Til skjalanna

Til skjalanna

By Hlaðvarp Þjóðskjalasafns ÍslandsHistory
Download on the App Store

Til skjalanna episodes

  • Hverjir völdu fulltrúa fólksins?

    Ragnhildur Anna Kjartansdóttir ræðir við Hrafnkel Lárusson skjalavörð og nýdoktor í sagnfræði um rannsókn hans á kosningum og kjörhegðun Íslendinga á landshöfðingjatímanum (1874-1903), en verkefnið hlaut nýverið nýdoktorsstyrk frá Rannís

    30 min
  • Þrautseigja og mikilvægi íslenskrar tungu

    Unnar Rafn Ingvarsson og Jón Torfi Arason ræða við Kristjönu Vigdísi Ingvadóttur um nýstárlega sagnfræðirannsókn hennar um tungumálanotkun á Íslandi, dönsk áhrif á 18. og 19. öld og um mikilvægi íslensku frá siðaskiptum

    48 min
  • Lénið Ísland

    Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Kristjönu Kristinsdóttur sagnfræðing um tímamótarannsókn hennar: Lénið Ísland: Valdsmenn á Bessastöðum og skjalasafn þeirra á 16. og 17. öld. 

    32 min
  • Jarðskjálftar á Þjóðskjalasafni

    Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Pál Einarsson jarðeðlisfræðing og prófessor emeritus um sögu jarðskjálftamælinga á Íslandi og stafræna afritun sögulegra mæligagna um jarðskjálfta, sem varðveitt eru á Þjóðskjalasafni, og hafa að geyma ómetanlegan vitnisburð um hreyfingu jarðarinnar

    41 min
  • Einkabréf alþýðukonu frá 19. öld

    Jón Torfi Arason ræðir við Helgu Hlín Bjarnadóttur sagnfræðing og skjalavörð um safn sendibréfa lausakonunnar Arnfríðar Þorkelsdóttur (1830-1885) sem nýlega komu fram í dagsljósið á Þjóðskjalasafni. Tilefnið er grein Helgu Hlínar í Sögu, þar sem hún kynnir þessar ómetanlegu hversdagsheimildir

    29 min
  • Um skjalfræði og mikilvægi upprunans

    Jón Torfi Arason ræðir við Helgu Jónu Eiríksdóttur sagnfræðing og lektor í skjalfræði um fræðigreinina skjalfræði, upprunareglu í skjalavörslu og námsleið í hagnýtri skjalfræði við Háskóla Íslands

    31 min
  • Lýðræði í mótun

    Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Hrafnkel Lárusson sagnfræðing um doktorsritgerð hans: Lýðræði í mótun: félagastarf, fjölmiðlun og þátttaka almennings 1874-1915

    39 min
  • Skjöl á skriðusvæði

    Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Karen Sigurkarlsdóttur forvörð og Andra Má Jónsson skjalavörð, en þau aðstoðuðu bæði við björgun á skjölum úr skriðunum sem féllu á Seyðisfirði í desember árið 2020

    35 min
  • Smitvarnir og bólusetningar

    Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Erlu Dóris Halldórsdóttur sagnfræðing um bólusetningar á 18. og 19.  öld og þá kröfu sem var gerð til skipa að þau væru smitfrí

    30 min

About Til skjalanna

From the publisher's feed

Hvað er Þjóðskjalasafn Íslands? Forvitnileg skjöl, sögulegir viðburðir og nýjar rannsóknir

More shows like Til skjalanna

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners