Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Edda Björk Arnardóttir
    Gestur Huldu G. Geirsdóttur var Edda Björk Arnardóttir, móðirin sem komst í fjölmiðla fyrr á árinu þegar hún leigði einkaflugvél og sótti þrjá unga syni sína til Noregs, en hún hefur staðið í forræðismáli undanfarin ár og einungis fengið að hitta syni sína í 16 klukkustundir á ári, undir eftirliti. Edda rakti sögu sína og sagðist aldrei gefast upp þegar að málefnum barna hennar kemur.
    1 hr 15 min
  • Eva Hauksdóttir
    Lögmaðurinn Eva Hauksdóttir fór fyrst að vekja athygli almennings í mótmælum vegna efnahagshrunsins 2008 þar sem hún barðist af krafti gegn sitjandi stjórnvöldum og fyrir kerfisbreytingum sem dansa á mörkum anarkisma og félagshyggju. Hún er skoðanarík og segist nærast á rökræðum - þær séu í raun hennar helsta áhugamál eins og aðrir hafi áhuga á dansi eða íþróttum.
    Umsjón: Snærós Sindradóttir.
    1 hr 15 min
  • María Heba Þorkelsdóttir
    María Heba Þorkelsdóttir er gestur Guðrúnar Dísar Emilsdóttur í Sunnudagssögum. María Heba hlaut nýverið Edduverðlaun sem besta leikkona í aukahlutverki en þetta er í annað sinn sem að María Heba hlýtur þessi verðlaun. María Heba er fjölhæf, opin og einlæg og sest hún niður í hljóðstofu Rásar 2 með rjúkandi kaffibolla og segir hlustendum sögu sína.
    1 hr 15 min
  • Birgitta Líf Björnsdóttir
    Siggi Gunnars ræðir við Birgittu Líf Björnsdóttur sem starfar dagsdaglega sem markaðsstjóri World Class en er einnig áhrifavaldur, samfélagsmiðlastjarna, dansari, rekstrarstjóri og margt fleira.
    Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson
    1 hr 15 min
  • Pétur Benedikt Pétursson
    Pétur Benedikt Pétursson tilvonandi doktorsnemi í Cambridge er gestur Hrafnhildar í þættinum. Pétur hefur búið lengi í London og stefnir nú á doktorsnám í félagsfræði þrátt fyrir ungan aldur. Rætt var um lífið, kvikmyndir en Pétur situr í valnefnd Riff kvikmyndahátíðarinnar sem hefst í vikunni. Rætt var um uppvaxtarár, skólagöngu á Íslandi og í London, mótbárur í lífinu umhverfismál og kvikmyndir.
    1 hr 15 min
  • Karl Frímannsson
    Karl Frímannsson er gestur þáttarins en hann er nýlega tekinn við embætti skólameistara Menntaskólans á Akureyri. Karl hefur alla tíð verið virkur í íþróttum og sá áhugi leiddi hann yfir í þjálfun og kennslu. Hann hefur helgað feril sinn menntamálum og starfað bæði við menntastofnanir og innan stjórnsýslunnar. Karl ræðir uppvöxtinn á Akureyri, feril sinn við íþróttaþjálfun og hvað honum þykir mikilvægt þegar kemur að skóla- og menntamálum.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    1 hr 15 min
  • Pan Thorarensen
    Pan Thorarensen hefur farið ótroðnar slóðir í lífinu, foreldrar hans líka. Pan lifir fyrir tónlistina og listina. Hann er menntaður bakari og segir það hugleiðslu líkast að baka brauð. Hann er í fjölda tónlistaverkefna þar á meðal Stereo Hypnosis með föður sínum. Einnig hefur hann verið að búa til og gefa út tónlist með yngsta syni Chaplin, Christopher Chaplin heitir sá. Pan rekur einnig verslun á Skólavörðustíg sem heitir Space Oddysey og svo er tónlistarhátíðin Extreme Chill Festival hans.
    1 hr 15 min
  • Viðar Eggertsson
    Gestur þáttarins er eins og kötturinn með níu líf, en er þó bara staddur í sínu sjötta eða sjöunda í mesta lagi. Viðar Eggertsson leikstjóri og útvarpsmaður varði fyrstu tveimur og hálfu ári ævi sinnar á vöggustofu sem rekin var af Reykjavíkurborg þar sem ekki mátti sýna brjóstmylkingnum neina alúð. Hann féll fyrir leikhúsinu ellefu ára gamall og var ungur kominn á fjalirnar með risum íslenskrar leikhússögu. Honum er umhugað um fátækt fólk, og eldra fólk sem býr við kröpp kjör eftir langt ævistrit.
    Umsjón: Snærós Sindradóttir
    1 hr 15 min
  • Bríet Blær Jóhannsdóttir
    Gestur þáttarins, á kvenréttindadaginn, er Bríet Blær Jóhannsdóttir. Hún valdi sér nafn í höfuðið á Bríeti Bjarnhéðinsdóttur kvenréttindafrömuði og því nafnið hljómar eins og Brie ostur sem er í uppáhaldi hjá þessari aðdáunarverðu konu. Viðhorf rithöfundarins JK Rowling til transfólks menguðu Harry Potter bækurnar í huga Bríetar sem áður hafði fundið innblástur og ánægju af þeim sagnaheimi. Bríet bíður kynleiðréttandi aðgerðar sem hún segir lífsspursmál fyrir margt trans fólk að biðlistinn styttist.
    1 hr 15 min
  • Peter Weiss
    Alex Elliott ræðir við Peter Weiss forstöðumanni Háskólaseturs Vestfjarða um lífið og vinnu, í tilefni Sjómannadagsins.
    Lög þáttarins eru:
    Sjómannavalsinn - Hjaltalín
    Kein Boarischeer - Die Knödel
    Haglél - Mugison
    Grafskript - Hinn Íslenzki Þursuflokkurinn
    Into the Dark - Between Mountains
    Kotkan ruusu - Arja Saijonmaa
    1 hr 22 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners