Tbr Listinn

Tbr Listinn

Download on the App Store

Tbr Listinn episodes

  • Jólaþáttur!

    Alma og Anna Karen taka smá spjall um jólin og bækur. Fjóla er því miður fjarri góðu gamni en við óskum henni góðra jóla þar sem hún er stödd!

    Anna Karen stjórnar þessum þætti með sterkri hendi og spyr Ölmu nokkrar spurningar sem hún svo sjálf svarar líka. Gott spjall um allt tengt jólunum og eins og svo oft með þessar stöllur fer spjallið um víðan veg, kannski of víðann en samt ekki.

    VVið óskum öllum gleðilegrar hátíðar og þökkum fyrir alla nýja vini og öll þau tækifæri sem við höfum fengið á þessu ári.

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    1 hr 32 min
  • Heimsins besti dagur í helvíti - Viðtal

    Fjóla sest niður með Lilju Ósk Snorradóttur í einlægu spjalli um upplifun hennar af veikindum í kjölfar höfuðáverka. En Lilja skrifaði og gaf út bókina Heimsins besti dagur í helvíti þar sem hún segir frá þessu ferli. Bókin er einlæg og hrá með persónulegri frásögn þar sem engin glansímynd er til staðar. Þessi bók á fullt erindi inn á hvert heimili og er virkilega mikilvæg til að vekja athygli á stöðu fólks sem er að takast á við veikindi sem gjörbreyta lífi einstaklinga.

    Við þökkum Lilju kærlega fyrir að vilja koma til okkar í spjall um þessa persónulegu upplifun.

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:

    Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp

    Instagram: tbrlistinn

    1 hr 51 min
  • Jólabókaflóðið

    Fjóla veik, Anna Karen þunn og Alma með rugluna. Þetta getur ekki verið nema góður þáttur! Hér förum við yfir nokkrar bækur úr jólabókaflóðinu, þær sem við erum sérstaklega spenntar fyrir eða höfum þegar lesið og elskum! (Einnig kemur Alma með eilítið skemmtiatriði, en við skulum ekkert vera að tala um það...)

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    1 hr 6 min
  • Sesselía Ólafs - Silfurberg

    Alma oog Fjóla fengu til sín frábæran gest en hún Sesselía Ólafs kom til okkar til að ræða nýju og fyrstu bókina sína Silfurberg. Frábært spjall um bókina, listina og Ölmu að fangirl-a.

    Við mælum innilega með þessari bók í jólapakkann í ár!

    Þið finnið Sesselíu á þessum samnfélagsmiðlum;

    Tiktok; sesseliao

    Insta; sesseliao

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    1 hr 9 min
  • Dóra og Alma spjalla!

    Í þessum þætti fær Alma til sín góða gesti, þó önnur taki virkari þátt í umræðunni. Mæðgurnar Dóra og Emma kíkja æí heimsókn og hjálpa Ölmu með þáttinn þar sem að Anna Karen og Fjóla eru fjarri góðu gamni.

    Tala Alma og Dóra um allskonar bóka-, og Dóru, tengda hluti og dálítið mikið um Bóksölu stúdenta, sem stendur þeim báðum nú frekar nærri!

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    1 hr
  • Afmælisþáttur Önnu Karenar!

    Nú fer að líða að afmælinu hennar Önnu Karenar svo að hún fékk að taka algjöra stjórn á þessum þætti!

    Við förum hér yfir hvað við myndum velja af hlutum sem Anna Karen setur fram fyrir okkur. Stundum erum við mjög sammála og stundum erum við mjög ósammála, en gerist það ekki á bestu bæjum? Hvað myndir þú velja?

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    1 hr 2 min
  • Jólafólin - Viðtal

    Í þætti vikunnar fengum við góða gesti í stúdíó til okkar. Feðginin og þjóðfræðingana Dagrúnu og Jón. En þau voru rétt í þessu að gefa út bókina "Gömlu Íslensku Jólafólin" þar sem þau hafa rýnt í gamlar heimildir og fræði um sögu jólasveina á Íslandi, segja frá jólasveinum sem við ef til vill vissum ekki af ásamt því að segja frá sögu Grýla og Leppalúða mun nánar en áður hefur tíðkast

    Þetta er virkilega skemmtileg bók sem ætti að rata inn á flest heimili. Að auki er hún snilldarlega myndskreytt af Sunnevu Guðrúnu Þórðardóttur. Við munum svo að sjálfsögðu deila á okkar miðlum um alla viðburði tengda bókinn á komandi vikum.

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum:

    Tiktok: TBR Listinn hlaðvarp

    Instagram: tbrlistinn

    Facebook: Tbr Listinn hlaðvarp

    1 hr 8 min
  • Hryllingsbækur!

    Alma og Anna Karen ræða nokkrar bækur sem gaman er að taka í október og nóvember!

    Bækurnar sem við tölum um eru eftirtaldar;

    A Short Stay in Hell - Steven L. Peck Graveyard shift - M.I. Rio The Haar - David Sodergren Gone to See the River Man - Kristopher Triana What moves the Dead - T. Kingfisher Something Wicked This way Comes - Ray Bradbury Hare House - Sally Hinchcliff The Other Side of the Mountain - Michel Bernanos

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    1 hr 11 min
  • Viðtal - Júlía Margrét

    Í þessum þætti fengum við hana frábæru Júlíu Margréti rithöfund í heimsókn og tókum spjall um lífið og tilveruna!

    Snertum við aðeins á verkunum sem hún hefur skrifað, hvað hún ætlar sér á næstunni og fræðumst aðeins um hvaða tölvuleiki hún hefur spilað. Alveg yndislegt spjall og heiður að fá hana til okkar!

    Þið getið fundið Júlíu a instagram; julimargret

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    1 hr 20 min
  • Blood Sisters - Vanessa Lillie

    Í þættinum í dag tókum við fyrir bók eftir indigenous höfund vegna Indigenous day! Bókin Blood Sisters eftir Vanessu Lillie varð fyrir valinu og höfum við mikið um hana að segja!

    Endilega skellið ykkur á hana og látið okkur vita hvað ykkur finnst!

    Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;

    Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp

    Insta; tbrlistinn

    1 hr 10 min

About Tbr Listinn

From the publisher's feed

Íslenskt bókahlaðvarp