Þvottahúsið og Geimsýran

Þvottahúsið og Geimsýran

Download on the App Store

Þvottahúsið og Geimsýran episodes

  • Þvottahúsið#76 Þór Guðna fer með okkar á sveppaferðalag

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en Þór Guðnason. Þór sem er sonur Guðna í Rope yoga, hefur verið lengi lengi í bransanum eins og maður segir. Hann hefur fengist við allskonar einkaþjálfun og ráðgjöf. Hann var sá fyrsti sem náði sér í réttindi hjá kuldameistaranum Wim Hof sjálfum. Hann var einn af stofnendum Primal Iceland og svona væri lengi hægt að telja. Maður mikillar reynslu hér á ferð. 

    Þór hefur síðustu ár verið hugfangin af möguleikum hinna ýmsu hugvíkkandi efna en þá fyrst og fremst af íslenska Psilosobin sveppinum. Hann hefur þó einnig unnið með hin og þessi efni og nefnir í því samhengi Ayahuasca og Mescalin kaktus. Þór hefur ferðast um heiminn í þessum tilgangi og lært shamanískar aðferðir, möguleika og umgengni við þessi þræl öflugu efni. Í dag veitir hann ráðgjöf, utanumhald og handleiðslu í þessum efnum, ýmist í hóp sem einskonar hópserómóníur eða meira einstaklingsmiðað þar sem einstaklingurinn eftir samtal leggur sig í hendur Þórs og innbyrgir sveppi í mismiklu magni, allt upp í 5 grömm, og á ca 6 tíma glugga situr Þór yfir viðkomandi og leiðbeinir í gegnum ferðalagið sem oft á tíðum getur verið erfitt og krefjandi.



    1 hr 27 min
  • Þvottahúsið#75 Boff Konkerz er ekkert að fokking grínast

    Send us Fan Mail

    TRIGGER WARNING. 
    Lýsingar tengt BDSM, kinki, satanisma og buttpluggum í þættinum gætu farið fyrir brjóstið á viðkvæmum.
    Viðtalið fór fram á ensku.

    Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en Boff Konkerz. Boff er húðflúrmeistari frá London sem býr yfir mörgum sérkennum og einstæðum hæfileikum. Boff er mikill Íslandsvinur enda búin að venja komu sína til Íslands síðustu ár með mjög reglulegu millibili í þeim tilgangi að húðflúra landan. 

    Sjálfur er Boff nánast fullbody flúraður, það eina sem vantar upp á er undir iljarnar og höfuð, meira að segja viðkvæmustu staðir Boffs eru flúraðir en það fer hann inn á í viðtalinu. Spurður út hvort höfuðið og andlit séu eftir svarar Boff ákveðin að svo verði ekki. Hann kann vel við þennan kontrast sem myndast í þessu samspili hreins andlits og flúri upp fyrir hálsmál. 

    “Ég er húðflúruðar nánanast allsstaðar nema á haus og andliti sem og á iljunum, bókstaflega allsstaðar annarsstaðar.”
    Segir Boff. Davíð spyr hann út í einkastaðina og segir Boff svo vera en samt sem áður þessir staðir vera í vinnslu.

    Boff virðist ekki hræðast né forðast sársauka eins og flestir kannski gera í hefðbundnum skilning. Hann hefur einnig verið síðustu árin mjög virkur í BDSM senu Lundúna sem og heimsótt event og dyflísur um allan heim. Konan hans Boff er atvinnu Domain eða sársaukagjafi í London sem þýðir að hún veiti fólki þjónustu sem kannski fólk fær ekkert endilega fullnægt heima hjá sér. Allskonar kink eru í gangi þarna úti og nefnir hann Boff sem dæmi að kúnni gæti þess vegna pantað tíma eða tvo í svokallað footvership þar sem fætur eru tilbeiðnir á fjórum. 

    Sjálfákvörðunarréttur hvers og eins yfir eigin líkama tekur hann sem gott dæmi þegar fólk ákveður í þessari senu að brennimerkja sig, þekkt sem branding. Koma fyrir aðskotahlutum úr riðfríu járni undir húð sem kallast Inplantation. Kljúfa tungur, skera til eða fjarlæga eyru, fjarlægja fingur eða einfaldlega skera getnaðarlimi af. Allt eru þetta dæmi um öfgar sem þykja afar fordæmt og kontraversialt en þegar á öllu er á botninn hvolft sjálfákvörðunarréttur hvers og eins að gera hvað sem sýnist við sinn eigin líkama. 

    “Mér finnst að fólk eigi bara að leyfa öðrum að vera það sjálft, svo ef fólk vill skera af sér fingur eða kljúfa á sér tunguna, fikta í augnsteinum á sér eða höggva af sér getnaðrliminn þá bara gangi ykkur vel, þetta er þeirra líkami”


    https://www.instagram.com/bofftattoo/

    1 hr 14 min
  • Þvottahúsið#74 Lilja Sif. Sálinn sem undirbýr ferðalanga

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er sálfræðingurinn Lilja Sif Þorsteinssdóttir. 
    Lilja sem stendur á bakvið sálfræðiþjónustuna Heilshugar hefur fengist við ýmislegt innan hefðbundinar sálfræði. Heilshugar virðist vera samt sem áður bjóða upp á nýjungagjarnar aðferðir hvað varðar andlega heilsu og heilun. 

    “Heilshugar er svona batamiðað rými með skaðaminkandi áherslum þar sem að ég er að reyna að blanda saman þessum topp down aðferðum og bottom up aðferðum”

     Heilshugar bíður einnig upp á námskeið fyrir ferðalanga. Um er að ræða námskeið,  hópnámskeið sem ber heitið stuðningsnámskeið fyrir ferðalanga. Gunnar spyr Lilja hverjir þessir ferðalangar eru og hvert ferðinni sé heitið. Það sem um ræðir er undirbúnings og  úrvinnsluvinna fyrir einstaklinga sem leggja af stað í einskonar ferðalög með hjálp hugvíkkandi efna. Þau hugvíkkandi efni sem um ræðir eru öll ólögleg og því undirstrikaði Lilja að aldrei undir neinum kringumstæðum mælir hún með notkun þessara lyfja eða efna við neinn mann né hefur nein tengsl við þá aðila sem framkvæma svo sjálfa athöfnina. Hún aðeins undirbýr í samtali viðkomandi eins vel og hún getur undir ferðalagið sem er í bítum sem og tekur svo við viðkomandi að ferðalagi loknu þar sem hjálp frá fagaðila oft er bráðnauðsynleg og oft á tíðum vanmetin. 

    https://heilshugar.is



    1 hr 21 min
  • Þvottahúsið#71 Geiri X fer djúpt

    Send us Fan Mail

    TRIGGER WARNING. LÝSINGAR AF NAUÐGUNUM, PYNTINGUM OG OFBELDI Í ÞESSUM ÞÆTTI ERU GRAFÍSKAR.

    Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum þvottahúsið er Ásgeir Ásgeirsson eða Geiri X eins og hann er gjarna kallaður. Geiri starfaði sem  ljósmyndari til fjölda ára, myndirnar hans birtust meðal annars hjá Reuters. 

    Ásgeir er öryrki eftir að hafa verið greindur með sjaldgæfan taugasjúkdóminn CRPS sem stendur fyrir Complex retsional pain syndrom. Sjúkdómurinn lýsir sér í ofvirkum taugaboðum sem senda stanslaus verkjaskilaboð til heilans. CRPS er sagður valda mestum sársauka af öllum sjúkdómum heims og er stundum nefndur sjálfsvígssjúkdómurinn vegna þess hversu margir þeirra sem fá hann sjá sjálfsvíg sem einu leiðina til að losna við stöðuga verkina - verki sem sagðir eru verri en þeir sem fylgja því að missa útlim eða fæða barn án deyfingar.

    Geiri kom fram í þættinum sem fórnarlamb nauðgana og pyntinga. Í þættinum fór Geiri yfir þrjú tilfelli þar sem honum er nauðgað á lífsleiðinni, tvisvar eru gerendurnir konur og einu sinni hinn þekkti barnaníðingur Ágúst Magnússon. Geiri er nýkomin út úr skápnum með þessa reynslu og hlaut fyrir vikið háð og spott inn á nokkrum feminískum síðum á Feisbúkk. 

    1 hr 20 min
  • Þvottahúsið#73 Ragga Nagli kallar ekki allt ömmu sína

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum þvottahúsið er engin annar en sálfræðingurinn, pistlahöfundurinn einkaþjálfarinn og hlaðvarparinn Ragnhildur Þórðardóttir betur þekkt sem Ragga Nagli. 
    Ragga Nagli er kona sem hefur alltaf haft nóg fyrir stafni, mörg járn í eldinum að hverju sinni. Hún talar um sig sem manneskju fulla að krafti en með athyglisbrest sem lýsir sér þannig að hún eigi erfitt með að einbeita sér að einum hlut í einu. Hún kann best við í aðstæðum þar sem hún multitaskar með marga glugga opna á browsernum eins og hún orðar það. 
    Ragga á sér langan feril innan heilsu og hreyfingar fór yfir með bræðrunum hvernig maður getur nálgast hinar ýmsu stefnur innan bæði næringar og hreyfingar.

    1 hr 33 min
  • Þvottahúsið#72 Kjartan Ragnars STÓRI BITCOIN ÞÁTTURINN

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðrana Gunnars Dan og Davíðs Karls í Þvottahús var engin annar en Kjartan Ragnarsson Cryptosérfræðingur og lögmaður.
    Hann er einn af stofnendum og eigendum rafmynta viðskiptahallarinnar Myntkaup en Myntkaup sem fór í loftið í maí 2020 er eini Íslenski vettvangurinn þar sem hægt er að eiga viðskipti með rafmyntir.
    Kjartan leiddi okkur á hinar framandi og að mörgum finnst flókin heim rafmynta og þá helst heim rafmyntarinar Bitcoin.
    Þegar bræðurnir spyrja Kjartan hvað rafmyntir eða Bitcoin sé þá rekur hann mannkynssöguna og þá fjölmörgu gjaldmiðla sem við lýði hafa verið. Hvernig þeir hafa risið og fallið og hvernig það kerfi sem við þekkjum í dag er líklegt til þess að líða undir lok.

    "Rafmyntir eru líklega gjaldmiðill framtíðarinnar." Segir Kjartan.


    2 hr 5 min
  • Þvottahúsið#70 Sara Páls er dáleiðarinn

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvotahúsið er lögmaðurinn, dáleiðarinn og orkuheilarinn Sara Pálsdóttir. 
    Sara sem hefur stundað dáleiðslu og orkuheilun samhliða lögmennsku í nokkur á núna segir að þessi andlega vinna sé farin að taka meira og meira yfir. 
    Hún hóf þessa vegferð innan dáleiðslu og hugleiðslu í kjölfar mikillar þjáninga sem voru nálægt því að keyra hana alveg í kaf. Hún byrjaði snemma að drekka alkahólist samhliða því að vera alvarlega þjökuð af átröskun.
    Viðtalið skiptist í raun upp í tvennt. Fyrsti hlutinn er sjálft viðtalið þar sem hún fer í gegnum sína reynslu og útskýrir orkuheilun og dáleiðslu fyrir bræðrunum.
    Í seinni hluta þáttarins leiðir Sara Gunnar í djúpt dáleiðsluástand þar sem hann öðlast aðgang í undirmeðvitund sína ásamt getu til tiltektar á þeim óafgreiddu áfallaeindum sem þar làgu.
    https://sarapalsdottir.is

    1 hr 45 min
  • Þvottahúsið#69 ÚLFURINN

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er formaður Geðhjálpar og stefnumótunarfræðingur forsetaráðuneytisins Héðinn Unnsteinsson. 

    Héðinn hefur verið mikið í sviðsljósinu síðustu 20 ár í tengslum við geðheilbrigðismál og þó einkun síðustu tvö fyrir tilstilli bókarinnar Vertu úlfur sem svo var sett upp  á stóra sviða Þjóðleikhússins. Sýningin er einleikur með Björn Thors í leikstjórn Unnar Aspar Stefánsdóttir og hefur unnið til margra verlauna þar að meðal sjö árleg grímuverlaun.

    Í viðtalinu fóru þeir yfir hvernig hið hefðbundna geðheilbrigðiskerfi virðist vera að færast úr stað og að taka miklum breytingum. 
    http://hedinn.org

    1 hr 10 min
  • Þvottahúsið#68 Inga Halldórsdóttir er samsærisbloggari

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíð Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er ofurbloggarinn og covid samsæris drottningin Inga Guðrún Halldórsdóttir.
    Inga sem er einnig tækniteiknari og félagsliði hefur skrifað á annað hundrað bloggfærslur um covid19, bóluefnin og kenningar um alræðishyggju og hina miklu endurræsingu.
    Bræðurnir Gunnar og Davíð ræddu við hana með opnu hjarta en gagnrýnum hug og þá sérstaklega Davíð sem átti afar erfitt með að draga ályktanir sem snúa að þeim samsæriskenningum sem Inga lagði fram í viðtalinu.
    https://ingaghall.blog.is/blog/ingaghall/about/

    1 hr 31 min
  • Þvottahúsið#67 Rauði baróninn með parkinson

    Send us Fan Mail

    Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvottahúsið er umdeildasti knattspyrnudómari Íslands fyrr og síðar hann Garðar Örn Hinriksson einnig þekktur sem Rauði Baróninn. Garðar fór alltaf sínar eigin leiðir sem ekki alltaf ollu vinsældum hjá knattspyrnusambandinu. 
    Mál málana var þó taugasjúkdómurinn Parkinson sem Garðar greindist með árið 2016. Hann fór að taka eftir skjálfta í vinstri hendi sem varð til að hann leitaði taugalæknis sem nánast greindi hann á staðnum. Fyrsta eina og hálfa árið hélt hann þessum upplýsingum fyrir sjálfan sig því hann einfaldlega þurfti að melta þessar upplýsingar, taka þær inn almennilega. 


    49 min

About Þvottahúsið og Geimsýran

From the publisher's feed

Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem  gætu…