Þvottahúsið og Geimsýran

Þvottahúsið og Geimsýran

Download on the App Store

Þvottahúsið og Geimsýran episodes

  • Þvottahúsið #26 Tryggvi Hansen. Tjaldbúinn, grjóthlaðarinn og dýrahvíslarinn við Rauðavatn.

    Send us Fan Mail

    Hann kom dúðaður. 
    Sagði okkur sögur á líkindarmáli. Þjáningarsögu mannsins frá örófi til dagsins í dag. 
    Hvernig hún svo endar í heimreiðinni fyrir okkur að takast á við.
    Hann skilur fuglana, mýsnar, þær tala við hann. Býflugur tala við hann. 
    Ef þið hafið ekki athyglisgáfu eða getu í sögur af þessari dýpt, spólið þá að 124 mín og heyrið hann þýða söng skógarþrastarins.
    Tryggvi Hansen snérist til skógar fyrir um 5 árum síðan og þar leitast hann sátta. Sátta við sína innri sem og hina ytri náttúru.
    Takk elsku Tryggvi fyrir að treysta okkur fyrir meirleika þínum.

    1 hr 41 min
  • Þvottahúsið #24 Einar Bárðar. Higgs orkusviðið sem gefur ögnum massa

    Send us Fan Mail

    Við í Þvottahúsinu fengum til okkar elskulegan Einar Bárðason, athafnamann og viðburðarkóng. Hann fór yfir störf sín síðastliðna áratugi, Eldborg að Votlendissjóði, plokkið og náttúrusamkenndin, Kía gullhringurinn, hjólreiðarnar og slysið sem markaði hann, tónlistina og ásetning allra þessara hreyfinga sinna innan efnisheims. 

    Hann sagði okkur einnig frá eirðarleysinu, flóttanum undan sjálfum sér með áfengi og sykri. Hann er nú hættur að drekka en er að berjast við sykurinn. Hann segist ekki vera einmanna en skilur hvað er að þjást, hann lifir með henni, þjáningunni.

    Hann Einar fór yfir allt og skildi ekkert eftir, þvílíkt gull af manni með hreinan ásetning. Maður sem við öll ættum að taka til fyrirmyndar, hugsandi, framkvæmdarfús. Þetta er viðtal sem virkjar hinar mestu sófakartöflur.

    1 hr 56 min
  • Þvottahúsið #23 Eva Hauksdóttir. Norn, samfélagsrýnir, móðir og dóttir.

    Send us Fan Mail

    Elskuleg Eva Hauksdóttir, réttlætisriddarinn,  kom til okkar í Þvottahúsið og skildi ekkert eftir. Kuklið, rúnir og guðleysið. Málvernd og tjáningarfrelsið. Dólgsfeminisman, bloggið, byltinguna. 

    Hún fór yfir sögu sonar síns Hauks Hilmars. Aktivistan sem lést í sprengjuáras Tyrkneska hersins í lok febrúar 2018.

    Einnig fórum við ítarlega yfir málið sem snýr að íll skiljanlegri lífslokameðferð sem dró móður hennar til dauða. 

    Einstök kona með eldheita þörf fyrir réttlæti og tjáningu.

    Takk fyrir að koma til okkar í Þvottahúsið elsku Eva.

    norn.is

    1 hr 33 min
  • Þvottahúsið #22 Halldóra Mogensen, freigátu skipstjóri Pírata og móðir.

    Send us Fan Mail

    VáVáVá. Ég hef aldrei séð sjálfan mig í stjórnmálamanneskju né neinum stefnum neins stjórnmálaflokks áður. Ég hef aldrei kosið en eftir þetta viðtal gæti það mögulega breyst. 
    Hún elskuleg Halldóra kom inn með mannamál, hjarta, hnífskörp og  óhrædd við að segja skoðanir sínar á kerfinu eins það lítur út frá hennar bæjardyrum séð. 
    Núvitund, uppeldi, menntastefnur, virk samkennd, borgaralaun, útíopía, hampur og CBD.
    Með skemtilegri manneskjum sem ég hef hitt.

    https://piratar.is

    https://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=1218

    1 hr 14 min
  • Þvottahúsið #21 Helga Arnardóttir. Vonarljós innan sálarfræði og geðheilbrigðis.

    Send us Fan Mail

    Hún kom hjólandi heila 6 km í grenjandi rigningu og fannst það bara hressandi. Við fórum yfir núverandi stöðu innan geðheilbrigðiskerfisins, vonir og væntingar sem og hnífbeitta framtíðarsýn. Núvitund og jákvæðni, uppgjör og valdefling var þeminn með þessum frumkvöðli og ungstyrni innan geð og sálfræðinar. Takk Helga fyrir að koma til okkar í Þvottahúsið.

    http://www.andlegheilsa.is

    54 min
  • Þvottahúsið #20 Biggi Veira riddari raftónsins og skapari hljóðsins.

    Send us Fan Mail

    Hann kom í sokkabuxum og blússu en geislaði af karlmennsku. 
    Elskulegur Birgir Þórarinsson, aka Biggi Veira í GusGus. 
    Við fórum yfir sköpunina, listina, hljóðið, tilfinningarúnkið og gæsahúðina. Hann dregur sko engar ályktanir hann Biggi, hann er maður raka og nennir engu fokking rugli. Mikið hlegið, rökrætt og rýnt.
    Frábær heimsókn í Þvottahúsið. Takk Biggi.
    https://www.gusgus.com/music

    1 hr 9 min
  • Þvottahúsið #19 Jónas Sig. Myrkrið, þungi, þjáning og svarthol, undanfari Miklahvells.

    Send us Fan Mail

    Við krýndum hann konung nærverunar eftir þetta viðtal; 
    Við kynnum til leiks elskulegan Jónas Sigurðsson, hinn skapandi analitiker. 

    Þemi þessa þáttar var dauðinn, drunginn og þunginn, myrkrið, þjáningin og svo var endað á svartholum sem mögulegum undanfara Miklahvells. 

    Dökkur þemi sem skildi okkur eftir með óbifandi von á bjarta framtíð. 

    Takk Jónas fyrir eldmóðinn.

    1 hr 25 min
  • Þvottahúsið #17 Ingólfur Nielsson. AKA Sitting Bull og frelsari mannkyns

    Send us Fan Mail

    Hann Ingólfur kom til okkar í tjúlluðu ástandi, búin að tjúna sig inn í þvílíka útgeislun og innsæi. 

    Hann fór yfir líf sitt með öllu til heyrandi, bernskubrek, alkahólisman, efnisviðjarnar, þjáningin, uppgjöfin, dauðareynslan sem færði hann yfir í lífreynsluna. 

    Hann fór yfir tíman sem Sitting Bull, frelsari mannkyns og hægra og vinstra heilahvel. 

    Þetta er rosalegt viðtal við einstakan mann. 

    Rastafari

    http://peace-files.is


    2 hr 5 min

About Þvottahúsið og Geimsýran

From the publisher's feed

Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem  gætu…