Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Gunni Hilmars
    Gestur Hrafnhildar í Sunnudagssögum er Gunnar Hilmarsson tónlistar - og athafnamaður. Gunni starfar sem framkvæmdastjóri hjá Kormáki og Skildi auk þess sem hann er formaður norræna fatahönnunarfélagsins. Hann sagði frá lífi sínu og starfi, fjölskyldu og tónlistinni en Gunni en hljómsveitin hans Sycamore Tree hefur verið að gera það gott undanfarið.
    1 hr 15 min
  • Pedro Gunnlaugur Garcia
    Gestur þáttarins er rithöfundurinn Pedro Gunnlaugur Garcia sem tilnefndur er til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bók sína Lungu. Þetta er önnur skáldsaga Pedro og gerist meðal annars í Bandaríkjunum og Kanada. Sjálfur er hann fæddur í Portúgal og ól þar manninn fyrstu fimm ár ævinnar. Hann spjallar við Snærós Sindradóttur um upprunann, skáldskapinn, samsæriskenningar og borgarastyrjöldina í Portúgal.
    1 hr 15 min
  • Andri Ívarsson
    Gítarleikarinn og uppistandarinn Andri Ívarsson rekur sögu sína í Sunnudagssögum. Andri er einfari að norðan sem gerði lítið annað en að teiknaði Turtles kalla og æfa sig á klassíska gítarinn sinn sem barn.
    1 hr 15 min
  • Lilja Guðmundsdóttir og Bjarni Thor Kristinsson
    Hulda Geirsdóttir ræddi við tónelska söngparið Lilju Guðmundsdóttur og Bjarna Thor Kristinsson um lífið og listina. M.a. fóru þau yfir uppvöxtinn í Garðinum og á Kópaskeri, líf óperusöngvarans sem býr í ferðatösku og baráttu Lilju fyrir betri greiningu og meðferð við endómetríósu sem hefur haft mikil áhrif á hennar líf. Þá sögðu þau frá margra ára glímu sinni við ófrjósemi og ótal frjósemisaðgerðum erlendis, sem nú hafa loksins borið árangur.
    1 hr 15 min
  • Hjálmar Örn Jóhannsson
    Í Sunnudagssögum að þessu sinnir ræðir Guðrún Dís Emilsdóttir við Hjálmar Örn Jóhannsson. Hjálmar Örn er einn vinsælasti skemmtikraftur landsins auk þess sem hann stýrir hlaðvarpsþættinum Hæ hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars, ásamt Helga Jean Claessen. Hjámar Örn er alltaf í góðu skapi og elskar að tala við fólk.
    1 hr 15 min
  • Snæbjörn Arngrímsson
    Hrafnhildur ræðir við Snæbjörn Arngrímsson rithöfund og fyrrum bókaútgefanda. Hann segir frá uppvextinum í Háaleitishverfinu, hvernig það var að alast upp sem prestsonur. Hann segir frá námsárunum í MH, síðar dvöl í Freiburg í Þýskalandi, barnaláninu, hvernig hann datt niður á bækurnar um Harry Potter og síðar sögurnar hans Dan Brown. Hann segir frá áhuganum á ólivuolíu, frá barnaláninu og nýjustu bók sinni Eitt satt orð.
    1 hr 15 min
  • Dóra Júlía Agnarsdóttir
    Siggi Gunnars ræðir við Dóru Júlíu Agnarsdóttur eða DJ Dóru Júlíu um lífið og tilveruna. Dóra er einn vinsælasti plötusnúður landsins en hún hefur haft spilamennskuna að aðalstarfi í nokkur ár. Hún starfar einnig við fjölmiðla hjá Sýn ásamt því að leggja stund á listfræði. Dóra segir okkur frá lífi sínu og störfum í þættinum.
    Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson.
    1 hr 15 min
  • Martha Hermannsdóttir
    Martha Hermannsdóttir var gestur dagsins í Sunnudagssögum. Martha hefur spilað handbolta frá unga aldri og lék stærstan hluta ferilins með uppeldisliði sínu KA/Þór á Akureyri. Hún lagði skóna nýverið á hillinu eftir frábært tímabil hjá liðinu, þar sem KA/Þór varð bæði bikar- og Íslandsmeistari kvenna í handbolta. Martha hefur engu að síður nóg að gera enda starfar hún sem tannlæknir og rekur sína eigin stofu á Akureyri. Hún sagði frá handboltaferlinum, tannlæknastarfinu og framtíðinni hér í Sunnudagssögum.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    1 hr 15 min
  • Móeiður Júníusdóttir
    Móeiður eða Móa eins og hún er oftast kölluð var á tíunda áratugnum ein þektasta söngkona landsins. Hún vakti fyrst á sér athygli í söngvakeppni framhaldsskólannna og sló svo í gegn með rafpopp dúettnum Bong ásamt þáverandi manni sínum Eyþóri Arnalds. Móa lagði svo hljóðnemann á hilluna og fór í háskóla þar sem hún kláraði guðfræði. Í dag starfar hún sem grunnskólakennari og elskar það. Tónlistin er samt sem áður aftur farin að kalla.
    1 hr 15 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners