Þvottahúsið og Geimsýran

Þvottahúsið og Geimsýran

Download on the App Store

Þvottahúsið og Geimsýran episodes

  • Þvottahúsið#66 Soffía Villingur fer djúpt

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðrana í Þvottahúsinu er elskuleg Soffía H. Halldórudóttir einnig þekkt sem Soffía villingur. Soffía sem er þriggja barna móðir úr Breiðholtinu fór yfir sögu sína og áföll en hún ólst upp með föður sínum  til tíu ára aldurs sem beitti hana og móður hennar ólýsanlegu ofbeldi, andlegu, líkamlegu og kynferðislegu. Viðtalið var birt 17 Janúar sem markar ársafmæli Þvottahússins og er þátturinn númer 66. Gunnar tók viðtalið einn í þetta skiptið sökum þess að Davíð var vant við látin í einangrun sökum greinds covid smits.
    Við viljum vara viðkvæma við efni þáttarins.
    https://www.kvennaathvarf.is
    https://stigamot.is

    1 hr 35 min
  • Þvottahúsið# 65 Magnús Ver er geðveikt sterkur kall

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wíium er engin annar en kraftakallinn Magnús Ver Magnússon. Magnús sem hefur unnið titilinn heimsins sterkasti maður fjórum sinnum fór yfir feril sinn frá því að hann hóf lyftingar sem unglingur fyrir austan þar til dagsins í dag þar sem vinsæll dómari og mótshaldari svokallaðara “strongman” móta. 
    Tekið skal fram að viðtalið var tekið upp á þrettándan og því talsvert um flugeldahvelli sem heyrast í viðtalinu öðru hverju.



    1 hr 39 min
  • Þvottahúsið#63 Guðmundur Felix er hands on

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíð Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar er Guðmundur Felix handhafi.
    Felix eins og hann er gjarnan kallaður hefur skrifað sig djúpt í hjörtu fólks bæði hér heima sem og erlendis. 
    Felix lenti í slysi janúar 1998 er hann vann sem rafveituvirki. Slysið sem hefði dregið flesta til dauða varð til þess að líf hans breyttist úr hefðbundinni alþýðu sögu yfir í í hálfgerða hryllingsmynd á skotstundu. 
    Nú 23 árum síðar með fullt af allskonar er hann nýkomin heim í jólaheimsókn með sinni ástkæru konu Silwiu og orðin handhafi. Hann gékkst undir aðgerð eins og flestir vita í janúar á þessu ári þar sem græddir voru á hann nýjir handleggir frá öxlum og niður.


    1 hr 16 min
  • Þvottahúsið#62 Arnar Þór Jónsson klagar ofríkistilburði

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er enginn annar en lögmaðurinn og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins,  Arnar Þór Jónsson. Arnar hefur einnig sinnt starfi sem dómari ásamt því að starfa sem kennari og fræðimaður við Háskólan í Reykjavík.
    Arnar er lögmaður samtakanna Frelsi og ábyrgð. 
    Samtökin Frelsi og ábyrgð vilja meina að borgaralegt viðnám sé eina vörnin gegn ofríki og harðstjórn. Og þegar vísað er í ofríki og harðstjórn þá er verið að meina framgöngu stjórnvalda í málum sem snúa að covid og bólusetningum. 




    2 hr 5 min
  • Þvottahúsið#64 Guðrún Bergmann um hina miklu endurræsingu

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin önnur en Guðrún Bergmann, en hún hefur í rúm 30 ár verið verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða.
     Hún hefur haldið ótal námskeið og verið einkum afkastamikill rithöfundur á sviði heilsu, sálar og líkama.
     Guðrún, sem einnig gæti skilgreinst sem einskonar aktivisti, segist vera manneskja mikillar
    réttlætiskenndar í bland við djúpt innsæi sem hún hefur öðlast í gegnum sína andlegu vinnu í öll þessi ár.
    www.gudrunbergmann.is


    1 hr 23 min
  • Þvottahúsið#61 Skoppa og Skrítla lifa að eilífu

    Send us Fan Mail

    Linda Ásgeirsdóttir og Hrefna Hallgrímssdóttir, einnig þekktar sem Skoppa og Skrítla eru nýjustu gestir Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið. Þær fóru yfir í þættinum farsælan átján ára feril Skoppu og Skrítlu.
    Það voru blendnar tilfinningar sem bræðurnir Gunnar og Davíð upplifðu í þessari heimsókn Skoppu og Skrítlu í Þvottahúsið. Skoppa og Skrítla hafa á einhvern hátt skrifað sig inn í hug og hjörtu ungra sem aldna í nær tvo áratugi. Skoppa og Skrítla sem þær vilja meina að séu furðuverur án pólitískrar afstöðu og nánast kynlausar urðu til sem afþreyingarefni fyrir tveggja ára son Hrefnu fyrir átján árum síðan.


    1 hr
  • Þvottahúsið#60 Sólveig Svavars Heimakennsla og hæææglææti

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er Sólveig Svavarsdóttir.
    Sólveig er fjögura barna móðir sem hefur síðustu ár þróað með sér og tileinkað  svokallaðan hæglætislífstíl eða “slowliving”.

    Auk þess að lifa meðvituðum lífstíl hæglætis fer hún ótroðnar slóðir hvað varðar skólagöngu sonar síns sem er í öðrum bekk. 
    Sólveig sem er kennara menntuð er ein fjögura á Íslandi sem sér barni sínu fyrir svokölluðum heimaskóla eða ”homeshcooling”.
    Sonur hennar sem er í öðrum bekk stundar nám eftir námsskrá heima fyrir með móður sinni í stað þess að ganga í skóla eins allir aðrir jafnaldrar hans. 
    https://www.haeglaeti.is


    53 min
  • Þvottahúsið#59 Arnór Sveins Kæling, öndun og núvitund

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í Þvottahúsinu er engin annar en kulda og núvitundarmeistari Primal Iceland, Arnór Sveinsson. Arnór fór yfir í þessu viðtali hvernig hann leiddist yfir í andlega iðkun eftir að hafa misst frænda sinn og vinnufélaga til margra ára í hræðilegu slysi í árshátíðarferð í Riga.
    Arnór sem er alin upp á Álftanesi var ellefu ár til sjós. Þess á milli hékk hann heima og reykti gras ásamt sem hann djammaði með áfengi og öðrum efnum. Arnór fór yfir í viðtalinu hvernig hann upplifði karlmennskuna um borð í togaranum, þessa hörðu karlmennsku sem bauð ekki upp á neitt annað en að standa sig. Þó segir hann að hann hafi fundið fyrir miklu bræðralagi um borð og að það hafi verið það sem hann sótti í þann  tíma sem hann var til sjós.

    https://www.primal.is/youareprimal

    1 hr 29 min
  • Þvottahúsið#58 Magnús er BDSM

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en Magnús Hákonarson fyrrum formaður B.D.S.M á Íslandi, sjósyndari og almennt mikill meistari.
    Magnús hefur verið viðloðin BDSM senuna á Íslandi síðastliðin 25 ár. Hann fór yfir það hvernig hann færðist yfir í þessa átt sem ungur maður er hann fór að gera sér grein fyrir vissu tilfinningarrisi við það eitt að binda í kynlífi. Eitthvað svo almennt en í þessu tilfelli vísir í eitthvað sem hefur svo sýnt sig sem sterk BDSM hneigð.
    https://bdsm.is

    1 hr 23 min
  • Þvottahúsið#57 Einar Carl er Primal

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðrana Gunnar og Davíðs Wiium er engin annar en Einar Carl Axelson fyrrum landsliðsmaður í Tae kwon do og einn af stofnendum Primal Iceland.
    Einar sem fyrir allmörgum árum lenti í alvarlegu snjóbrettaslysi í frönsku ölpunum fann sig knúinn til leita á ný mið með sjálfan sig vegna þeirra meiðsla sem hann hlaut.
     Sú hreyfing færði hann yfir í nuddnám sem svo varð kveikjan á því sem Primal Iceland er í dag. Ein allsherjar líkamsgreining út frá gríðarlegri reynslu og ríku innsæi hvað varðar líkamsstöðu, öndun og hreyfingar. 
    https://www.primal.is

    1 hr 16 min

About Þvottahúsið og Geimsýran

From the publisher's feed

Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem  gætu…