
Sign up to save your podcasts
Or


Þórunn & Alexsandra ræða óumbeðin ráð í þessum þætti af Þokunni. Það er ótrúlegt hvað fólk leyfir sér oft að segja við óléttar konur og nýbakaðar mæður og ræða þær nokkra hluti sem þær hafa heyrt á seinustu árum.
ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso og Fruitfunk.
Þórunn & Alexsandra taka einn góðan spjallþátt um allt og ekkert. Þær ræða lok meðgöngunnar, hvað hefur verið að gerast seinustu vikur hjá þeim og hvað er framundan.
ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso og Fruitfunk.
*TW: Í þættinum er fjallað um barn sem lætur lífið í móðurkviði.*
Þórunn & Alexsandra fá til sín hana Önnu Mörtu, líkamsræktar- og matarþjálfara. Anna Marta segir okkur söguna af henni Sól, sem fæddist andvana árið 2008. Anna Marta greinist eftir fæðinguna með gallstasa og í þættinum ræða þær aðdraganda, fæðinguna og hvernig það hefur verið að lifa með sorginni ásamt því að vekja athygli á gallstasa.
ÞOKAN er í boði Nespresso, Bestseller og Dr. Teal's.
Þórunn & Alexsandra ræða fyrirbærið hreiðurgerð í þessum þætti af Þokunni. Lexan er djúpt sokkin í hreiðurgerðina og er að skúra baðherbergisgólfið á miðnætti á sunnudagskvöldum og að laga til í geymslunni sinni, er það ekki alveg eðlilegt? Þær ræða einnig pressuna sem margar mæður finna fyrir í gegnum samfélagsmiðla og hvernig mæður undirbúa sig á mismunandi hátt fyrir móðurhlutverkið.
ÞOKAN er í boði Besteller, Nespresso og Fruitfunk.
Þórunn & Alexsandra taka fyrir nokkrar játningar sem þær fengu sendar inn frá hlustendum og ræða í þessum þætti af Þokunni. Viðurkennum bara að við erum allar að gera okkar besta 99% af tímanum en stundum þarf maður bara að redda sér eða við gerum eitthvað sem við erum ekki endilega stoltar af.
ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso og Dr. Teal's.
Þórunn & Alexsandra ræða meðgönguna hennar Lexu í þessum þætti af Þokunni. Þær fjalla um muninn á fyrstu meðgöngunni hennar og þessari, alls konar tilfinningar sem hún er búin að upplifa á meðgöngunni, hvernig hún er að undirbúa sig fyrir fæðinguna ásamt fleiru.
ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso og Fruitfunk.
Þórunn & Alexsandra fara yfir hlut í þætti dagsins sem flestar konur upplifa en enginn talar um. Þær ræða tíðahringinn, sniðuga leið til að fylgjast með honum og ýmsa hluti til að gera lífið aðeins bærilegra þessa nokkru daga í mánuði.
ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso og Dr. Teal's.
Þórunn & Alexsandra ræða bílstólaöryggi og fleiri öryggisþætti tengda svefni og börnum í þessum þætti af Þokunni. Mjög mikilvægt er að ræða hluti eins og bílstólaöryggi og hvernig á að festa börnin rétt í stólana til að tryggja að allir séu sem öruggastir og að gera hlutina rétt.
ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso & Fruitfunk.
Þórunn & Alexsandra svara nokkrum spurningum frá hlustendum í þessum Q&A þætti af Þokunni.
ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso og Johnson's Baby.
Þórunn & Alexsandra fá til sín hana Anítu Rut en hún er ein af þremur konum sem halda úti Fortuna Invest reikningnum á Instagram. Fortuna Invest er vettvangur sem veitir aðgengilega fræðslu um fjárfestingar og er markmið þeirra að auka fjölbreytileikann í þátttöku á fjármálamarkaði. Þær ræða fjárfestingar, hvernig er best að byrja ásamt fleiri spennandi hlutum.
ÞOKAN er í boði Bestseller, Nespresso og Fruitfunk.
From the publisher's feed