
Sign up to save your podcasts
Or


Þórunn & Alexsandra halda aðeins áfram þar sem frá var horfið í þættinum um að setja mörk og ræða mikilvægi samskipta í þessum þætti. Þær tala um hversu mikilvægt það er að ræða við börnin, segja þeim hvað er að fara að gerast og undirbúa þau vel fyrir til dæmis læknisheimsóknir og aðra hluti. Þær ræða einnig aðeins hversu mikilvægt það er að passa hvernig hlutirnir eru orðanir.
Þórunn & Alexsandra svara spurningu frá verðandi móður sem er að ganga í gegnum mikla ógleði á fyrstu vikum meðgöngunar. Þær hafa báðar ansi góða reynslu á mikilli ógleði og deila sínum ráðum.
Örþokan er í boði Dr. Teal's.
Þórunn & Alexsandra ræða mikilvægi þess að setja mörk, bæði fyrir þær sjálfar og fyrir börnin og hversu mikilvægt það er fyrir börnin að virða mörkin. Það getur oft verið auðvelt að segja bara já og sleppa við storminn en til lengri tíma gerir það hlutina verri en betri. Að telja upp á 10, anda djúpt og fara inn með þolimæði skiptir sköpum og einnig að samstilla sig sem foreldrar.
ÞOKAN er í boði Nespresso, Bobbi Brown og Selected.
Í þessum þætti af Þokunni fara Þórunn & Alexsandra aðeins yfir stöðu mála með magavandamálin hennar Eriku og ræða að byrja að gefa börnum mat en halda brjóstagjöfinni samt inni. Þær fara einnig í umræðuna um að hætta með börn á brjósti og deila sinni reynslu og ráðum.
ÞOKAN er í boði St. Tropez, Name It og Nespresso.
Þórunn & Alexsandra svara skilaboðum frá hlustendum Þokunnar í Örþokunni. Í þessum þætti svara þær spurningum frá mömmu sem er að pæla hvort það sé mögulegt að útskýra fyrir börnum á aldrinum 1-3 ára þegar önnur börn bíta eða ýta í þau ásamt öðrum uppákomum sem geta komið fyrir á leikskólanum.
Örþokan er í boði Dr. Teal's.
Þórunn & Alexsandra taka round tvö í Þokuquizzinu þar sem Þórunn grillar Lexuna aðeins um allt frá landafræði til íþrótta til Crossfits. Já, ekki mikil von fyrir Lexuna sem sagt.
ÞOKAN er í boði Bioderma, Name It og Nespresso.
Þórunn & Alexsandra slá á létta strengi í þætti dagsins, reyna að gleyma jarðskjálftum, hugsanlegu eldgosi, covid vol. IIII og snjónum sem er úti. Þessi þáttur er í boði Þarf alltaf að vera grín.
ÞOKAN er í boði Bobbi Brown, Selected og Nespresso.
Í þessari Örþoku ræða Þórunn & Alexsandra um brjóstagjöf og hvenær hentugasti tími dagsins er til þess að pumpa sig til þess að safna mjólk í frystinn til að eiga án þess að auka framleiðsluna of mikið og hafa slæm áhrif á brjóstagjöfina.
Örþokan er í boði Dr. Teal's.
Í þessum þætti af Þokunni ræða Þórunn & Alexsandra um endómetríósu og ófrjósemi. Þórunn hefur glímt við sjúkdóminn í mörg ár og hún fer yfir hvað endómetríósa er, hver einkenni hennar eru og fer svo yfir sína sögu og reynslu að lifa með endómetríósu.
ÞOKAN er í boði Estée Lauder, Nespresso og Name It.
Þórunn & Alexsandra ræða aðeins skjátíma barna og hvaða áhrif hann getur haft á hegðun, leik og svefn. Þórunn tók nýlega á skjátímanum á sínu heimili og sá strax jákvæðar breytingar á ýmsum hlutum sem hún deilir í þættinum.
ÞOKAN er í boði Clinique, Estée Lauder, Name It og Nespresso.
Þessi einstaki þáttur er einnig í boði Nailberry.
From the publisher's feed