
Sign up to save your podcasts
Or


Þórunn & Alexsandra ræða skemmtilegt tímabil sem eflaust allir foreldrar kannast við í þætti dagsins en það er “terrible twos”. Þær ræða sína reynslu af tímabilinu sem er þó bara rétt að byrja hjá þeim, hvaða leiðir þær fara til að skilja hvað börnin vilja og fara aðeins út í RIE uppeldisaðferðina sem hefur notið mikilla vinsælda upp á síðkastið.
Þokan er í boði Nine Kids og Dr Teal’s.
Þórunn & Alexsandra tala um barnasturtur, nafnapælingar og nafnaveislur/skírn í þessum þætti af Þokunni. Komu barnasturturnar þeirra þeim á óvart eða grunaði þeim eitthvað? Upplifa allir það að græja sig í HVERT EINASTA skipti eftir 30. viku því það gæti verið barnasturta og maður vill vera sætur?? Hvernig fundum við nöfnin á börnin okkar, hvaða önnur komu til greina og hvernig gáfum við þeim nöfnin? Allt þetta í þessari veislu sem þessi þáttur er.
Þórunn & Alexsandra tala um ferðalög í þætti dagsins. Allt frá ferðalögum erlendis (í þá gömlu góðu daga), hvað er must að hafa meðferðis þegar ferðast er með börn og fara yfir sumarplönin sín.
Þokan er í boði Nine Kids og Dr Teal's.
Þórunn & Alexsandra eru mættar með þátt sem átti að fjalla um svefn en fjallar um mammviskubit. Þær ræða hvernig svefninn hefur verið upp á síðkastið og koma inn á mammviskubitið sem nagar eflaust alla foreldra.
Þokan er í boði Nine Kids og Dr Teal's.
Þórunn & Alexsandra fá til sín góðan gest í þessum þætti Þokunnar en það er hann Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi Kíró. Hann er þriggja barna faðir og eigandi Kírópraktorstöðvar Reykjavíkur. Þau ræða saman um föðurhlutverkið, hvernig var að eignast barn erlendis ásamt kírópraktík á meðgöngu, eftir hana og á börnum.
Þokan er í boði Nine Kids og Johnson's Baby.
Þórunn & Alexsandra eru mættar með smá bland í poka þátt þar sem þær fara yfir hluti eins og öryggi barna, leiktímann og uppeldisaðferðir. Þær fara yfir punkta sem þær fengu sendar frá öðrum foreldrum varðandi öryggisatriði og ræða sín á milli.
Þokan er í boði Nine Kids og Johnson's Baby.
Þokan mælir með Cybex bílstólum sem fást í verslun Nine Kids og á ninekids.is.
Þórunn & Alexsandra taka sér smá pásu frá því að ræða um móðurhlutverkið og fá til sín leynigestinn Gyðu Dröfn. Þær reyna að finna út úr því hver Gyða er, fara í ysta lag lauksins, ræða skemmtilegar ferðasögur og ýmis ævintýri sem þær vinkonurnar hafa lent í.
Þokan er í boði Nine Kids og Johnson's Baby.
Þórunn & Alexsandra ræða brjóstagjöf í þessum þætti Þokunnar. Þær tóku upphaf brjóstagjafar fyrir í fyrstu seríunni en nú halda þær áfram þar sem frá var horfið og tala um brjóstagjöf og þeirra reynslu frá 4 mánaða til dagsins í dag. Farið verður yfir öll þau tímabil sem krílin ganga í gegnum sem geta haft gríðarleg áhrif á brjóstagjöfina og einnig ræða þær hvernig á að hætta með barn á brjósti.
Þokan er í boði Nine Kids og Johnson's Baby.
Þessi einstaki þáttur er í boði Lansinoh og Medela.
Þórunn & Alexsandra ræða afar viðkvæmt umræðuefni sem hefur verið mikið á milli tannanna á fólki en það eru börn og samfélagsmiðlar. Hvar liggja mörkin? Hvenær er í lagi að birta myndir/myndbönd af börnum á samfélagsmiðlum og hvenær ekki? Hvað með þegar börn eru svo ung að þau geti ekki veitt samþykki fyrir þessum birtingum? Þær ræða þetta ásamt umræðum sem hafa verið í gangi um málefnið á opnum miðlum og svara nokkrum spurningum sem þær fengu í gegnum Instagram.
Þokan er í boði Nine Kids og Johnson's Baby.
Þórunn & Alexsandra taka fyrir umræðuefni sem margir hlustendur hafa óskað eftir heillengi en það er matartíminn. Það að byrja að gefa barni fasta fæðu getur verið skemmtilegt og spennandi breyting en fyrir aðra getur þetta verið smá barátta og matarsóun. Þó svo að þær voru samferða í gegnum þetta ferli þá hafa þær tvær ólíkar sögur að segja en annað krílið var matargat frá fyrsta degi en hitt vildi ekkert borða fyrr en um 8 mánaða aldurinn. Þær ræða sína reynslu, hvað er best að hafa í huga þegar á að gefa barni fyrstu föstu fæðuna og fara aðeins yfir mikilvægi heimadekurs á þessum skrýtnu tímum.
Þokan er í boði Nine Kids og Johnson's Baby.
Þessi einstaki þáttur er í boði Lyfju.
From the publisher's feed