
Sign up to save your podcasts
Or


Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunars og Davíðs í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsinu er engin annar en kokkurinn, lífskúnstnerinn, alkinn og fyrrum áhrifavaldstvíterinn Gústi Chef Eyrúnarson.
Gústi er óvirkur alki og því ansi kontraversialt þegar hann svo fer að færa sig yfir notkun á hugvíkkandi efnum.
Það fór að bera á umræðu í umhverfi Gústa tengt hugvíkkandi efnum. LSD, Mescalin, DMT, Psilosobin, Auyaska. Fyrstu viðbrögð hans voru algjör nei, nei. Gunnar spyr hann út þessi viðbrögð, viðhorf og þessa fordómq innan edrú samfélagsins og hann Gústi segir að hann taki eftir og sjái þessi skilaboð sem þá aðalega koma frá SSÁ eða meðferðarbatteríinu almennt um að hinir og þessir triggerar séu eitthvað sem mun setja alkahólistan á hliðina. Það hélt hann með þessi efni eins og sveppinn, að hann myndi fara á hliðina og detta íða við að fara þessa leið.
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í þvottahúsinu er engin annar en listamaðurinn Egill Sæbjörnsson. Egill kom til bræðrana fyrir rúmu ári síðan í þátt nr 34. Þar fóru þeir í söguna hans Egils sem leiddi hann að hinni kjöthráu raf rokks plötu Tonk of the lawn sem kom út um síðustu aldarmót. Platan Tonk of the lawn er án efa einn af mestu kult plötum Íslands. Hljómurinn kom hrár eins og ljónsöskur eftir margra ára bælingu og fjötrun. Þessi einlæga plata er án efa ein sú frumlegasta og sjálfbærasta sem komið hefur út í manna minnum hér á landi.
í þessum þætti hinsvegar var farið örlítið öðruvísi að viðmælandanum en gengur og gerist hjá bræðrunum í Þvottahúsinu. Handrit þáttarins byggði Gunnar út frá texta lagsins “Im not 100% reliable” sem er lag nr. 4 á plötunni Tonk of lawn. En út frá textanum náðu þeir svo að spinna hálf samhengislaust klukkustundar langt spjall um heima og geima.
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvotahúsið er engin annar en Guðmundur Fylkisson lögreglumaður til margra ára og aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eitt af merginverkefnum Guðmundar er að sinna leit að einstaklingum, einna helst ungmennum. Í gegnum árin hefur þú einnig sinnt samningaviðræðum fyrir hönd sérsveitarinnar, til dæmis þegar einstaklingar eru í sjálfsvígshugleiðingum. En í 8 ár hefur hefur hann sinnt málaflokk sem snýr að börnum og ungmennum í stroki. Verkefnið sem hófst sem eins árs tilraunaverkefni í nóvember 2014 er nú orðið fast verkefni, þar sem hann sinnir einn leitinni, en hefur sér til aðstoðar lögregluna í heild sinni.
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en Týr Þórarinsson sem kannski betur er þekktur sem Mummi í Götusmiðjunni. Mummi er rokkari, mótórhaus, bindindismaður og Kvikmyndagerðarmaður í grunninn og listaspíra inn við hjartað.
Mummi var villingur, tossi að eigin sögn. Gékk ílla í ferköntuðu skólaumhverfi og fljótt var hann farin að misnota fíkniefni. Honum var svo reyndar sparkað úr meðferð af Vogi eftir 7 daga fyrir að vera ekki nógu góður alki eins og hann orðaði það en samt sem áður er hann búin að vera edrú í 30 ár.
Mummi er einna helst þekktur fyrir ötullt starf með unglingum í fíknivanda og rak í um 14 ár meðferðarheimilið Götusmiðjan sem að eigin sögn skilaði mjög góðum árangri. Hann fann í sig í þessum bransa eftir að hann hóf störf í félagsheimili þar sem hann kenndi unglingum kvikmyndargerð. Þar hitti hann unglinga sem hann tengdi strax við, unglingsdrengi sem virtust eiga erfitt uppdráttar og oft á tíðum bjuggu við mikin óstöðuleika heima fyrir. Hann segir að klárlega fann hann sem þessar týpur sóttu í hann og að hann nyti virðingar sem hann svo nýtti sér til framdráttar í vinnu sinni með þessum hóp seinna meir.
Ferill var settur af stað með samkomulagi milli Mumma og Braga Guðbrandssyni þáverandi forstjóra Barnaverndarstofu um að barnaverndaryfirvöld myndu taka við heimilinu og Mummi myndi stíga til hliðar eftir öll þessi ár í 150% vinnu. Yfirtakan fór af stað eins og samið var um en áður en síðustu samningarnir höfðu verið undirritaðir fór af stað atburðarrás sem varð til þess að Götusmiðjunni var lokað kviss bamm, börnunum hrúgað upp í rútu og keyrð í burtu. Bragi og Mummi hafa síðan eldað grátt silfur saman og endaði þessi atburðarrás í réttarsal þar sem Mummi stefndi Braga vegna átta ummæla sem hann lét falla í fjölmiðlum í tengslum við þetta mál og var Bragi sýknaður með öllu.
Bragi hélt því fram að meðal annars að undirrót lokunar Götusmiðjunnar væri stjórnunarvandi forstöðumannsins Mumma sem væri farinn að bitna á meðferðinni og skaða börnin sem væru í meðferð. Bragi vildi meina að samskipti Mumma við börnin væru farin yfir velsæmismörk og framganga hans farin að valda vanlíðan og óöryggi, auk þess átti Mummi að hafa lagt starsmenn í einelti og ekki síst hótað ungmennum líkamsmeiðingum.
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvottahúsið er lögmaðurinn, dáleiðarinn og orkuheilarinn Sara Pálsdóttir.
Sara sem hefur stundað dáleiðslu og orkuheilun samhliða lögmennsku í nokkur á núna segir að þessi andlega vinna sé farin að taka meira og meira yfir og að hún sé um þessar mundir hægt og rólega að draga sig úr lögmennsku og ætlar að eingöngu að einbeita sér að orkuheilun og dáleiðslu.
Sara kom til bræðrana Gunnars og Davíðs fyrir hálfu ári eða svo í þátt #70 og í þeim þætti fór hún yfir sína sögu og aðdraganda inn i dáleiðslu og andlega velferð.
Saga hennar er lituð af mikilli þjáningu og líkamlegum kvillum sem fylgdu mikilli uppsafnaðri neikvæðri orku sem hún hefur nú náð að losa sig við. Í lok þess þáttar leiddi hún Gunnar í djúpa dáleiðslu þar sem hann varð fyrir sterkri sálrænni reynslu sem að eigin sögn náði honum upp á nýtt vitundarstig sem einkennist af mikilli gleði og léttleika í leik og starfi.
Í þessum nýjasta þætti sem er #92 fer Sara en frekar yfir alla þá líkamlegu kvilla sem geta orðið af neiðkvæðri orku sem við ýmist framleiðum sjálf með óheilbrigðum vitundarforritun sem og að við einfaldlega tökum á móti neikvæðri orku úr umhverfi okkar því okkur skortir styrkinn og innsæið til að hleypa henni í gegn og verða fyrir vikið ekki fyrir barðinu á henni.
Lokatakmarkið í þessum þætti var svo að leiða Davíð í dáleiðsluástand sem lausn við krónískum verkjum í kviðholi, brjósti og mjöðmum. Verkir sem Davíð er búin að vera glíma í einhverju formi síðan hann var unglingur. Dáleiðslan gékk afar vel og augljóst var að Davíð fór í djúpt ástand dáleiðslu sem færði hann að rótum vandans. Hann nefndi í því samhengi atburði úr æsku sem og áfall sem hann varð fyrir er bróðir hans týndist í Dublin fyrir nokkrum árum síðan og hefu aldrei fundist. Eins minntist hann á álagið sem fylgdi á að vera með rekstur og mikin mannforða sem hann þurfti svo að segja upp í COVID. Hann sagði að það hefði reynst honum gríðarlega erfitt sérstaklega svona stuttu eftir að hann missti bróðir sinn á eins dularfullan hátt og raun bar vitni. Eftir því sem leið á dáleiðsluna fór Davíð að líða betur og smátt og smátt eftir því sem Sara náði að fikra sig lengra inn í kjarnan fóru verkirnir að hverfa og í lok dáleiðslunar var hann orðin alveg verkjarlaus og vart gat leynt undrun sinni yfir því.
https://www.facebook.com/groups/197436025213886
https://sarapalsdottir.is
Send us Fan Mail
Nýjustu gestir bræðranna Gunnars og Davíðs Wííum eru þær Villimey Líf Friðriksdóttir og Margrét Dís Yeoman. Villimey Líf sem er þroskaþjálfi og Margrét Dís sem er hjúkrunarfræðingur starfa að tilraunaverkefni á vegum Rauða krossins í málaflokk skaðaminnkunar í formi neyslurýmis sem ber heitið Ylja.
Neyslurýmið Ylja er úrræði þar sem þau sem nota vímuefni geti komið og notað efnin í öruggu rými undir leiðsögn frá heilbrigðismenntaðra aðila. Með þessu er reynt að koma í veg fyrir hættu á ofskömmtun sem og sýkingum sem algengar eru í þessum bransa.
Ylja er færanlegt neyslurými og er fyrsta neyslurýmið sem opnar á Íslandi. Rýmið er í gamla bíl Frú Ragnheiðar sem fengið hefur nýja bifreið til afnota. Neyslurými er lagalega verndað umhverfi þar sem notendur 18 ára og eldri geta sprautað ávana- og fíkniefnum í æð undir eftirliti sérhæfðs starfsfólks og gætt er fyllsta hreinlætis, öryggis og sýkingavarna. Neyslurými eru starfrækt víða um heim og hafa mikinn samfélagslegan ávinning í för með sér.
Ylja vinnur eftir hugmyndafræði skaðaminnkunar sem felur í sér að fyrirbyggja þann skaða og þá áhættu sem hljótast af notkun vímuefna fremur en að fyrirbyggja notkunina sjálfa. Villimey Líf og Margrét Dís segja að með því að veita öruggan og hreinan stað til að neyta vímuefna sé hægt að tryggja bætt öryggi til notenda sem og samfélagsins.
Markmið Ylju eru því að lágmarka þörf einstaklinga til að neyta vímuefna á almannafæri og þannig koma í veg fyrir þann skaða sem vímuefnaneysla í óöruggum aðstæðum getur haft í för með sér. Má þar nefna sýkingar, blóðborna smitsjúkdóma og ofskammtanir. Ylja leggur einnig áherslu á að mynda traust, veita stuðning og viðhalda mannlegri reisn hjá notendum úrræðisins.
Send us Fan Mail
Nýjustu gestir bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium eru Kristín Davíðsdóttir og Svavar Georgsson. Kristín er hjúkrunarfræðingur og teymisstjóri skaðaminnkunar hjá Rauða krossinum og Svavar fyrrum skjólstæðingur frú Ragnheiðar og að eigin sögn fíkill og alkahólisti í bata með að verða 3 ára edrúmennsku?
Þau Svavar og Kristín höfðu aldrei hist áður en þemi viðtalsins var skaðaminnkun og í því samhengi starfsemi Frú Ragnheiðar sem hefur verið starfrækt síðan 2009. Frú Ragnheiður vinnur eftir hugmyndafræði skaðaminnkunar þar sem lögð er áhersla á að fyrirbyggja þann skaða og þá áhættu sem getur hlotist af notkun vímuefna fremur en að fyrirbyggja notkunina sjálfa.
Frú Ragnheiður hefur það að markmiði að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og óafturkræfan skaða sem og að auka lífsgæði og bæta heilsufar einstaklinga sem nota vímuefni í æð með því að veita lágþröskuldaþjónustu í nærumhverfi einstaklinga. Lækkun á tíðni sýkinga og útbreiðslu smitsjúkdóma á borð við HIV og lifrarbólgu C, færri dauðsföll af völdum ofskömmtunar, ábyrgari neysluhegðun og minna af notuðum sprautubúnaði í almenningsrýmum eru á meðal þess ávinnings sem hlýst af verkefninu án mikils tilkostnaðar.
Svavar kynnist úræði Frú Ragnheiðar einn daginn þegar félagi hans inn á skýli segir við hann “Svavar, drullaðu þér út, bíllinn er fyrir utan, farðu út og náðu þér í kókómjólk og hreinar nálar” Svavar vissi ekki hvað á sér stóð veðrið en þetta voru hans fyrstu kynni af Frú Ragnheiði. Í bílnum kynntist hann fólki sem ekki bara veittu honum útbúnað til öruggrar neyslu og tjald og hlý föt heldur líka viðmót sem einkenndist af hlýju og velvild. Eitthvað sem í raun er það dýrmætasta fyrir manneskju í þessari stöðu, stöðu þar sem oftast allir ættingar og vinir eru búnir að loka á þig, kerfið er búið að loka á þig, samfélagið er búið að loka á þig.
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en rithöfundurinn, afglæpasinninn og hampaktivistinn Þorsteinn Úlfar Björnsson.
Þorsteinn sem hefur gefið út ógrinni af bókum tengt gróðri og ræktun allskonar og ber að nefna bækurnar Villigarðurinn og Funga sem er bók um sveppi. Þátturinn í Þvottahúsinu fjallaði hinsvegar um hampinn eða Cannabis sativa eins og hann er nefndur.
Þorsteinn gaf út árið 1978 bók sem ber heitið Hampur, inni og úti ræktunarleiðbeiningar. Sú bók er orðin að vissu költ fyrirbæri í heimi hampaktivista á Íslandi enda má segja að með útgáfu þessarar bókar hafi Þorsteinn stimplað sig inn sem vissan frumkvöðul á þessu sviði og langt á undan sinni samtíð.
Nú í lok Apríl gaf hann Þorsteinn út bókina Illgresi andskotans. Bókin er ein allsherjar handbók um hampinn, kanabínóðana sem hampurinn inniheldur sem og sögu hampsins og herferðinni sem fyrir aðeins um 100 árum síðan var beitt í þeim tilgangi að sverta hann og gera ólöglegan. Þeir ræddu í viðtalinu einmit um hvernig upp úr aldarmótum 18/1900 hagsmunaaðilar í pappírsiðnaði og bindindispostular settu af stað hreyfingu sem svo átti eftir að vinda upp á sig gera hampinn ólöglegan. Það voru allskonar fordómar sem beindust að Mexikönum sem höfðu mikið um það að segja líka enda má segja að orðið Marijuana hafi fengið byr undir vængi í samhengi við samheiti latur Mexicani.
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðarana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en geðlæknirinn og nýkosin deildarforseti Guðspekifélagsins á Íslandi Haraldur Erlendsson.
Haraldur útskrifaðist úr læknadeild Háskóls Íslands og starfaði á Borgarspítalnum á endurhæfingar og taugadeild og svo á lyfjadeild. Hann tók nám í taugalækningum í London (DCN). Haraldur starfaði í nær fimm ár við heilsugæslu á landsbyggðinni og var læknir á Flateyri þegar snjófljóðin féllu 1995. Þá byrjaði hann að vinna með fólk með áfallastreitu og í framhaldi af því lærði geðlækningar í Bretlandi og kláraði sérfræðiprófin 1999 og mastersnám 2000. Hann starfaði sem sérfræðingur í geðlækningum í Sussex í East Grinstead og síðar í Hastings. Hann byrjaði svo að starfa með konur með mikla áfallastreitu og jaðarpersónuleikaröskun í 10 ár Þá var hann yfirlæknir í Cygnet Hospital Bierley í Bradford og síðar geðlæknir í Dean Hospital hjá Partnership in Care. Árið 2012 flutti hann heim til Íslands og tók við sem yfirlæknir og forstjóri á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði ásamt því að gegna stöðu sem yfirlæknir geðheilsuteymis Suðurlands á Selfossi í nokkur ár. Hann lét svo af störfum þar 2019 og hóf stofurekstur fyrst í Hveragerði og síðar í Kópavogi.
Nýverið var Haraldur kosin deildarstjóri Guðspekifelagsins. Guðspekifélagið er félagsskapur karla og kvenna sem leita sannleikans í gegnum hin ýmsu form trúarbragða og kennisetninga. Guðspekifélaganum er ekki sama hvernig heimurinn er. Hann er í senn áhorfandi og þátttakandi. Hann vill skoða mannlífið, einkum mannshugann, eiga þátt í myndun jákvæðra viðhorfa, því samkvæmt guðspekinni eru allir menn fyrst og fremst menn þrátt fyrir ýmsa meira eða minna tilbúnar skiptingar. Enginn einn getur skorast undan hlutdeild sinni í ábyrgð heildarinnar – af því hann lítur á bræðralagið sem staðreynd. Einkennisorð Guðspekifélagsins eru “Engin trúarbrögð eru sannleikanum æðri”.
https://lifspekifelagid.is
Send us Fan Mail
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en Guðmundur Hrafn Arngrímsson landslagsarkitekt og skipulagsfræðingur, helluhvíslari, möndluristari og formaður Samtaka leigjenda.
Guðmundur sem sjálfur er á leigumarkaði hefur sett sig á bólakaf í þessi mál með aukinni eftir eftirspurn á einskonar regluverki utan um rétt leigutaka og rými leigusalans.
Guðmundur nefnir í því samhengi þræl skipulagt og skilvirkt kerfi leigumála í öðrum löndum eins og Danmerku, Noregi, og Finnlandi svo eitthvað sé nefnt. Í raun í flestum nágrannalöndum, Evropulöndum er einskonar kerfi eða regluverk sem heldur utan um þessi mál og skilar fyrir vikið af sér heilbrigðum og vel funkerandi leigumarkaði bæði fyrir salan og takan.
Guðmundur vill meina að á Íslandi ríkir hálfgerð kúrekastemning þar sem lög hvað varðar rými til hækkunar á leigu er gal opið til túlkunar leigusalanum í vil. Leiguverð hefur hækkað gríðarlega sem margir vilja meina að sé í engu samræmi við þróun í nágrannaríkjum sem og að forsendur hins frjálsa markaðar séu allt aðrar víða erlendis í þessum málum.
Guðmundur talar um að hlutfall þeirra á leigumarkaði hafi hækkað gríðarlega síðustu ár og að við séum hægt og rólega að færa okkur meira og meira úr því að kaupa okkur fasteignir yfir í leigumarkaðinn sem hefur ekki upp á mikið að bjóða hér á Íslandi. Leigusalan er búin að færast úr höndum margra einkaaðila yfir í fjársterk fasteignafélög ýmis í einkaeigu eða í eigu hluthafa og þar geti félögin nánast stýrt sínum hækkunum sökum nauðar fólks á fasteignamarkaði. Lítið sem ekkert er til af eignum á almennri sölu og í því samhengi hefur fasteignarverð rokið upp úr öllu valdi síðustu ár og nánast ógjörningur er fyrir ungt fólk í dag að kaupa sér 2-3 herbergja íbúð nema að standa með minnst 15 milljóna króna útborgun sem fæstir hafa möguleika á að afla sér.
Því fari fólk út á leigumarkað og með tímanum eftir því sem fólk eldist á leigumarkaði festist fólk þar og á sér enga möguleika á hvorki að kaupa sér íbúð né koma sér í örugga leigu þar sem afborganir eru í einhverju samræmi við hvað íbúðareigendur eru að borga oftast í afborganir á sínum húsnæðislánum.
https://www.leigjendasamtokin.is
From the publisher's feed
Geimsýran flæðir stjórnlaust og er í boði Þvottahússins. Geimsýran fjallar um allt sem snertir á UFO/NHI og uppljóstrun málaflokksins í heild sinni. Einnig er snert á málum sem gætu…