
Sign up to save your podcasts
Or


Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvottahúsið er engin önnur en fjöltalentinn Alda Karen Hjaltalín.
Alda Karen hefur búið um árabil í New York þar sem hún starfar við persónulega ráðgjöf og við að þjónusta fyrirtæki við sölu og markaðssetningu.
Alda sem hér áður fyrr var hún sölu- og markaðsstjóri hjá Saga Film og seinna hjá samfélagsmiðlafyrirtækinu Ghostlamp starfar í dag ekki aðeins sem ráðgjafi heldur er hún einnig rithöfundur og vinsæll fyrirlesari.
Hún reis upp á sjónarsviðið á Íslandi fyrir nokkrum árum með fyrirlestrum sem hún hélt bæði í Hörpunni og í Laugardalshöll fyrir fullu húsi. Hún segist hafa áttað sig á sínum fyrsta fyrilestri hve mikið af markaðsmálum og atvinnuframmistöðu almennt snérist í raun um andlegan þroska og hugrækt. Í Laugardalshöllinni hélt hún fyrirlestur í kjölfar áfalls innan fjölskyldunar og rann allur ágóði til Pieta samtakana. Eitthvað í því tengt sagði hún í viðtali hjá Íslandi í dag að hún sjálf liði sjálf eins og hún sé fullkomnlega nóg og segi það við sjálfan sig sem einkonar forittun á eigin huga sem svo virðsit virka því Öldu er bókstaflega allir vegir færir. Eitthvað fór þetta fyrir brjóstið á fagmenntuðum sálfræðingum sem að tóku málið fyrir og var henni svo mætt í eftirminnilegum Kastljósþætti þar sem fulltrúi félags sálfræðinga Hafrún Kristjánsdóttir mætti Öldu undir umsjón Einars Þorsteinssonar sem nú hefur snúið sér að stjórnmálum.
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en reiðhjólahvíslarinn Bjartmar Leósson. Bjartmar sem nýlega hætti störfum sem leikskólastarfsmaður eftir 17 ár er einna helst þekktur í samfélagi fýkla og utangarðsmanna fyrir brenheita réttlætiskennd og endurheimt stolina hjóla sem mikið er af í miðbæ Reykjavíkur sérstaklega.
“Það kom tímabil þar sem ég ákvað að bara ekki vera á bíl, hjólaði alltaf í vinnuna hálftíma leið og sennilega í besta formi lífs míns þá. En bíladellan er sterk, en ég hef það mottó að ég þurfi ekki að nota bíl til að komast í vinnu, ég verð að búa nálægt vinnunni í göngu eða hjólafæri. Stundum er bílarnir bara ónotaðir fyrir utan í nokkra daga. ég myndi aldrei getað það verið fastur í traffik á leið í vinnuna á hverjum einasta degi”
Bjartmar hefur haft brennandi áhuga á öllum sem er á hjólum síðan hann var smá pjakkur, reiðhjól, bílar og mótorhjól eiga hug hans allan. Það var svo fyrir nokkrum árum að hann rakst á glæný og dýr reiðhjól fyrir utan Háspennu, en Háspenna er spilavíti þekkt er fyrir vissan hóp fastakúnna. Hann sá hjólið í andyrinu læst með 1000króna Tiger lás og strax áttaði hann sig á því að hjólið var að öllum líkindum stolið og sú vitneskja ein og sér án þess að gera eitthvað í því gat Bjartmar ekki undir neinum kringumstæðum látið slæda, hann fann sig knúin til að leiðrétta það sem hann sá og koma hjólinu í réttar hendur sem og honum tókst með hjálp lögreglu eftir smá stapp við þjófana sem auðvitað viðurkenndu ekki neitt.
“Hér voru bara þessi 3 hjól og það var bara eitthvað off við þetta” Segir Bjartmar er hann rakst á 3 hjól í afgreiðslunni á Háspennu.
“ég ákvað batra að fá lögguna og lendi í stappi við þá í hurðinni og stóð bara í hurðinni bara nei, nei these are stolen bikes og þeir bara No, No not stolen. Loksins kom löggan og maður sem kannaðist við hjólið sitt og kíkti á stellnúmerið og það passaði og daginn eftir var annar eigandi hjóls búin að sjá að hann átti eitt og nokkrum dögum seinna var þriðja hjólið komið í réttar hendur”
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin önnur en grasalæknirinn Ingeborg Andersen. Ingeborg lærði vestrænar grasalækningar við University of Westminster í London.
Ingeborg kemur úr fjölskyldu af læknum, afi hennar og pabbi eru læknar og mamma hennar hjúkrunarfræðingur. Það hafi alltaf legið fyrir að hún skuli einnig verða læknir en þegar að nær dróg fann hún að henni fannst námið ekki bara þurrt heldur líka erfitt yfirferðar sökum viss áhugaleysis um námsefnið.
Ingeborg talaði um að grasalækningar hafi hér áður fyrr talist sem almenn viska tengt heilsu og líðan, fólk hafi verið í nánari tengingum við náttúruna og máttinn sem í henni býr. Hún vill meina að þessi tenging og vitneskja sé smátt og smátt að tapast.
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar er Ingólfur Níelsson.
Þessi þáttur bræðrana með Ingólfi er síðasti þátturinn í trílógiunni Sitting bull sem svo varð mannkynsfrelsarinn. Í fyrsta þættinum lýsti hann því hvernig hann fór í gegnum mikið ferðalag þjáninga sem svo leiddi hann inn í dauðareynslu sem hann varð fyrir í fangaklefa í Kaupmannahöfn. Dauðareynslan hafði djúp sálræn áhrif á hann og byrjaði vegferð hans þaðan inn í ljósið eins og hann kallar það.
“Við erum yfirleitt bara að líta á okkur sem eina vél enn ekki vitund, öll þessi fræði, yogisk fræði, kristinfræði er að tala um þetta að það er vitund, það er sál og án sálarinnar getur maðurinn ekki lifað og ég tel svo vera að sálin er ljóseind, ljóseindarflæði”
“Án andefnis getur efnið ekki orðið að veruleika”
“Raunverulega eigum við ekki að vera hérna, jörðin á bara að vera hérna en það er eitthvað rugl í vitund minni sem fær mig síendurtekið til fæðinga og lífið hér á jörðinni er að hluta til þjáning, fyrsta upplifun mín og meðbræðra er þjáning, það er fæðing, við þjáumst. Svo fer ég að vaxa úr grasi og ég fer að finna fyrir andlegri þjáningu sem ég fæ í erfð frá forfeðrum mínum og ég skil ekki ekki hvernig ég á að takast á við þetta og tilfinningalíf mitt fer í rugl við það. Af hverju erum við að þjást hérna, af hverju er ekki gleði og ég bendi yfirleitt á þig og segi afhverju ertu ekki að haga þér svona”
“Til að losna undan fæðingu og þjáningum heimsins, þessum aðdrætti sem ég hef hérna þá verð ég að stefna að því að öðlast eilíft líf, það gera ég í gegnum þjónustu og með því að vekja vitund mína upp með það að ég er eilíf vera, guðdómleg vera, án upphafs og án endis”
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en skeitarinn, tónlistarmógúllinn Steinar Fjelsted eða Steini í Quarashi eins og hann er gjarnan kallaður.
“Þetta byrjaði samt bara mest með Public Enemy og NWA”
“Ég man enþá eftir þessu í dag, þegar að Check your head með Beasty Boys kom út, það breytti bara öllu, tónlistarlega séð, tískulega séð, hugsunarhætti, bara tónlist, breytti bara öllu, heimurinn fór á hliðina. Þetta er örugglega eins og þegar fyrsta Bítlaplatan kom út”
“Ég stofnaði mína fyrstu hljómsveit 9 ára, Alcoholic Brothas” Segir hann hlæjandi. Gunnar spyr hann hvort nafnið ætti eftir að rætast og hann svaraði því játandi.
Gunnar spurði Steina hver fyrsti íslenski rapparinn hefði verið og hann sagðist halda “að það væri bara Einar Örn eða eitthvað, í Sykurmounum, hann var basicly bara að rappa.”
“Það er taktur í mér og tónlist , ég hef rosalega þörf fyrir að gera eitthvað creative, á hverjum einasta degi”
Steini byrjaði að skeita og búa til tónlist ungur. Hann talaði um að hafa stofnað sínu fyrstu hljómsveit, The alkoholic brothas þegar hann var 9 ára. það má segja að þetta Urban vibe hafi náð að fanga Steina frá byrjun, einhver taktur sem hann segir að hann hafi fundið þá bæði í skeitinu sem og í beatinu eða takti hip hopsins.
albumm.is
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin önnur en lífskúnstnerinn Ásdís Olsen.
Ásdís er marfaldur Íslandsmeistari á skíðum, sjónvarpskona, fyrrum flugfreyja, fræðimaður, kennari og fyrirlesari á sviði jákvæðrar sálfræði og núvitundar og hefur sérhæft sig í hagnýtum aðferðum til að auka vellíðan og hamingju fólks, sem sagt kona sem hefur komið víða við. Gunnar hafði orð á því í byrjun þáttarins hve ferilskrá Ásdísar væri löng og fjölbreytt, nánast heill doðrantur.
“Það getur vel verið að ég sé svo fokked up svo að ég sé bara að leita af sjálfum mér”
Ásdís er einna helst þekkt fyrir að vera stjórnandi spjallþáttarins Undir yfirborðið sem sýndur hefur verið á sjónvarpsstöðinni Hringbraut um nokkurt skeið. Í þættinum tekur Ásdís spjall með allskonar einstaklingum sem á einhvern hátt þrífast í andlegri leit og þá yfirleitt í kjölfar einhverskonar þjáningar og áföllum. Gunnari vakti forvitni á að vita hvaðan áhuginn á þessu sviði kæmi og svaraði Ásdís að auðvitað hefði hún alltaf verið mjög leitandi og forvitin en að hennar eigin áföll séu eflaust hvatin að þessari leit sem virðist enga enda taka enda nóg á að taka.
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en dansarinn, pistlahöfundurinn og múltikunsterinn Friðrik Agni Árnason.
“Ef ég ætti að segja að eitt af þessu sé svona innsti kjarninn þá er það dansinn, alveg innst, og svo út frá því kemur allskonar annað, skapandi, eins og að skrifa, svona tjáskipti”
“Ég sá strák, varð hrifin af honum, hann var fyrirsæta og ég var ég var líka að vinna sem fyrirsæta þegar ég var unglingur og við kynntumst og allt í einu vorum við bara að deita og ég svo sagði ég bara við mömmu að ég er eiginlega bara að deita strák og hún bara sagði já ok en passaðu þig bara að fara varlega, þetta var bara eins og að segja hei, ég er með brún augu”
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en fjöllistamaðurinn Snorri Ásmundsson.
Snorri sem hefur fengist við gjörningslist síðan hann man eftir sér lifir einnig og þrífst í málaralistinni. Hann segist í raun lifa á málaralistinni en að gjörningslistformið sé það sem stendur honum næst í einhverjum kjarna.
Snorri hefur eins og sagt hefur verið í einskonar listgjörning síðan hann var lítill drengur.
Gunnar spyr hann einmitt um gjörning sem hann Snorri framkvæmdi sem ungur drengur á götum Akureyrar þar sem hann bjó á þeim tíma. Gjörningin myndu flestir bara túlka sem dónaskap og ósvífni en í augum Snorra var bara eitt markmið, að ögra og sprengja kassan. Hann sem sagt heilsaði öllum gömlum konum sem hann mætti með því að biðja góðan daginn en bætti svo við “helvítis mellan þin.”
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar er bardagahundurinn og áhættuleikarinn Hrafn Þráinsson einnig þekktur sem Krummi.
Krummi er einn eigendum RVK MMA og umsjónarmaður barna og unglingastarfs hjá RVK MMA ásamt því að vera yfirþjálfari yngri aldursflokka.
Krummi byrjaði snemma að æfa Karate með Karatedeild Þórshamars um 5 ára gamall. Honum féll vel við agan og þessa formfestu sem einkennir hefðbundið Karate og því hélst hann þar í ein 11 ár eða þar til hann varð 16 ára gamall. Við tóku nokkur ár þar sem hann leitaði af sjálfum sér ákaft og að eigin sögn mjög týndur. Lenti í slagsmálum og einhverju rugli sem hann ákvað að snúa bakivið og því flutti hann til Noregs og skráði sig í herinn.
“Það er ógeðslega erfitt að mótiveita sig nema þá bara að maður sé með lausa skrúfu, þú veist að mótiveita sig til að mæta á æfingu og láta kýla sig í andlitið eða kyrkja þig reglulega, það er bara öðruvísi en að fara og sparka eða kasta bolta einhversstaðar”
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin önnur en blaðakonan, ritstýran, kennarinn og feministinn Olga Björt Þórðardóttir.
Þemi viðtalsins var án efa meetoo byltingin og almennt samskipti kynjana frá vinkli geranda og þolanda. Gunnar rak augun í grein sem Olga skrifaði í lok Janúar, grein þar sem Olga fór yfir atburði sem hún varð fyrir sem barn. Í greininni lýsti hún atburðum þar sem hún var barin bakvið skúr fjögura ára gömul af jafnöldrum sínum, tveim drengjum.
Annað dæmið var er Olga var tíu ára og vinir hennar reyndu með valdi að komast undir pilsið á henni sem svo reyndar ekki tókst því hún varðist með kjafti og klóm.
Átján ára gömul ráðast drengir að henni í partýi og klippa af henni hárið með valdi, sama ár var henni svo nauðgað. Þessi nauðgun var aldrei kærð því í þá daga hafði það lítið upp á sig sagði Olga.
Í þessu samhengi lagðist hún sem forvitinn blaðamaður og grúskari í að kynna sér sögu ofbeldis gegn konum á Íslandi frá landnámi, samhliða kvenréttindabaráttunni. Hún leitaði einnig álits sérfræðinga, m.a. í íslenskum fræðum og bókmenntum, til að hafa sem réttastar upplýsingar og búa þannig til mögulegt markvert samhengi. Það hvarflaði nefnilega að henni að fyrst áföll erfast þá geti menning og forréttindi sannarlega gert það líka.
From the publisher's feed
Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem gætu…