Til skjalanna

Til skjalanna

By Hlaðvarp Þjóðskjalasafns ÍslandsHistory
Download on the App Store

Til skjalanna episodes

  • Netógnir dagsins í dag

    Heiðar Lind Hansson ræðir við Bjarka Þór Sigvarðsson fagstjóra ástandsvitundar hjá CERT-IS um netöryggi í leik og starfi í dag. Gagnagíslataka, tvöföld fjárkúgun, árásarkeðjur og gagnaöryggi er meðal þess sem rætt er um í þættinum. 

    39 min
  • Þjóðlendurannsóknir

    Helgi Biering ræðir við Ólaf Arnar Sveinsson fagstjóra fræðslu og rannsókna og Ragnhildi Önnu Kjartansdóttur skjalavörð um Þjóðlendurannsóknir sem farið hafa fram á Þjóðskjalasafni Íslands í um tuttugu ár.

    27 min
  • „Þessi frægu glæpamál“

    Ragnhildur Hólmgeirsdóttir ræðir við Jón Torfason og Má Jónsson um nýútkomna bók þeirra Þessi frægu glæpamál.  Í þættinum ræða þau um ein þekktustu morðmál Íslandssögunnar en það eru morðin á Sjöundá og Illugastöðum. 

    44 min
  • Út á brún og önnur mið

    Helgi Biering ræðir við Hauk Aðalsteinsson rithöfund og skipasmið um bókina Út á brún og önnur mið. Útgerðarsaga Vatnsleysustrandarhrepps til 1930. Meðal þess sem kemur við sögu í þættinum er verbúðalíf, skipasmíðar, spítalafiskur og hvalveiðar í net. 

    39 min
  • Trump, varðveisla og aðgengi að opinberum skjölum.

    Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður ræðir við Helgu Jónu Eiríksdóttur lektor í skjalfræði við Háskóla Íslands um rannsóknir bandarísku alríkislögreglunnar og kærur á hendur Donald Trump vegna opinberra skjala sem fundust á heimili hans. Í því samhengi ræða þau um hvaða reglur gilda um opinber gögn á Íslandi.

    32 min
  • Skjalafréttir 10 ára

    Helgi Biering ræðir við Árna Jóhannsson skjalavörð um fréttabréf Þjóðskjalasafns Íslands Skjalafréttir. Fyrsta tölublað Skjalafrétta kom út 14. janúar árið 2014 og því fagnar það 10 ára afmæli um þessar mundir.

    22 min
  • Dómabókagrunnur Þjóðskjalasafns

    Skjalaverðirnir Jón Torfi Arason, Helga Hlín Bjarnadóttir og Yngvi Leifsson ræða saman um sögulega efnisskrá dómabóka sýslumanna, svokallaðan dómabókagrunn, sem unnið hefur verið að á Þjóðskjalasafni síðastliðin 16 ár og er nú senn að ljúka.

    44 min
  • Grindavíkurskjölin

    Helgi Biering ræðir við Heiðar Lind Hansson fagstjóra gagnaskila og eftirlits og Árna Jóhannsson skjalavörð um aðkomu og framkvæmd Þjóðskjalasafns Íslands á flutningi skjala Grindavíkurbæjar þegar náttúruvá steðjaði að.

    36 min
  • Kynlegt stríð - ástandið í nýju ljósi

    Benedikt Eyþórsson ræðir við Báru Baldursdóttur sagnfræðing um bók hennar Kynlegt stríð - ástandið í nýju ljósi sem nýlega kom út. Óhætt er að segja að gögn sem varðveitt eru á Þjóðskjalasafni Íslands hafi varpað nýju ljósi á samneyti íslenskra kvenna og hermanna á hernámsárunum. 

    41 min
  • Íslenskir sakamenn í Kaupmannahöfn

    Íslenskir sakamenn í Kaupmannahöfn. Helgi Biering ræðir við Sigríði Hjördísi Jörundsdóttur sagnfræðing um rannsóknir hennar á íslenskum sakamönnum sem sendir voru til refsivistar í Kaupmannahöfn á árunum 1736-1830

    35 min

About Til skjalanna

From the publisher's feed

Hvað er Þjóðskjalasafn Íslands? Forvitnileg skjöl, sögulegir viðburðir og nýjar rannsóknir

More shows like Til skjalanna

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners