
Sign up to save your podcasts
Or


Þórunn & Alexsandra svara spurningum frá hlustendum í Örþokunni. Spurning dagsins snýr að hvað skal gera eftir að kona pissar á jákvætt óléttupróf, hvert á að hringja og hvað þarf að huga að?
Örþokan er í boði Johnson's Baby.
Þórunn & Alexsandra ræða aðeins um sumarfríið og þeirra hugmyndir um hvað er hægt að gera með börnunum í sumar. Einnig deila þær hljóðbroti frá augnablikinu þegar Alexsandra kom Þórunni á óvart og deildi með henni kyninu á barninu.
ÞOKAN er í boði Nespresso og Name It.
Þórunn & Alexsandra ræða daglegt líf í þessum þætti af Þokunni. Þær fjalla um allt frá daglega lífi sínu sem áhrifavaldar til daglegs lífs sem mæður.
ÞOKAN er í boði Nespresso og Name It/Selected.
*TW: Rætt er um fósturmissi í þættinum. Þórunn & Alexsandra fá loksins til sín gest í Þokuna eftir mikla bið en það er engin önnur en hún Fanney Skúladóttir, ofurmamma þriggja barna og stofnandi Busy Mom samfélagsins á Íslandi. Þær ræða allar þrjár meðgöngur og fæðingar Fanneyjar en hún eignaðist sitt fyrsta barn 18 ára gömul og svo tvö börn með 15 mánaða millibili. Þær ræða einnig um Busy Mom og hvernig það kom til.
ÞOKAN er í boði Nespresso og Selected.
Þórunn & Alexsandra svara fyrirspurn frá hlustenda um breyttar matarvenjur og hvernig á að peppa sig til að borða hollar og hugsa betur um það sem maður borðar. Þórunn deilir sinni reynslu og Lexan lærir mjög mikið nýtt.
Örþokan er í boði Johnson's Baby.
Þórunn & Alexsandra fara aðeins aðra leið í dag og taka loksins upp margumbeðinn þátt um prjón.
ÞOKAN er í boði Nespresso og Name It.
Þórunn & Alexsandra ræða allt sem hefur gengið á í Þokunni seinustu daga ásamt því að slá aðeins á létta strengi.
ÞOKAN er í boði Nespresso og Selected.
Þórunn & Alexsandra deila spennandi fréttum með hlustendum Þokunnar í þessum sérstaka tilkynningarþætti.
ÞOKAN er í boði Selected og Nespresso.
Þórunn & Alexsandra ræða það að hætta með bleyju í þessum þætti af Örþokunni. Þær eru á mjög ólíkum stöðum með börnin í þessu og ræða sína reynslu og upplifun.
Örþokan er í boði Dr. Teal's.
Þórunn & Alexsandra ræða aðeins vináttu eftir barneignir og þær breytingar sem geta orðið á vináttusamböndum. Þær ræða þetta frá báðum hliðum; þegar þú ert sú sem eignast barn og þegar þú ert sú barnlausa og vinkonur þínar eignast börn. Það er margt sem breytist í kjölfar barneigna og vináttusambönd eru talin þar með, oft styrkjast þau en stundum fjara þau því miður út.
ÞOKAN er í boði Nespresso og Name It.
From the publisher's feed