
Sign up to save your podcasts
Or


Helgi Biering ræðir við sagnfræðinginn Atla Björn Jóhannesson um MA-ritgerð hans, Vinnukona, ómagi, stúlka og frú.
Ritgerðin fjallar um konur sem skrifuðu undir áskorun Hins íslenska kvenfélags árið 1895 - fyrstu skipulögðu kvenréttindakröfuna á Íslandi á landsvísu. Konur úr öllum stéttum tóku þátt. Þátttakan var misjöfn eftir landshlutum og fór eftir einstaklingsframtaki á hverjum stað.
Þátturinn varpar ljósi á upphaf íslenskrar kvenréttindabaráttu með því að greina hverjir þátttakendurnir voru í raun.
Í þessum þætti ræðir Helgi Biering við Hall Jónas Gunnarsson, eina af driffjöðrum Minja- og sögufélags Grindavíkur. Farið er yfir upphaf félagsins, hið mikilvæga starf við söfnun, skráningu og miðlun heimilda og minja.
Helgi Biering ræðir við Þórunni Marel Þorsteinsdóttur sagnfræðing um rannsókn hennar á lausamennsku. Þórunn skrifaði BA ritgerð sem heitir Lestir lausamennsku og lifnaður við sjávarsíðuna: Afbrot og siðferði á Akureyri 1810 – 1840. Eftir að einokunarverslun lauk og kaupstaðir tóku að myndast á Íslandi í upphafi 19. aldar, hófst þéttbýlismyndun þar sem atvinnuleit dró fólk að verslunarstöðunum. Þó svo að lausamennska væri ólögleg þá var fólk í þeirri stöðu samþykkt af samfélaginu sem sýnir ákveðna togstreitu milli laga og hagsmuna samfélagsins.
Í febrúar árið 1964 var unnin aðgerðaráætlun vegna hugsanlegs brottflutnings íbúa Vestmannaeyja vegna mögulegrar hættu af völdum náttúruhamfara. Jón Böðvarsson iðnaðarverkfræðingur vann skýrsluna fyrir dr. Ágúst Valfells þáverandi forstöðumann almannavarna ríkisins. Skýrslan nýttist svo þegar gaus í Vestmannaeyjum þann 23. janúar 1973. Helgi Biering ræðir við þá Jón og dr. Ágúst varðandi skýrsluna, tilurð hennar og mikilvægi þegar á reyndi.
Meðal þess sem fram kemur í þættinum er náttúruvá, jarðskjálftamælar, Heimaey, flugvöllur á Skógarsandi og betri flugsamgöngur.
Þátturinn var tekinn upp árið 2024.
Íslendingar hafa löngum haft mikinn áhuga á ættfræði, en hvernig geta tölvunarfræði og tæknilausnir auðveldað ættfræðirannsóknir? Í þessum þætti fara Helgi Biering og Agnar Guðmundsson, tölvunarfræðingur og áhugamaður um ættfræði út um víðan völl, um tengsl ættfræði og tækni, gagnagrunna, skjalavörslu og forvitnilegar uppgötvanir í ættfræðinni.
Ólafur Arnar Sveinsson sviðsstjóri fræðslu og rannsókna hjá Þjóðskjalasafni Íslands ræðir við Elaine L. Westbrooks yfirbókavörð Cornell háskólabókasafnsins. Á meðal þess sem rætt er um er traust til safna, Willard Fiske safnið sem hefur að geyma bækur og handrit á íslensku, aðgengi að gögnum og áhugaverða sögu Cornell háskóla.
Þátturinn er á ensku.
Helgi Biering ræðir við dr. Margréti Gunnarsdóttur skjalavörð um hefðir, siði og venjur Íslendinga í kringum jól og áramót. Margrét, sem er höfundur ævisögu Ingibjargar Einarsdóttur, eiginkonu Jóns Sigurðssonar, fræðir hlustendur um það til dæmis hvernig jólahaldi var háttað á heimili þeirra hjóna við Austurvegg í Kaupmannahöfn. Áhrif erlendis frá, einkum frá Danmörku, hafa augljóslega náð til landsins í gegnum tíðina og hjálpað við að móta siði og venjur.
Meðal þess sem fram kemur í þættinum er fjöldi jólasveina, jólakveðjur, innkaup fyrir jólin, epli og mandarínur og hvers vegna jólin ganga í garð klukkan 18 á aðfangadag.
Helgi Biering ræðir við Ragnhildi Önnu Kjartansdóttur, skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands um BA ritgerð hennar frá árinu 2020 sem ber heitið Fóðrun og hagaganga aðkomufjár í kvikfjártalinu 1703. Kvikfjártalið er einstök heimild um búskarparhætti og samfélagsgerð á Íslandi í byrjun 18. aldar.
Meðal þess sem fram kemur í þættinum er greiðsla vegna kúgjaldaleigu, sauðir með höfuðsótt, skattaafsláttur og heytollur.
Helgi Biering ræðir við Heiðar Lind Hansson fagstjóra gagnaskila og eftirlits hjá Þjóðskjalasafni Íslands um Bláa skjöldinn. Blái skjöldurinn er alþjóðlegt tákn um vernd menningarverðmæta í vopnuðum átökum og er að ýmsu að hyggja í þeim málum í dag. Einnig koma við sögu viðbragðsáætlanir, rafræn gögn, rýmingarstefna og Norður-Kórea.
Helgi Biering ræðir við Helgu Jónu Eiríksdóttur lektor í skjalfræði um námsferð starfsmanna Þjóðskjalasafns Íslands til Gdansk í Póllandi. Tilgangur ferðarinnar var heimsókn í eitt af útibúum Þjóðskjalasafns Pólands, fræðast og kynnast þeim sem starfa við skjalavörslu. Einnig var rætt um áskoranir í skjalavörslu og bornar saman bækur. Meðal þess sem kemur við sögu í þættinum er þroskastig skjala, nýsköpun, miðlun gagna og minni þjóðar.
From the publisher's feed

29 Listeners