
Sign up to save your podcasts
Or


Þórunn & Alexsandra slá aðeins á létta strengi og taka fyrir spurt&svarað í þessum þætti af Þokunni.
ÞOKAN er í boði Name It, Nespresso og Bobbi Brown.
Í þessum þætti af Örþokunni svörum við fyrirspurn frá móður sem er í vandræðum með að taka út allar mjólkurvörur úr fæðunni hjá barninu sínu. Alexsandra gefur sín ráð en Frosti hefur verið mjólkurlaus í að verða ár vegna óþols.
Örþokan er í boði Dr. Teal's.
Við höldum áfram að kynnast ÞOKUNNI betur og í þessum þætti köfum við aðeins dýpra í barnæsku og líf Alexsöndru. Hvað var það sem mótaði hana sem manneskju og hafði áhrif á hana? Sá sem giskar rétt á hversu oft Lexan segir ,,þú veist" í þættinum fær 500 kr gjafabréf í Valhnetu.
Hún talar nánar um áföllin sín og baráttu við andlega heilsu í þáttunum Mömmviskubit og Kvíði og foreldrahlutverkið.
ÞOKAN er í boði Smashbox, Selected og Nespresso.
Þórunn & Alexsandra kafa aðeins dýpra og kynna sig betur fyrir hlustendum. Í þessum þætti kynnumst við Þórunni betur en nokkurn tímann fyrr en hún ræðir barnæsku sína, ýmis áföll og erfiðleika sem hún hefur aldrei tjáð sig um opinberlega, erfið sambönd og fleira.
Í næsta þætti af ÞOKUNNI fáum við að kynnast Alexsöndru aðeins betur.
ÞOKAN er í boði Bobbi Brown, Selected og Nespresso.
Þórunn & Alexsandra kynna til leiks Örþokuna. Örþokan eru stuttir þættir þar sem þær lesa upp skilaboð hlustenda, gefa sín ráð og deila reynslu sinni og upplifun. Í þessum fyrsta þætti af Örþokunni taka þær fyrir skilaboð frá móður sem á einn 8 mánaða sem er með vesen að sofna á kvöldin og erfitt er að koma honum niður fyrir nóttina. Hún veltir því fyrir sér hvort brjóstagjöf sé að trufla nætursvefninn.
Hlustendum er velkomið að senda Þórunni og Alexsöndru skilaboð á þeirra miðlum eða á Þokugramminu sem þeir vilja að þær taki fyrir í Örþokunni.
Örþokan er í boði Dr. Teal's.
Þórunn & Alexsandra halda aðeins áfram í andlegu umræðunni sem hefur einkennt umræðuefni ársins hingað til og ræða verkaskiptingu heimilisins og svokallað andlegt álag eða mental load.
ÞOKAN er í boði Glamglow.
Þórunn & Alexsandra taka uppáhalds umræðuefnið sitt fyrir í þætti dagsins, svefn. Hvað er svefn? Veit einhver foreldri það? Þær fara yfir sína upplifun af svefnvandamálum og fara yfir nokkra hluti sem valda svefnvandamálum hjá börnum, meðal annars ræða þær bakflæði, fæðuóþol, eyrnabólgur, night terror og fleira skemmtilegt sem heldur manni vakandi allar nætur.
ÞOKAN er í boði Glamglow og Dr Teal's.
Þórunn & Alexsandra halda áfram frá seinasta þætti og ræða hvernig þær geta breytt hugarfari sínu til að gera erfiða hluti aðeins bærilegri. Þær opna sig um kvíða sem tengist foreldrahlutverkinu, erfiðum fæðingum og framtíðinni og hvernig þær tækla hann svo hann hafi lítil áhrif á daglegt líf þeirra og barnanna. Þær fara djúpt og ræða rót kvíðans og hvernig þær eru ákveðnar að vinna í honum fyrir framtíðina.
ÞOKAN er í boði Bioderma.
Þórunn & Alexsandra ræða foreldrasamviskubit eða eins og þær kalla það, mömmviskubit. Margir foreldrar kannast eflaust við þetta samviskubit sem þær ræða um, sérstaklega núna eftir jóla"fríið". Þær ræða einnig um óraunhæfar væntingar sem við setjum oft á okkur sem foreldra.
ÞOKAN er í boði Bioderma og Dr Teal's.
Þórunn & Alexsandra fara yfir árið sem er að líða í þessum þætti af Þokunni. Þær ræða hvað þær gerðu á árinu, uppáhalds sögur úr þáttum og fara yfir hvað er framundan á nýju ári.
ÞOKAN er í boði Nine Kids, Dr Teals, Nóa Siríus og Blush.
From the publisher's feed