
Sign up to save your podcasts
Or


Send us Fan Mail
Sara María kom til okkar í upplýsandi spjall um ferðalög vitundar með hjálp hugvíkkandi efna. Hún deildi með okkur reynslu sinni á notkun sveppa, DMT, meskalín, MDMA í þeim tilgangi að víkka hugan og opna sýn okkar í hin dýpstu lög vitundar sem við annars höfum engan aðgang að.
Sara kemur fram af miklu hugrekki og sannfæringu hvað varðar notkun þessara efna og ræðir opinskátt um þessi mál öll í þeim tilgangi að fræða og upplýsa, fræða og upplýsa sem meðal gegn fordómum og óbilgirni.
Takk fyrir innlitið elsku Sara og takk fyrir að leyfa okkur að kíkja inn í hinn annars hulda heim.
Send us Fan Mail
Þvottahúsið #34 Egill Sæbjörnsson is tonk of the lawn.
Elskulegur Egill S kom til okkar í Þvotthúsið með alla sína auðmýkt og innsæisdýpt. Fór inn í heiðarleikan, sýndi okkur meirleika sinn og talaði um unglingsástina. Hann lýsti eyðurmerkurgöngu sinni með allri sinni feimni, eyðurmerkurganga sem undarfari uppljómunar í Túlúss í Frakklandi þar sem hann sór þess eið að ríða, éta kjöt, rúnka og spila rokk, með öðrum orðum, leika sér að efninu eins og með legokubba.
Egill S er einn af stærstu nútímalistamönnum Íslands þó án þess að vita af því sjáfur, hann er hógværðin uppmáluð og er keyrður áfram af hreinum ásetning, ásetning sem snýr að sköpun og hrárri upplifun áhorfandans.
Takk fyrir innlitið vinur og megi mátturinn ávallt vera með þér.
www.egills.de
Send us Fan Mail
Bræðurnir taka lauflétta kremkynningu í boði gottcbd.is og svo melta síðustu fjóra viðmælendur.
TRIGGERWARNING- EKKI FYRIR VIÐKVÆMNA
Viðtalið tekur óvæntan snúning í lokin með mjög svo óviðeigandi sögu um danskan bankaráðgjafa.
www.gottcbd.is
Send us Fan Mail
Elskulegur stjörnu Sævar kom til okkar í Þvottahúsið og útskýrði fyrir okkur alheiminn á tæpum tveim tímum. Hann fór yfir geimferðir, liðnar og framtíðar. Stöðu Íslands í geimmálum, stjörnuskoðun, nifteindir og svarthol, endalok alheims, plokk og fjárhagslega sjálfbærni, en stjörnu Sævar segir að það séu engin geimvisindi að spara monní.
Big chrunch og big freeze kenningarnar útskýrðar af miklum eldmóð. Þarna er á ferðinni viskubrunnur sem aðeins einu sinni hefur farið í blackout og segist ekki vera shapeshifter.
Takk fyrir að koma Sævar.
This is the way
Send us Fan Mail
Elskulegur Hlynur kom til okkar í Þvottahúsið með átakanlega sögu sem svo samt hefur áður hefur leitt hann á þann stað sem hann er í dag, edrú og fullur af eldmóð. Hann fór yfir sterana og fitnessinn, skorts og minnimáttar tilfinninguna, óttan og stjórnleysið. Hann fer hratt yfir fangelsisdvöl sína í Brasilíu fyrir 4 kg af kóki. Áfallaeindirnar sem eftir sátu fyrir hann að díla við með öllum mögulegum ráðum. Stjórnlaus vímuefnaneysla sem nær drap hann áður en hann náði að spyrna sér frá botninum og öðlast bata. Sveiflan sem færði hann í stofnum góðgerðasamtakana Það er von. Ótrúleg saga sem snertir og gefur von.
www.thadervon.is
Send us Fan Mail
Elskulegur Anik kom með alla sína hjartavisku, hann kom sannfærður um að brögð væru í tafli hvað svo margt varðar, covid, bólusetningar og gróðurhúsáhrifin. En hann er sannfærður um að gegnsæi sé framundan og við sem mannkyn séum á leið inn í ljósið. Gegnsæið er einnig allsráðandi í hjónabandi hans því fyrir um 4 árum opnuðu þau hjónin bandið eða lykkjuna og í dag lifa þau í opnu hjónabandi með mjög jákvæðum og uppbyggilegum afleiðingum.
www.hjartavit.com
Send us Fan Mail
Bræðurnir í Þvottahúsinu kynna til leiks sponsor þáttarins Gott cbd með dúnmjúkri kremkynningu. Þar eftir duttu þeir í meltingu þessarar fjórðu seríu sem snéri að sjálfbærni, naumhyggju og óskilyrtri samkennd. Í lokin datt Gunnar í geðrof hvað varðar erfðasynd Hans Wium langa langa langa langa afa langa langa afa bræðrana. Fortíðin gerð upp og krufin í samræmi við metoo byltinguna.
Verði ykkur að góðu ágætu landsmenn.
www.gottcbd.is
Send us Fan Mail
Hann Hamp Logi kom til okkar fullur af eldmóð og sannfæringu. Hann tók ákvörðun að helga starfi sínu umhverfisvænni sveiflu og hampurinn, trefjarnar eiga hug hans allan. Hann er meðstjórnandi Hampfélagsins. Hann ræktar hamp, vinnur trefjarnar, gerir steypu prufur fyrir mannvirkjastofnun og allskonar svoleiðis dót. Hann Hamp Logi hefur náð stigi óskilyrtrar samkenndar og vinnur að sameiginlegri velferð alls sem er. Takk fyrir innlitið elsku Logi og megi mátturinn vera með þér Logi.
Send us Fan Mail
Hún elskuleg Rakel kom til okkar bræðrana í Þvottahúsinu keyrandi á rafmagnsbíl. Hún kallar ekki allt ömmu sína. Fer sínar eigin leiðir, treður sínar eigin slóðir. Hún Rakel er frumkvöðull og uppljóstrari hvað varðar matarsóun. Hún er keyrð áfram af hugsjón og samkennd, hún skilgreinir sig alls ekki sem baráttumanneskju og hatar ekki bændur. Henni blöskrar einfaldlega bruðlið, sóunina og vanvirðinguna við sem neytendur sínum er við ekki eignum okkur tilveruréttinn að fullu og öxlum ábyrgð.
Takk Rakel & krakkar munið að klára af disknum og fáið ykkur moltu!!
https://www.facebook.com/Vakandi-232583466923742
verandi.is
Send us Fan Mail
Elskuleg Þórhildur sem er stofnandi feisbúkk síðunar áhugafólk um mínimaliskan lífstíl kom til okkar í Þvottahúsið.
Hún fór yfir hvernig hleðsla efnishyggjunar fékk hana til að skoða eðli sambands okkar við hluti, hlutverk, sambönd, uppeldi, sjálfsumgengi og upplifun.
Hún snéri sér að minimalisma sem svo meir og meir hefur smitast yfir í andlega iðkun þar sem grisjunarferli vitundar hefur átt sér stað.
Mjúk nærvera og minimaliskt spjall sem rammaði í raun það eina sem vert er að ræða um nema þá í sveittum eftirpartíum.
Takk Þórhildur fyrir hugvikkunina.
https://www.facebook.com/groups/186314754862047
From the publisher's feed
Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem gætu…