
Sign up to save your podcasts
Or


Þórunn & Alexsandra fá hana Gunnhildi Birnu til sín en þær ræða erfiðleika við að verða barnshafandi ásamt því að fara yfir ferlið sem Gunnhildur Birna og unnusti hennar gengu í gegnum síðastliðið haust en þau eiga von á sínu fyrsta barni í sumar.
Þokan er í boði Nine Kids og Johnson's Baby.
Þórunn & Alexsandra ræða hreyfiþroska í þessum þriðja þætti af Þokunni. Þó þær eiga börn með 11 daga millibili þá var gríðarlegur munur á hreyfiþroska þeirra og fara þær yfir hvenær börnin byrjuðu að velta sér, sitja sjálf, skríða, standa upp og loks labba. Einnig koma þær aðeins inn á tal og hversu mikilvægt það er að bera barnið sitt ekki saman við önnur börn þegar kemur að þroska.
Þokan er í boði Nine Kids og Johnson's Baby.
Þórunn & Alexsandra eru komnar aftur í rútínu með Þokuþriðjudagana og fara núna yfir fyrstu mánuðina í leikskólanum. Þær fara yfir aðlögunina, blessuðu veikindin og fara yfir leikskólatöskuna.
Þokan er í boði Nine Kids og Johnson's Baby.
Þessi einstaki þáttur er einnig í boði Lyfju og Sterimar.
Þórunn & Alexsandra fá til sín kynfræðinginn og mömmuna Indíönu Rós. Þær spjalla saman um sambandið og kynlíf eftir fæðingu en það er heill hellingur sem breytist eftir að nýr einstaklingur bætist við fjölskylduna. Oft gleymist að hlúa að sambandi foreldranna og hvenær á maður eiginlega að finna tíma og orku fyrir kynlíf?
Þokan er gerð í samstarfi við Better You, Lansinoh og Johnsons Baby.
Þórunn & Alexsandra fá til sín yndislegan gest en það er vinkona þeirra hún Guðrúnu Sørtveit. Guðrún er förðunarfræðingur, bloggari á Trendnet og er hún gengin 37 vikur með sitt fyrsta barn. Þær ræða meðgönguna, undirbúning og áfall sem Guðrún og kærasti hennar gengu í gegnum stuttu áður en hún verður ófrísk en lenti hún í að fá utanlegsfóstur nokkrum mánuðum áður.
Þokan er gerð í samstarfi við Better You, Lansinoh og Johnsons Baby.
Í þessum þætti fara Þórunn & Alexsandra yfir meðgöngurnar sínar en þær eiga það sameiginlegt að þessir níu mánuðir voru ekki þeir auðveldustu. Þær ræða ýmsa kvilla sem upp komu ásamt sjúkdómi sem lítið er vitað um en er mjög alvarlegur bæði móður og barni.
Þokan er gerð í samstarfi við Better You, Lansinoh og Johnsons Baby.
Í þessum fyrsta þætti spjalla bestu vinkonurnar Þórunn & Alexsandra um þegar börnin þeirra komu undir. Voru þau plönuð eða komu þau eins og þruma úr heiðskíru lofti? Hvernig komust þær að óléttunni og hvernig sögðu þær mökum sínum frá?
Þokan er gerð í samstarfi við Better You, Lansinoh og Johnsons Baby.
From the publisher's feed