
Sign up to save your podcasts
Or


Við fáum góðan gest til okkar í dag en engin önnur en Lilja Ósk snýr aftur til okkar!
Lilja var að gefa út sína aðra bók og fyrstu skáldsöguna sína! Auðvitað þurftum við að lesa hana í hvelli og fá Lilju í heimsókn til að spyrja hana spjörunum úr!
Við förum um víðan völl, hvernig karakterarnir urðu til, hvort var erfiðara skáldsaga eða sjálfsævisaga, persónuleika karaktera og svo margt annað.
Við getum með sanni sagt að við mælum sterklega með þessari bók og takk Lilja fyrir að koma til okkar í smá spjall
Við erum komnar aftur! Í þessum þætti fara Alma og Fjóla yfir sumarið og taka svo laufléttar hraðaspurningar varðandi lestur og bækur.
Við byrjum þriðju seríu með stæl með nýju logo eftir hana Daníelu, tattoo artista og bóka gellu, ásamt nýju stefi sem lýsir okkur stöllum í hnotskurn. Smá kaos, smá glimmer!
Ein önnur breyting er sú að Anna Karen hefur tekið ákvörðun um að fókusa á önnur verkefni, enda af nógu að taka í sveitinni og hún algjör dugnaðarforkur, en við þökkum henni svo sannarlega og innilega fyrir tímann okkar saman!
Við erum ótrúlega spenntar fyrir komandi mánuðum með ykkur og erum með fullt spennandi planað!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Insta hjá Daníelu; dansadansss
Síðasti þátturinn í seríu 2 hefur litið dagsins ljós! :(
Alma og Fjóla setjast niður og ræða um stemninguna sem þær vilja hafa í lestrinum í sumar. Bæði í bókunum og í umhverfinu sem þær ætla að lesa í.
Heyrst hefur að þær séu báðar að plana mikið ferða og sólarfrí, spurningin er bara hvort að veðurguðirnir hlusti á bænir þeirra og gefi þeim smá sól með lestrinum.
Og auðvitað fóru þær í smá útirdúr um Dungeon Crawler Carl, því hvenær talar maður ekki um cultið sitt?
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Anna Karen og Fjóla standa vaktina að þessu sinni á meðan Alma spókar sig í sólinni á Spáni.
Efni þáttarins að þessu sinni er létt bókaspjall og svo RDG eða R**a, drepa, giftast þar sem þemað eru bæði bókakarakterar og bókalegir hlutir eða aðstæður.
Léttur og skemmtilegur þáttur að þessu sinni!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Alma og Fjóla eru báðar nýbúnar með bók sem er sjóðheitt umræðuefni þessa dagana, en það er engin önnur en bókin Yesteryear eftir Caro Claire Burke!
Stelpurnar gætu talað endalaust um bókina en hafa þó sett niður nokkur atriði sem þær ætla að tala um, einfaldlega því þær fengu ekki lengri upptökutíma. Annars sætu þær líklega ennþá í Kompunni á Borgarbókasafninu í Grófinni að tala um þessa bók...
Þær eru sammála, ósammála og taka svo auðvitað nokkra útidúra, því hvað væru þættirnir án þeirra?
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Við erum strax komnar með annan þátt af poppkorn í blaðsíðunum!
Í þetta sinn setjast Alma og Fjóla niður og ræða saman um bók og mynd; Remarkably Bright Creatures.
Þær eru sammála um flest allt sem viðkemur bæði bók og mynd en við viljum endilega heyra hvað ykkur finnst!
Kolkrabbar, menn að taka út þroska og bara allt væbið.
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Þátturinn í dag er heldur rólegur og smá sár.
Við förum yfir þær bækur sem hafa látið okkur gráta í gegnum tíðina. Við fórum samt ekki yfir allar, Alma og Fjóla væru enn í upptökum ef svo væri...
Við viljum alltaf á okkur tárum bæta svo ef þið hafið grátibækur í farteskinu endilega deilið þeim með okkur!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Í þessum þætti fáum við frábæran gest, en það er engin önnur en hún Íris sem rekur Bókakrydd.
Við stelpurnar erum búnar að vera ansi forvitnar um Bókakrydd þar sem við erum rétt að fá smjörþefinn af þeim frábæru hlutum sem sem Íris ætlar sér.
Við ræðum við hana um hvað Bókakrydd er, hvað er henni mikilvægt og hvert hún ætlar sér. Að sjálfsögðu förum við svo langt út fyrir umfjöllunarefnið eins og okkur einum er lagið!
Við skulum öll bjóða Írisi og Bókakrydd velkomin í litla bókasamfélagið okkar!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
Bókakrydd getið þið svo nálgast á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; bokakrydd
Insta; bokakrydd
og svo að sjálfsögðu ef þið viljið fara í röð fyrir sumarpakkann hjá þeim;
https://bokakrydd.is
Í dag, eftir tveggja vikna pásu, kemur út nýr liður hjá okkur sem við erum að kalla Poppkorn í blaðsíðunum! Í þessum þáttum lesum við bók, horfum svo á myndina og ræðum bæði bók og mynd.
Erum við sáttar við hvernig bókin kom út? Hvort fannst okkur betri platform fyrir söguna? Ná karakterarnir að skína í gegn? Var myndin jafnvel betri en bókin????
Umfjöllunarefni þáttarins er SPOILER Project Hail Mary en Alma og Fjóla lásu bókina, skelltu sér á myndina og ræða nú saman um hvað þeim fannst!
Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum;
Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp
Insta; tbrlistinn
From the publisher's feed