reyndist krefjandi og á tímum erfiður fyrir hana. Með elju og dugnaði og hjálp foreldra tókst Rakel að klára stúdentspróf og þaðan lá leið hennar til Ástralíu þar sem hún starfaði sem Au Pair í 8 mánuði. Eftir það lá leiðin í HÍ en Rakel fann sig ekki og var hún staðráðin að sækja um í leiklistarnám. Hún komst ekki í gegnum síuna hér á landi en ákvað þá að fara til Englands í leiklistarnám. Rakel upplifði kvíða að námi loknu og fór að vinna með sjálfa sig í sjálfsrækt sem hún hafði alltaf haft mikinn áhuga á. Í dag starfar hún sem andlegur einkaþjálfari og nýtur sín mjög í því starfi.
    1 hr 15 min
  • Vilmundur Hansen
    Gestur þáttarins er Vilmundur Hansen garðyrkjugúru sem hefur flakkað vítt og breitt um heiminn, lært grasamannfræði og stýrir safaríferðum um Afríku.
    Umsjón: Snærós Sindradóttir
    Grace Jones - La vie en rose.
    Eivör Pálsdóttir - Purple flowers.
    Nanna - How to Start a Garden.
    MEZZOFORTE - Garden Party.
    1 hr 15 min
  • Steinunn Árnadóttir
    Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Steinunni Árnadóttur organista og dýravin, en hún hefur barist ötullega fyrir bættri dýravelferð og vakið athygli á slæmum tilfellum vanrækslu. Hún hefur hlotið bæði lof og hvatningu fyrir, en líka verið hótað. Hún heldur þó ótrauð áfram.
    1 hr 15 min
  • Andrés James Andrésson
    Gestur Guðrúnar Dísar Emilsdóttur í Sunnudagssögum er Andrés James Andrésson flugþjónn og innanhúsarkitekt. Andrés segir meðal annars frá magnaðari mánaðarferð hans hringinn í kringum jörðina á einkaþotu.
    1 hr 15 min
  • Unnsteinn Jóhannsson
    Gestur Sigga Gunnars í Sunnudagssögum er Unnsteinn Jóhannsson sem deilir með hlustendum reynslu sinni af því að vera fósturforeldri. Unnsteinn hefur unnið ötullega að málefnum er varða ættleiðingar samkynhneigðra undanfarin ár auk þess að starfa á sviði stjórnmála og ýmiskonar mannréttindimála. Við heyrum áhugaverða sögu Unnsteins í þættinum.
    Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson.
    1 hr 15 min
  • Magnús Hauksson
    Magnús Hauksson er eilífðar töffari, Ísfirðingur og eigandi Tjöruhússins var tekin tali í skemmunni sinni fyrir vestan. Þar voru æskuárin rifjuð upp, talað um ferilinn í eldhúsinu og á videoleigunni.
    Umsjón: Andri Freyr Viðarsson.
    1 hr 15 min
  • Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir
    Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir var viðmælandi dagsins í Sunnudagssögum. Jana er bæjarfulltrúi Vinstri grænna á Akureyri og hún var líka nýlega kjörin sem ritari Vinstri grænna á landsfundi flokksins sem fram fór um miðjan mars. Hún segir frá uppvextinum og hvernig leið hennar lá svo í efnafræði í Háskólanum, þar sem hún tók einnig virkan þátt í stúdentapólitíkinni. Jana ræðir líka hvernig lífið er í bæjarpólitíkinni á Akureyri og almennt hvað einkennir lífið og tilveruna.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    1 hr 15 min
  • Gylfi Ólafsson
    Hrafnhildur Halldórsdóttir ræðir við Gylfa Ólafsson forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
    Umsjón: Hrafnhildur Halldórsdóttir.
    1 hr 15 min
  • Ólafur Teitur Guðnason
    Hulda G. Geirsdóttir ræddi við Ólaf Teit Guðnason samskiptastjóra Carbfix og tónlistaráhugamann um uppvaxtarárin víða um heim, námsárin og fjörugt félagslífið í Versló og Hí og áskoranir fullorðinsáranna. Ólafur sagði m.a. frá óvæntri hjartaaðgerð sinni og ótímabæru fráfalli eiginkonu sinnar, sem hann ritaði um í bókinni Meyjarmissir. Þá ræddu þau Hulda nútíð og framtíð og það að finna ástina að nýju.
    Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir.
    1 hr 15 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners