
Sign up to save your podcasts
Or


Þórunn & Alexsandra ræða um ýmsa meðgöngukvilla og skrýtna hluti sem þær upplifðu á sínum meðgöngum ásamt fleirum algengum kvillum sem margar konur finna fyrir. Þær fara yfir allt frá ógleði, slitum, þreytu, bjúg yfir í meðgöngueitrun og lighting crotch (if you know, you know).
ÞOKAN er í boði Nine Kids, Dr Teal's, Nóa Siríus og Blush.
Þórunn & Alexsandra ræða aðeins um börnin og jólin. Það var ekki nóg að vera með 2,5 klst þátt um jólin fyrir Þórunni svo þær ræða um jólagjafir, hvernig allt breyttist eftir að börnin komu í heiminn, skógjafir og meira.
ÞOKAN er í boði Nine Kids, Dr Teal's, Nóa Siríus og Blush.
Þórunn & Alexsandra ræða um leik og opinn efnivið í þessum þætti af Þokunni. Opinn efniviður er efni eða hlutur sem hefur ekki fyrirfram ákveðið hlutverk eða útkomu þannig að börn fá meðal annars tækifæri til að njóta sín á eigin forsendum og efla skapandi hugsun.
ÞOKAN er í boði Nine Kids, Dr Teal's, Nóa Siríus og Blush.
Þórunn & Alexsandra opna sig aðeins betur í þessum þætti af Þokunni en þær segja nokkrar skemmtilegar og nokkrar mjög svo dramatískar sögur sem þær hafa ekki deilt áður. Allt frá því að hringja í 911 í Downtown Los Angeles þegar þær voru fyrst að kynnast, til handtöku í Þýskalandi, til áhugaverðra atvika í háloftunum og hnísu fyrir utan heima hjá annarri þeirra.
ÞOKAN er í boði Nine Kids, Johnson's Baby, Nóa Siríus og Blush.
Þórunn & Alexsandra fá til sín góðan gest í stóra jólaþátt Þokunnar, Gyðu Dröfn eða betur þekkt sem Jyða Jöfn. Jólunn & Jólexsandra fara yfir jólahefðirnar sínar með Jyðu, undirbúning, jólagjafir, jólaskraut og meira til. Mælum með að hlusta á þáttinn yfir jólaþrifunum!
ÞOKAN er í boði Nine Kids, Dr Teal's, Nóa Siríus og Blush.
Þórunn & Alexsandra ræða meðgöngu, fæðingu og fæðingarorlof á tímum COVID. Þær fengu fjórar reynslusögur frá hlustendum Þokunnar sem eignuðust barn á árinu og fara í gegnum þeirra reynslur og ræða sín á milli.
ÞOKAN er í boði Nine Kids, Johnson's Baby, Nóa Siríus og Blush.
Þórunn & Alexsandra setjast niður og ræða um uppáhalds förðunarvörurnar sínar. Ef þú elskaðir að hlusta á okkur tala um húðumhirðu í tvo klukkutíma þá muntu elska þennan þátt líka, lofa!
Þokan er í boði Nine Kids, Dr Teal’s og Nóa Siríus.
Þessi einstaki þáttur er í boði Real Techniques.
Þórunn & Alexsandra ræða extreme favoritism og default parenting í þessum þætti af Þokunni en þær eru báðar að upplifa það sama varðandi þessi umræðuefni en á aðeins mismunandi hátt. Þær fara yfir kostina við það að vera foreldrið sem er meira í ,,uppáhaldi" en líka þá galla sem geta fylgt ásamt tilfinningunum sem blossa upp hjá hinu foreldrinu.
Þokan er í boði Nine Kids, Dr Teal's og Nóa Siríus.
Þórunn & Alexsandra fara aðeins út fyrir umræðuefni móðurhlutverksins og komast að því hversu vel þær raunverulega þekkja hvor aðra. Þáttur sem fer örlítið út fyrir þægindarammann en það er bara gaman og nauðsynlegt af og til - fullkomið tækifæri til að kynnast stjórnendum Þokunnar enn betur.
Þokan er í boði Nine Kids, Dr Teal's og Nóa Siríus.
Þórunn & Alexsandra ræða ástandið sem er í gangi og ræða aðeins um heimilið. Þær eru báðar í framkvæmdum og á leiðinni í framkvæmdir og þær ræða framtíðarplönin sín tengt heimilinu.
Þokan er í boði Nine Kids, Johnson's Baby og Nóa Siríus.
From the publisher's feed