
Sign up to save your podcasts
Or


Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana í Þvottahúsinu er engin önnur en Ragnhildur Gyða Magnúsdóttir. Ragnhildur er heilsunuddari, Íþrótta og heilsufræðingur, afreksíþróttamanneskja, hampræktandi og þerapisti með heildræna nálgun.
Hún erum fyrrum sterkasta kona Íslands sem og að hún á farsælan feril innan vaxtaræktar.
Í þessu viðtali talar hún opinskátt um sína 8 ára löngu steraneyslu sem og breytingar á sálarlífi sem færðu hana inn á andlegar brautir.
Send us Fan Mail
Í þessum þætti kynnum við nýja CBD olíu frá okkar stuðningsaðila sem er gottcbd.is ásamt meltingu á síðustu fjórum viðmælendum.
Þetta er síðasta meltingin í þessu formi í bili.
Send us Fan Mail
Í nýjasta þætti Gunnars og Davíðs í hlaðvarpinu Þvottahúsið voru gömul mál gerð upp. Í byrjun þáttarins les Gunnar upp yfirlýsingu sem snýr að syndum forfeðra þeirra Gunnars og Davíðs. Um er að ræða bein ættartengsl þeirra 8 kynslóðir tilbaka til sýslumannsfeðgana Jens og Hans Wiium. Feðgar þessir léku aðalhlutverk í lengsta sakarmáli Íslandssögunar þar sem Sunnefa Jónsdóttir og Jón bróðir hennar voru dæmd til dauða fyrir blóðskömm í kringum 1740.
Í ljósi metoo byltingarinnar ákváðu bræðurnir Gunnar og Davíð að taka þetta mál upp og kryfja til mergjar með góðri hjálp. Þeir fengu til sin Kristínu Amaliu Atladóttir, leikstjóra, menningarhagfræðing og kotbónda.
Kristín er síðustu ár búin að kynna sér líf allra þeirra 63 kvenna sem teknar voru af lífi hér á landi fyrir einmitt blóðskömm svo eitthvað sé nefnt. Hún hefur lagt sérstaka áherslu á mál Sunnefu enda við skoðun ein sú magnaðasta saga hvað varðar valdnýðslu, ofbeldi og spillingu. Það sem einkennir þetta mál er þó einnig styrkurinn og þrautseigjan sem bæði Sunnefa og bróðir hennar Jón sýndu öll þau ár þau voru i haldi Hans Wiium sýslumans.
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur Gunnars og Davíðs í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsinu er afreksíþróttamaðurinn og veganinn Árni Björn Kristjánsson. Árni Björn fann sig knúin til að svara síðasta viðmælanda Þvottahússins fullum hálsi.
Síðasti viðmælandinn, Þorbjörg Hafsteinsdóttir, mestöluhöfundur, hjúkrunarfræðingur, keto-flexari og reynslubolti innan næringar sagði í viðtalinu að hún hefði kynnst fáum í gegnum tíðina sem hafa liðið vel á vegan. Hún gékk en lengra og sagði að þeir vegan skjólstæðingar sem höfðu leitað til hennar í gegnum árin þjáðust gjarnan af vöðvarýrnun og lágri orku.
Árni Börn tók þessu nærri sér enda líklega einn af sterkustu ef ekki sterkasti vegani Íslands. Eins og hann sagði sjálfur í viðtalinu þá snarar hann þyngdum í ólympískum sem myndu snúa flesta úr axlarlið.
Árni mætti þar af leiðandi í Þvottahúsið á sunnnudagsmorgni og sagði sína sögu, sína skoðun, deildi sinni reynslu.
www.goheilsa.is
instagram
@go_heilsa
@arni_kristjansson
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs í Þvottahúsinu er engin annar en Þorbjörg Hafsteinsdóttir heilsuguru. Þorbjörg er hjúkrunarfræðingur að mennt sem hefur farið sínar eigin leiðir hvað varðar að fínstilla líkaman með réttri fæðu og iðkun.
Hún er metsöluhöfundur bóka sem fjalla um hvernig manneskjan getur hámarkað getu sína, lengt lífið og aukið á lífsgæðin með sára einföldum leiðbeiningum. Leiðbeiningum sem einmitt við getum byrjað að fara eftir bara ef við sitjumst niður í augnablik og hlustum, hlustum á allar raddir líkamans.
Frumur, blóðkorn, prótein, aminósýrur, taugaboðefni, þungamálmar, veganisma og fleyrri matvælastefnur, psilocybin, kuldaböð og föstur er bara brot af því sem Þorbjörg fer yfir í þessu magnaða viðtali.
www.ketoflex.is
Send us Fan Mail
Björgvin Páll Gústavsson, markvörður og bakari er nýjasti gestur bræðrana Gunnars Dan og Davíð Karls Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið. Björgvin mætti auðvitað í þáttinn sem afreksíþróttamaðurinn sem hann er en fór samt sem áður yfir sögu sína. Rótlaus æska og brostið uppeldi sem leiddi hann inn í allskonar úræði af hinu opinbera fyrir “svokölluð” vandræðabörn og unglinga.
Hann fer í þessu magnaða viðtali yfir mikilvægi réttrar næringar, reglu hvað varðar svefnvenjur, rétta öndun og almennt rétta og gilda nálgun innan allra sviða lífsins hvort sem sé í leik eða starfi.
Send us Fan Mail
Bræðramelting á þrem ofurkonun og einu ofurkvár. Þar eftir er tímamóta kynning á vörum styrktaraðila þáttarins GottCbd. Við segjum tímamótarkynning því um er að ræða kynning á “húðolíunni” svokallaðri sem er svo hrein að það má drekka hana, sem við svo í Þvottahúsinu mælum eindregið með að sé gert heilsunni til hagsbóta. Annars jarðtengd bræðramelting þar sem Gunnar er til friðs og ekki með neina stæla eða óviðeigandi svallsögur úr fortíðinni.
Njótið heil
Send us Fan Mail
Embla Ordal er nýjasti gestur bræðranna Gunnars Dan og Davíðs Karls Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið. Embla er kynsegin, og vafðist það eitthvað fyrir bræðrunum sem fengu hán* í heimsókn til að ræða hin ýmsu kyn.
Send us Fan Mail
Þórunn Thors Jónsdóttir, frumkvöðull og viskubrunnur hvað varðar kannabis og iðnaðarhamp er nýjasti viðmælandi bræðrana Gunnar Dan Wiium og Davíðs Karl Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið. Þórunn er einnig stofnandi Hampfélagsins þar sem hún ásamt öðru góðu fólki vinnur að lögleiðingu fæðubótarefnisins CBD sem og almennri vitundarvakningu hvað varðar óendanlega vinnslumöguleika iðnaðarhampsins.
https://www.hampfelagid.is
Send us Fan Mail
Elskuleg Elín kom til okkar með alla sína sögu, sitt blæðandi sár sem hún reyndi að heila með svelti. Henni var komið í meðferð um tvítugt þar sem vegferð hennar til gæfu og gengis hófst. Hún er eldklár og full eldmóð, komin í andlegan sem og félagslegan þroska. Búin að rýna í djúpið nógu lengi til að getað greint og komið orðum að því sem hún er og er ekki, í þeirri kristöllun fortíðar sinnar leitast hún eftir að hjálpa öðrum í sömu stöðu og hún sjálf var í.
www.atroskun.is
From the publisher's feed
Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem gætu…