Fram og til baka, tímaflakkið, 33. Þáttur
Umsjón Felix Bergsson og Margrét Blöndal
1965, 1975, 1985 og 1995
Bergsson og Blöndal halda óvísindalegri yfirreið sinni yfir fortíðina áfram í Fram og til baka og að þessu sinni er komið niður í síðustu viku maímánaðar ári 1965, 1975, 1985 og 1995.
Brynjólfur Jóhannesson leikari ræðir við Mattías Jóhannessen og Lénharður fógeti gerði gagnrýnanda Mánudagsblaðsins alveg vitlausan. Þátturinn Í sumarbyrjun var í sjónvarpinu í maí 1985 og svo trúlofaði danski krónprinsinn sig henni Alexöndru sem er af kínverskum ættum!