Tbr Listinn

Tbr Listinn

Download on the App Store

Tbr Listinn episodes

  • Kindred - Octavia E. Butler

    Í þættinum í dag förum við yfir mánaðarbók september en það er engin önnur en Kindred eftir Octaviu E. Butler!

    Við förum yfir hversu snilldarlega þessi bók er skrifuð og hversu góðir karakterar og sögusviðið er.

    Næsta mánaðarbók er svo;

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    1 hr 9 min
  • Afmælisþáttur Fjólu!

    Afmælisþáttur Fjólu er lentur! Og það er ekki við öðru að búast en að hún troði Taylor Swift inn í heilan þátt!

    Hversu vel þekkir þú Taylor Swift? En hvernig ertu í Shakespeare?

    Alma er sett í heita sætið og þarf að giska hver á tilvitnuna, Swift eða Shakespeare?

    Að auki förum við aðeins yfir hvaða bækur Taylor hefur lesið í, hvaða verk hún hefur vitnað í og aðeins í nokkra textana hennar. Fjóla syngur líka smá fyrir ykkur…og biðst forláts.

    Taylor swift book list

    https://www.goodreads.com/list/show/156271.books_taylor_swift_has_mentioned

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    57 min
  • Nornaþáttur!

    Alma og Fjóla setjast niður og ræða um nornir og kukl! Fara þær um alla heima og geima, frá skáldsögum og alveg í sjálfshjálparbækur, já þið lásuð þetta rétt! Sjálfshjálparbækur!

    Bókalisti yfir þær bækur sem koma við sögu í þættinum; Practical Magic - Alice Hoffman Sleewfoot: A Tale of Bewitchery - Brom The Spellshop - Sarah Beth Durst Threadneedle - Cari Thomas Where the Dark Stands Still - A. B. Poranek The Ex Hex - Erin Sterling The Once and Future Witches - Alix E. Harrow Payback's a Witch - Lana Popovic Cackle - Rachel Harrison Circe - Madeline Miller The Kiss Curse - Erin Sterling A Witch's Guide to Fake Dating a Demon - Sarah Fawley The Unfortunate Side Effects of Heartbreak and Magic - Breanne Randall

    Sölku bækurnar;

    Tarot Bókin; handbók og falleg spil - Claire Goodchild Leiðarvísir nornarinnar að sjálfsrækt - Theodosia Corinth

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    1 hr 14 min
  • Viðtal - Birta Ósmann og Skriða Bókaútgáfa

    Í þessum þætti fáum við Birtu Ósmann í heimsókn en hún er sjálfstætt starfandi rithöfundur, ljóðskáld, þýðandi og myndlistarkona. Ekki nóg með það heldur er hún einnig eigandi Skriðu bókaútgáfu!

    Tökum við spjall við hana um heima og geyma og fræðumst, bæði um hana og bókaútgáfuna.

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    Þið finnið Skriðu á þessum slóðum;

    www.https://skridabokautgafa.is/

    Insta; skridabokautgafa

    1 hr 22 min
  • Caught Up - Navessa Allen með Birtu Blanco

    Alma og Fjóla fengu Birtu í heimsókn til að ræða bókina Caught Up eftir Navessu Allen en það er nýjasta bókin í Into Darkness seríunni.

    Við spjöllum um allt á milli himins og jarðar með bókina og fáum nýja sýn inn í bæði hana og karakteranna í henni útfrá þekkingu Birtu.

    Eins og vanalega er alveg æðislegt að fá Birtu í heimsókn og erum við henni mjög þakklátar fyrir að koma og taka þessa umræðu með okkur.

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    Þið finnið Birtu einnig á öllum helstu samfélagsmiðlum;

    Insta; birtablanco

    Tiktok; Birta Blanco

    1 hr 24 min
  • Íslenskuþýddar tilvitnanir

    Stelpurnar taka saman nokkrar tilvitnanir úr bókum sem þær hafa lesið og íslensku þýða þær, öllum náttúrlega til mikillar gleði!

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    1 hr 33 min
  • Within These Wicked Walls - Lauren Blackwood

    Stelpurnar taka fyrir bók mánaðarins en hún er engin önnur en Within These Wicked Walls eftir Lauren Blackwood.

    Eins og vanalega er STÓR höskuldarviðvörun á þessum þætti minnum á að grúska í bókina áður en þið hlustið á þáttinn ef þið viljið ekki renna blint í sjóinn með okkur.

    Við erum alalr frekar sammála með þessa bók en tengjum þó við hana á mismunandi hátt!

    Næsta bók er svo;

    Kindred eftir Octavia Butler!

    1 hr 26 min
  • The Knight and the Moth - Rachel Gillig

    Fjóla og Anna Karen setjast niður og spjalla um nýju uppáhalds bókina okkar!

    Alma er því miður fjarri góðu gamni en hún klippir þó þáttinn og vill koma á framfæri að hún er ekki sammála um orðið ufsagrýla, það er cute!

    Við mælum eindregið með að næla ykkur í þessa og lesa, jafnvel áður en þið hlustið á þáttinn því að það er STÓR höskuldarviðvörun í gangi hjá TBR listanum í þessum þætti.

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    1 hr 2 min
  • Aðdáendaval!

    Tæknilegir örðuleikar urðu til þess að þessi þáttur þurfti að vera tekin upp aftur og koma einum degi seinna en vanalega og biðjumst við innilegrar afsökunar á því.

    Við förum yfir aðdáandaval fyrir nokkrar bækur í þessum þætti og erum bæði mjög sammála og mjög ósammála með valið hjá hvor annarri..

    Bækurnar sem við aðdáendavöldum fyrir voru eftirfarandi;

    Kvikasilfur Rafmagnslaust Slátrarinn og Svartþrösturinn Fjórði Vængurinn ÞORG

    Endilega látið okkur vita hvað ykkur finnst!

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    1 hr 6 min
  • Sería 2! Hraðaspurningar

    Loksins erum við komnar úr sumarfríi og fögnum við því með því að fara yfir víðan völl og svörum nokkrum hraðaspurningum (ekki svo hröðum þó) um lesturinn okkar núna yfir sumarið!

    Við erum svo spenntar að fara inn í haustið með ykkur, glaðar og kátar eftir gott sumarfrí!

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    59 min

About Tbr Listinn

From the publisher's feed

Íslenskt bókahlaðvarp