Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
    Gestur þáttarins er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Ingibjörg kom að stofnun Kvennalistans, var borgarstjóri Reykjavíkur, utanríkisráðherra Íslands og síðar yfir alþjóðastofnunum Sameinuðu þjóðanna úti í hinum stóra heimi. Allt, án þess að hafa í raun og veru ætlað sér það.
    Umsjón: Snærós Sindradóttir
    1 hr 15 min
  • Tómas Hermansson
    Gestur Guðrúnar Dísar Emilsdóttur í Sunnudagssögum að þessu sinni er Tómas Hermannsson bókaútgefandi og lífskúnstner. Tómas á ásamt eiginkonu sinni Önnu bókaútgáfuna Sögur og fáum við að skyggnast inn í heim bókaútgefandans.
    Umsjón: Guðrún Dís Emilsdóttir.
    1 hr 15 min
  • Pálmi Ragnar Ásgeirsson
    Siggi Gunnars ræðir við Pálma Ragnar Ásgeirsson lagahöfund og producer. Pálmi er höfundur framlags Íslands í Eurovision í ár, lagsins Power með Diljá. Hann hefur einnig verið atkvæðamikill á íslensku tónlistarsenunni s.l. áratug og sagði okkur sögu sína í Sunnudagssögum.
    Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson.
    1 hr 15 min
  • Vigdís Jakobsdóttir
    Hrafnhildur Halldórsdóttir ræðir við Vigdísi Jakobsdóttur, listrænan stjórnanda Listahátíðar í Reykjavík. Vigdís segir frá uppvextinum, fjölbreyttri skólagöngu, árunum á Ísafirði þar sem hún bæði steikti hamborgara og lék með litla leikklúbbnum. Hún sagði frá leikstjóranámi, leikstjóraverkefnum, fjölskyldunni, sárum bróðurmissi og ræddi líka um listahátíð sem hún brennur fyrir og vill að hátíðin sé hugsuð fyrir alla.
    Umsjón: Hrafnhildur Halldórsdóttir.
    1 hr 15 min
  • Snæfríður Ingadóttir
    Viðmælandi dagsins var fjölmiðlakonan og ferðalangurinn Snæfríður Ingadóttir. Hún sagði frá uppvextinum á Akureyri, hvernig hún leiddist út í fjölmiðlun og hvernig hún loks uppgötvaði ævintýraheima óhefðbundnar ferðamennsku. Hún hefur síðan þá skrifað ótal ferðahandbækur, nú síðast um Costa Blanca ströndina á Spáni.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    1 hr 15 min
  • Vilborg Arna Gissurardóttir
    Vilborg Arna, eða Vilborg pólfari eins og hún er oft kölluð býr í Slóveníu ásamt manni sínum og tveimur drengjum. Vilborg vakti mikla athygli þegar hún gegg eins síns liðs á Suðurpólinn fyrir 10 árum síðan. Í Sunnudagssögum talar Vilborg frá heimili sínu í Slóvensku ölpunum og segir frá æskunni, afrekunum og nútímanum.
    Umsjón: Andri Freyr Viðarsson.
    1 hr 15 min
  • Inga Auðbjörg Straumland
    Gestur Snærósar Sindradóttur að þessu sinni er Inga Auðbjörg Straumland formaður Siðmenntar og framkvæmdastýra Hinsegindaga. Hún gerði stórar breytingar á lífi sínu á síðasta ári, skildi við mann, sagði sig úr stjórnmálaflokki og lærði að setja mörk.
    Umsjón: Snærós Sindradóttir.
    1 hr 15 min
  • Arna Magnea Danks
    Siggi Gunnars ræðir við Örnu Magneu Danks sem er eina leikaramenntaða trans konan á Íslandi. Hún deilir með hlustendum mögnuðu og krefjandi lífshlaupi sínu.
    Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson.
    1 hr 15 min
  • Margrét Lilja Vilmundardóttir
    Gestur Guðrúnar Dísar Emilsdóttur í Sunnudagssögum að þessu sinni er Sr. Margrét Lilja Vilmundardóttir prestur í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Margrét Lilja hefur tekið sér ýmislegt fyrir hendur á lífsleiðinni. Hún hafði alla tíð ætlað sér að verða atvinnudansari þegar örlögin gripu inn í og hún þurfti að hætta í dansi vegna meiðsla. Margrét Lilja fór í guðfræði, starfaði sem flugfreyja en elti svo ástina til Súðavíkur þar sem hún,unnusti hennar og börn bjuggu í sjö ár. Í dag sinnir hún köllun sinni í Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
    Umsjón: Guðrún Dís Emilisdóttir.
    1 hr 15 min
  • Magnús Bragason
    Hulda Geirsdóttir ræddi við Eyjamanninn Magnús Bragason íþróttafrömuð og fyrrum hótelhaldara. Þau rifjuðu upp gosið á Heimaey fyrir 50 árum, en fjölskylda Magnúsar var meðal þeirra fyrstu til að snúa heim, áður en gosi lauk. Magnús fór einnig ásamt hópi barna til Noregs í boði Rauða krossins og dvaldi þar í tvær vikur, aðeins sjö ára gamall. Þá ræddu þau íþróttastarfið, heimsókn Pelé til Eyja, ferðaþjónustuna og áskoranir þess að takast á við lífið með erfiðan sjúkdóm.
    Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir.
    1 hr 15 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners